Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Qupperneq 28
40 DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986. Andlát Gunnar Einarsson frá Hjörsey an- daðist aðfaranótt 15. þ.m. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- ^ inn 25. mars kl. 13.30. Halldór Jósefsson, Sólbakka á Bergi, Kefiavík, er látinn. Jarðsungið verð- ur frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 24. mars kl. 14. Líney Sigurjónsdóttir frá Sauðár- króki, síðast til heimilis að Norður- brún 1, andaðist miðvikudaginn 19. þ.m. Þorgils Jónsson, Ægissíðu, Rangár- vallasýslu, andaðist í Landakotsspít- ala 18. þessa mánaðar. Jón Lárusson, Framnesvegi 46, lést að morgni 20. mars í Borgarspítalan- um í Reykjavík. Helga Helen Andreasen, Brattholti 6c, Mosfellssveit, sem lést af slys- förum 16. mars, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju laugardaginn 22. mars kl. 14. Hinrik Gíslason, Skólavegi 15, Vest- mannaeyjum, sem andaðist sunnu- daginn 16. mars, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 22. mars kl. 14. Útför Jóns L. Jónssonar frá Hrísum, sem andaðist 15. mars, fer fram 22. mars kl. 14 frá Víðidalstungukirkju, V-Hún. Farið verið í áætlunarbíl frá Reykjavík. Þeir sem hafa áhuga á fari hringi í síma 21896 og 20554. Jón Konráðsson lést á Elliheimilinu á Selfossi 19._mars. Anna Lísa Ólafsdóttir, Stífluseli 1, verður jarðsett föstudaginn 21. mars kl. 15 frá Bústaðakirkju. Ferðalög Ferðaáætlun Útivistar 1986 er komin út 6 lengri ferðir um páska. Ferðaáætlun ferðafélagsins Úti- vistar er nýlega komin út. 1 henni er að finna fjölbreytt úrval lengri og skemmri ferða um ísland þar sem áhersla er lögð á gönguferðir og útiveru við allra hæfi. í ferðaáætlun- inni eru samtals 225 ferðir sem skipt- ast í 125 styttri ferðir, 82 helgarferðir og 18 sumarleyfisferðir. Aukaferðir verða teknar upp og auglýstar sér- staklega. A síðasta ári tóku 5620 manns þátt í ferðum Útivistar sem er mesta þátttaka á 10 ára starfsferli félagsins en félagið var stofnað þann 23. mars 1975 og er því 11 ára nú á sunnudaginn. Ferðir Útivistar eru öllum opnar óg félagsmenn geta allir orðið gegn greiðslu árgjalds. Innifal- ið í árgjaldi er ársrit. Útivist fer eftirfarandi ferðir um páska: 1. Snæfellsnes-Snæfellsjökull, 5 dagar. Gist er á Lýsuhóli og farið í göngu- ferðir um fjöll og strönd. Brottför á skírdag kl. 9. 2. Snæfellsnes-Snæ- fellsjökull, 3 dagar með brottför á laugard. kl. 8. 3. Ný gönguskíðaferð í Esjufjöll í Vatnajökli. Gist í skála Jöklarannsóknarfélagsins. 4. Þórs- mörk, bæði 5 og 3 daga ferðir. Gist í skálum Útivistar í Básum og farið í gönguferðir um Mörkina. 5. Öræfi- Skaftafell. Gist í félagsheimilinu Hofi. Gefinn verður kostur á snjó- bílaferð á Vatnajökul í þeirri ferð. Nánari upplýsingar eru á skrifstof- unni að Lækjargötu 6a. Ymislegt Sólheimaleikar „Reynir Pétur Ingvarsson, göngu- garpurinn sem gekk hringinn í kring um landið sl. sumar til fjáröflunar fyrir byggingu íþróttaleikhúss á Sólheimum, býður öllum fötluðum til íþróttamóts, „Sólheimaleikanna", í nýja húsinu fyrstu helgina í septemb- er í haust. I söfnunina höfðu um áramót borist kr. 8.500 þús„ en söfn- unarfé er ennþá að berast. Auk beinna framlaga og efnisgjafa hefur fyrirgreiðsla einstaklinga og fyrir- tækja varðandi framkvæmdir verið með eindæmum. Nokkurt fé vantar þá enn til að ljúka íþróttaleikhúsinu, en söfnunin tekur á móti framlögum í öllum útibúum Landsbanka íslands. Þá hefur það færst í vöxt að áheit berist í söfnunina frá fólki sem heitið hefur á Reyni í tengslum við per- sónulega hagi sína, svo sem próf, vinnuumsóknir, happdrætti, veður- far og aflasæld. Framkvæmdum hef- ur miðað eftir áætlun. Verið er að ljúka innréttingu vinnustofa í kjall- ara hússins og verða þær teknar í notkun á næstunni. Á efri hæð er unnið a6 útboði á innréttingu íþróttasalar og búningsklefa. Verð- ur það verk væntanlega unnið í vor og sumar. „Sólheimaleikarnir“ verða haldnir helgina 6.-7. september í haust. Þeir heíjast með íþróttamóti þar sem keppt verður í sundi, bocchia og borðtennis. Á sunnudeginum verður fjöldaganga eða göngukeppni og geta þátttakendur valið milli 24 km, 10 km og 5 km göngu. Leikunum lýkur með skemmtun og dansi í nýja húsinu“. „Mátíþriöja sinn“ Dregið hefur verið úr réttum lausn- um í skákkeppni „Mát í þriðja leik“ sem Samband ísl. samvinnufélaga Tgekkst fyrir á 12. Reykjavíkurskák- mótinu. Á myndinni sést þegar hinir ungu skáksnillingar Þröstur Áma- son og Hannes Hlífar Stefánsson draga úr réttum lausnum. Vinnings- hafi er Rögnvaldur Örn Jónsson, Ljósheimum 22 Reykjavík. Hlýtur hann að launum veglegt taflborð og vandaða taflmenn. Utvarp Sjónvarp Þórhildur Gunnarsdóttir sölumaður: Fimmtudagskvöldin góð Áður fyrr voru fimmtudagskvöld í sérstöku uppáhaldi hjá mér vegna leikritanna og enn í dag reyni ég yfirleitt að hlusta á útvarp á fimmtudagskvöldum. Mér finnst líka alveg frábært að hafa sjón- varpslaust kvöld, Qölskyldulífið fær annan blæ á þessum kvöldum, það ríkir önnur stemmning á heimilinu. Ég hef tekið eftir því að þegar ég hef sagt útlendingum frá þessum sjónvarpslausu kvöldum virðast þeir öfunda okkur - þeir með allar sínar rásir. En varðandi útvarpið verð ég hins vegar að segja að með tveim rásum og svæðisútvarpi er upplýsinga- streymi miklu meira en áður þegar bara var rás eitt alltaf troðfull. Nú er miklu auðveldara að fylgjast vel með því sem er að gerast auk þess sem rás eitt er orðin opnari: Þá er það dagskráin og er fyrst að segja að Morgunútvarpið er frábært. Reyndar tek ég ofan fyrir útvarpinu í heild, það er til fyrir- myndar. Mitt uppáhald er meðal annars ferðaþættir en ég varð fyrir vonbrigðum með Svein Einarsson í gær, hann var ekki eins góður og ég hafði reiknað með, leiddi mig ekki alveg nógu vel um þann heim sem hann hafði upplifað. Svo ég skipti yfir á rás tvö, þar var viðtal við Ágnési Bragadóttur, mjög skemmtilegt, bæði opið og persónu- legt, þær báðar hressar og það er gaman að hlusta á hresst fólk i útvarpi. Ég hlusta alltaf á Svavar, hann er einn af okkar bestu útvarps- mönnum, kann að vekja athygli á því sem hann er með. Hann hefur ótrúlega mikla yfirsýn yfir tónlist og er með skemmmtilegt val. Síðan hlustuðum við hjónin á fimmtudagsumræðu á rás eitt, það var rætt um áhugamál okkar og allra foreldra - Unga fólkið og fíkni- efnin - Ásdís Rafnar stýrir sínum umræðum alltaf vel, ákveðið en þó mjúklega, hún á auðvelt með að fá fólk til að tala. Sem sagt: þetta var gott kvöld, eins og fimmtudags- kvöld yfirleitt - verst að þurfa að skipta milli rása því þær eru báðar ágætar. Iþróttir Skíðanámskeið skíðadeildar Víkings Skíðadeild Víkings heldur sitt árlega skíðanámskeið dagana 25.-30. mars nk. Að venju má búast við að yfirfullt verði á þessu námskeiði sem öðrum og er því öllum, sem áhuga hafa á þessu námskeiði, beint á að skrá sig sem allra fyrst. Á námskeiðinu er boðið upp á margvíslega skemmtun, svo sem kvöldvökur, leiki, keppnir og margt fleira. Að venju lýkur síðan nám- skeiðinu með hinu vinsæla páska- eggjamóti. Fyrir þessa daga borga innanfé- lagsmenn með árskort kr. 4000 en utanfélagsmenn kr. 4.500. Innifalið í þessu verði er matur, rútuferðir, lyftugjald, skálagjöld ogþjálfun. Allir krakkar, á aldrinum 6-16 ára, eru velkomnir. Nánari upplýsingar fást í símum 76902 og 38668, og síminn á skíða- svæðinu er 99-4666. KÖKUBASAR Kökubasar verður haldinn laugar- daginn 22. mars 1986 kl. 15.00 (kl. 3.00) í Framheimilinu við Safamýri. Framkonur. Blöð / Tímarit Morr«Mt»MtU IIKJ. **»*!• Mk kwmotrrt M«rxMwtn«uk JUrttnW KrffW l«r*n Rnt^tcvkmr ttotouratkt j Húsfreyjan komin út 1. tölublað 37. árgangur af Húsfreyj- unni er komið út. Meðal efnis í blað- inu eru greinar, viðtöl, smásaga, fé- lagsmál KÍ, handavinnuþáttur með páskaskrauti, matreiðsluþáttur, heilsurækt og margt fleira. íslensku barnabókaverðlaunin Dómnefnd vinnur um þessar mundir að því að velja handrit það sem hljóta skuli íslensku barnabókaverðlaunin á þessu vori en þá verða þau veitt í fyrsta sinn. Talsvert á fimmta tug handrita af bókum fyrir börn og unglinga barst í samkeppni þá sem verðlaunasjóður íslenskra barna- bóka efndi til á síðastliðnu ári, en skilafrestur rann út um áramótin. Búist er við að niðurstaða dómnefnd- ar liggi fljótlega fyrir og stefnt að því að verðlaunabókin komi á mark- að í vor, en útgefandi verður Vaka/ Helgafell. Verðlaunasjóðurinn var stofnaður á síðasta ári í tilefni af 70 ára afmæli barnabókahöfundarins vinsæla, Ármanns Kr. Einarssonar. Fjölskylda Ármanns og bókaútgáfan Vaka lögðu fram stofnfé sjóðsins 200.000 krónur. Tilgangur sjóðsins er að örva fólk til að skrifa bækur fyrir börn og unglinga og stuðla jafn- framt að auknu framboði íslensks lesefnis fyrir áðurnefnda aldurshópa á öðrum tímum árs en fyrir jól. Höfundur besta handritsins, að mati dómnefndar, hlýtur 40.000 króna verðlaun að viðbættum höfundar- launum samkvæmt samningi Rit- höfundasambands Islands og Félags íslenskra bókaútgefanda. Dómnefnd barnabókaverðlaunanna skipa Ólaf- ur Ragnarsson útgefandi, Hildur Hermóðsdóttir, bókmenntafræðing- ur og gagnrýnandi, Eðvarð Ingólfs- son rithöfundur, Sigrún Klara Hann- esdóttir lektor og Halldóra Jóns- dóttir, formaður Nemendafélags Hlíðaskóla. Hús og híbýli hjá ungu fólki I nýútkomnu tölublaði H&H eru myndir úr þrem íbúðum sem inn- réttaðar hafa verið af ungu fólki af mikilli smekkvísi. Alþingi er heim- sótt, þetta virðulega hús við Austur- völl, sem byggt var fyrir einni öld. Myndskreytt grein er um húsnýting- arstefnuna sem látin var ráða við innréttingu húsnæðis fyrirtækisins Marel við Höfðabakka. Greint er frá starfsemi fyrirtækisins Parketgólf sem hefur vakið athygli fyrir lagn- ingu parkets úr gegnheilum parket- fjölum. Sagt er frá heimsókn blaðamanns H&H til hinnar þekktu verksmiðju Villeroy & Boch í Þýskalandi. Memphis-stíllinn svokallaði er skil- greindur í myndskreyttri grein. Uppskrift er að páskaborðdúk og tilheyrandi. Sagt er frá hinum þekkta hönnuði Luigi Colani sem hannað hefur ólíkustu hluti fyrir stórfyrir- tæki um allan heim. Loks má geta þriðju greinarinnar um það hvernig stjörnurnar eiga að hafa áhrif á það hvernig fólk inn- réttar híbýli sín. Að þessu sinni er sagt frá híbýlum vatnsbera, hrúta og fiska. H&H kemur út sex sinnum á ári og er þetta fyrsta tölublað þessa árs en næsta blað kemur út í lok apríl. Ritstjóri er Þórarinn Jón Magnús- son. Utgefandi er SAM-útgáfan. Kosningar í borgarstjóm Meirihlutinn í borgarstjóm, sjálf- stæðismenn, felldi í gær þá tillögu fulltrúa Framsóknarflokks, Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks að versl- unin Mikligarður skyldi fá starfsleyfi til fimm ára. Áður hafði meirihlutinn samþykkt í borgarráði að framlengja leyfi Miklagarðs um tvö ár. í borgarstjóm var einnig kosið milli tveggja umsækjanda í stöðu forstöðu- manns dvalarheimilis aldraðra við Dalbraut. Margrét S. Einarsdóttir, sjúkraliði og varaborgarfulltrúi, hlaut 12 atkæði. Hrönn Jónsdóttir hjúkmnarfræðingur hlaut 7 atkvæði. Minnihlutinn lét bóka að hér væri um augljósa pólitíska veitingu að ræða. -KMU'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.