Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Page 30
42 DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986. s«M HEIÐURSSÆTIÐ FRANK SINATRA - NEW YORK NEW YORK (WEA) Það er lygi líkast að þetta lag skuli vera komið í efstu sæti breska vinsældalist- ans; lög af þessu tæi hafa hingað til ekki átt erindi þangað. En batnandi mönnum er best að lifa og maður getur ekki annað en tekið ofan fyrir tónlistar- smekk breskra kynhverf- inga (hvernig á eiginlega að skrifa þetta?) en þeir ku eiga stærstan þátt í vel- gengni þessa lags. VIÐ FÓTSKÖRINA DAWID BOWIE(VIRGIN) ABSOLUTE BEGINNERS Meistarinn kominn á kreik með lag úr væntanlegri kvikmynd samnefndri og ekki bregst hann frekar en fyrri daginn. Það er léttur andi yfir þessu og svo syngjum við öll með á frumsýningunni á skírdag. NOKKRUM ÞREPUM NEÐAR HOWARD JONES - NO ONE ISTO BLAME(WEA) Hávarður hækkar heldur í áliti hjá mér við þetta lag; þetta er hin prýðilegasta melódía þar sem rafpíanó leikur æði stórt hlutverk og syngjandi bassinn á góða spretti inná milli. Hann leynir á sér strákur- inn. SIMPLY RED - JERICO (WEA) Þetta er afskaplega sjarm- erandi hljómsveit og þó svo þetta sé ekki hennar besta lag stendur það upp úr fjöldanum eins og kaktus í eyðimörk. Ekkert átakalag en á góða spretti og söngv- arinn er meiriháttar. SHADY (OWENS) - GET RIGHT NEXT TO YOU (FUNKIN MARVELLOS) Þetta er ekki einleikið með stælingarnar á Madonnu, nú er Shady vinkona okk- ar, sem var byrjuð að syngja um svipað leyti og Madonna lærði að ganga, látin stæla stúlkubamið í bak og fyrir. Lagið er svos- um allt í lagi en það er voðaleg verksmiðjulykt af þessu. KARIN & ANDERS GLENMARK - JUST LIKE THAT (POLAR MUSIC) Abba gengin aftur? Næst- um því; lagið eftir þá Bjöm og Benny en aðrir söngvar- ar. Sama Abba poppið sem vaggar manni ljúflega í svefn... zzzzzz -SþS- HHH1 ROBERT WYATT - OLD ROTTENHATS TONUSTIN BYR EKKIÍ TÁNUM Robert Wyatt er enginn nýgræðing- ur á akri tónlistarinnar. Fljótlega upp úr 1960 hóf hann feril sinn, tók að leika á trommur í hljómsveit sem eftir nokkrar manna- og nafnabreytingar tók sér seint og síðar meir endanlegt nafn eftir einni af bókum bandaríska rithöfundarins Bill Burroughs - Soft Machine. Fyrstu plötur þeirra félaga, þær komu út á árunum í kringum sjötíu, höfðu mikil og góð áhrif á breska tónlist og snúast enn í dag á sumum fónum. En einhverra hluta vegna gekk samstarf Soft Machine- sveitarinnar ekki sem skyldi og þar kom að höfuðpaurinn, Robert Wyatt, tók hattinn sinn og hélt út á sóló- brautina. Þegar hann hafði gefið út eina plötu lenti hann í slysi, hryggbrotnaði og lamaðist fyrir neðan mitti. En ferill hans síðan sannar enn hið fom- kveðna að oft kemst fótalaus fyrna- langt. Robert Wyatt nýtur í dag mikillar virðingar sem tónlistarmað- ur en hann er meira en það: Textar hans eru svo góðir að þeir skipa honum á bekk með skáldum. Hann er ötull og beinskeyttur talsmaður þeirra sem eiga undir högg að sækja, ekki síst breskra verkamanna. Fyrsta lag Old Rottenhats er einmitt fyrir þeirra hönd, Alliance - aldeilis frá- bært, rólegt og hljóðlátt, vel samið, söngurinn ólýsanlegur. Þó öll platarj sé gríðarlega sterk held ég að mér finnist byrjunin rísa hæst. Segi ég þangað til kemur að næsta lagi, United States of Amnesia, um gleymdar syndir þeirra fyrir vestan. Wyatt syngur tungum tveim og blístr- ar skemmtilegt sóló af snilld. Og platan snýst, ef ég held áf'ram að skrifa um hvert einstakt lag verð ég að strika út það sem ég sagði um Alliance. Það væri þá helst síðastá lag hliðar eitt, Behind the Dotted Line, sem ekki rís hæst, að því und- anskildu er Old Rottenhats ein af þeim plötum þar sem hvert lag er betra en lagið á undan. Og hún er þar að auki ólík annarri tónlist, Robert Wyatt hefur allan sinn feril verið um margt sérstæður listamaður, ekki farið alfaraleiðir, heldur þroskað sinn eigin stíl. Það má vera að einhverjum þyki tónlistin á Old Rottenhats einum of þunglamaleg eða dauf, kannski of fáguð - en þó held ég að miklu fleiri fái illa staðist töfra hennar, sem ef til vill má kalla töfra einfaldleikans. Allt er svo rólegt og jú, vissulega nógu fágað, hljóðfærin hvorki mörg né hávær, t.d. heyrist varla nokkurn tíma í bassatrommu. Þetta er ekki ekta popp og ef ég á að vera djarfur myndi ég halda því fram að Robert Wyatt væri undir áhrifum frá David Crosby, Joni Mitc- hell, Weather Report og Cleo Laine, en eiginlega skortir mig yfirsýn og dirfsku til að benda á hugsanlega ættingja hans, þó ég neiti því ekki að allt þetta tónlistarfólk er óljóst á sveimi í huga mínum er ég hlusta á Old Rottenhats. Sem ég mæli eindreg- ið með. JSÞ. DREAM ACADEMY - DREAM ACADEMY Draumatónlist Það er ákaflega sjaldan að á vegi manns verða plötur sem innihalda tónlist sem verður þess valdandi við hlustun að sæluhrollur hríslast niður eftir bakinu á manni. Einmitt þess vegna verður maður svo óumræðilega glaður þegar slíkar plötur skjóta upp kollinum. Ein slík er plata Dream Academy sem ber nafn hljómsveitarinnar og kom út seint á síðasta ári. Dream Academy er bresk hljóm- sveit skipuð þremur ungmennum; þeim Gilbert Gabriel, sem leikur á hljómborð og syngur, Nick Laird- Clowns, sem leikur á gítar og munn- hörpu og syngur aðalrödd, og Kate St. John, sem leikur á óbó, píanó, sópran, saxófón og syngur með meiru. Sú síðasttalda gefur hljómsveitinni ansi skemmtilegan blæ með þeim hljóðfærum sem hún leikur á auk þess sem strengjaútsetningar setja mikinn svip á tónlist hljómsveitarinn- ar. Tónlistin er á heildina litið nokkuð gamaldags í uppbyggingu og stíl en um leið mjög fjölbreytt þannig að platan er sífellt að koma manni á óvart þó svo hlustað hafi verið á hana æði mörgum sinnum. Og svo eru perlurnar sem valda hrollinum fyrrnefnda en þær eru nokkrar á plötunni og eiga það sam- eiginlegt að vera fyrst og fremst gull- fallegar melódíur en mig grunar að heillandi óbóleikur eigi sinn þátt í því að gera þær jafn ómótstæðilegar og raun ber vitni. Óbóið skapar visst klassískt yfirbragð án þess að ég sé þar með að segja að klassískt yfir- bragð sé nauðsynlegt til að gera lag gullfallegt í mínum eyrum. Þetta fer bara einkar vel saman í þessu tilviki. Lögin sem valda hrollinum eru Life In A Northem Town, This World og The Party en það fyrstnefnda hefur heyrst víða enda nýlega mjög vinsælt í Bandaríkjunum. Önnur lög á plötunni standa þessum þrem lítt að baki og ætti lesendum þá að vera ljóst um hvílíkan kjörgrip er hér að ræða. Ég held að það þurfi ekki að segja meira um þessa plötu. Hlustun er hóli ríkari. -SþS- CRUZADOS ■ CRUZADOS Beturmá efduga skal Ekki veit ég til að Cruzados hafi áður látið í sér heyra á plötu né hvort þeir séu komnir til að vera. Þetta er spænskættuð hljómsveit en ekki er að heyra að þjóðlegra áhrifa gæti í tónlistinni. Eitt lag er að vísu sungið á spænsku, Flor de mal, og sker það sig nokkuð frá öðrum lögum plötunn- ar. Það væri í sjálfu sér engin eftirsjá að því þó Cruzados sneru sér að öðru en tónlist, þá stæði platan, er ber nafn hljómsveitarinnar, sem lítill minnisvarði meðal annara lítilla minnisvarða sem enginn tekur eftir. En Cruzados er óráðið dæmi, það er ekki laust við að þeir hafi einhvem neista sem segir mér að þeir ætli áfram. En það verður þá að blása kröftuglega í þann neista því það er nokkuð langt írá því að platan sé góð. Ég væri að vísu ekkert hissa þó hún höfðaði til þeirra sem hafa án- ægju af að hlusta á þungarokk, hún er á þeim slóðum, en samt er eins og Cruzados viti ekki alveg hvaða öngli þeir eigi að beita. Þó laglínumar séu í anda þungarokkssveita - fremur bragðdaufar - er krafturinn langt frá því nógu mikill til að vera hrífandi. Fyrir nýja hljómsveit er þessi plata engan veginn nógu afgerandi, annað hvort verður Cruzados tvö að vera i margfalt betri eða það þýðir ekkert að vera að þessu. Ég mun aldrei setja hana á fóninn minn aftur, ekki það að hún sé svo léleg að ég hafi þjáðst af að hlusta á hana, heldur bara af því það era til svo ótal margar plötur með svipaða tónlist sem era margfalt betri. Hljóðfæraleikurinn er til dæmis ekki nema rétt sæmilegur - þó það heyrist lifandis ósköp í gítarnum er greinilega enginn snillingur sem slær strengina. Söngurinn er að vísu ágætur, ekki ólíkt því að Graham Parker sé við hljóðnemann, en það er líka helsta hrósyrðið sem ég vil hafa um Cruzados. -JSÞ. POPP- SMÆLKI Sæl oy blessuð. . . Þær dapurlegu fréttir hafa borist frá Bandarikjunum aó hljóm- borðsleikari og eimi af upp- haflegu stofnendum hljóm- sveitarinnar The Band, Ric- hard Manuel, sé látinn. Manuel stytti sér aldur án nokkurrar sýnilegrar ástæðu, á hóteli i Florida. The Band hafði nýlega hafið störf aó nýju og var á hljóm- leikaferð sem gekk glimr- andi vel þegar þessi hörmu legi atburður átti sér stað. .- . Pete De Freitas trommu- leikari Eclio And The Bunnymen hefur yfirgefið hljómsveitina og hefur Blair Cunningham fyrrum trymhill í Haircut 100 tekið sæti hans. Engar sérstakar ástæður hafa verið gefnar upp fyrir brottför De Freitas,- . . Málaferli út af nafni hljómsveitarinnar Status Quo eru nú til lykta lcidd. Upphaf málsins var brottför bassaleikarans Alan Lan- cester úr hljómsveitinni fyrir nokkru en hann sagðist eiga nafnið Status Quo og hann- aói þeim Francis Rossi og Rick Parfitt að nota það' Framar. Þeir voru hins vegar ekki á þeim buxunum aö gefa sig og fóru i mál við Lancaster. Dómur féll á dögunum á þann veg að Rossi og Parfitt fá að halda nafninu. . . Nýju stjörnurnar í Bretlandi Sigue Sigue Sputnik fá ekki alls staðar jafn góóar móttökur. Á tón- leikum nýlega i Reading fóru segulbönd hljómsveitarinnar i flækju og til aó bjarga þvi sem bjargað varó reyntlu liðsmenn hljómsveitarinnar að liafa ofanaf fyrir áheyr- endum með vafasömum bröndurtim um svertingja og aðra minnihlutahópa. Eitt- hvað féll húmorinn i grýttan jarðveg því áheyrendur grýttu ýmsu lausleyu í hljómsveitina svo sem eins ag flöskum og fleiru nær- tæku. Einn hljómsveitar- manna svaraði i söntti mynt og afleiðingin var kæra i/egna þess aó sá er fyrir flöskunni varð þurfti um þrjátiu! spor í ennið á næstu saumastofu. Hafi honurn t/eriö í nöp við hljómsveitina á eftir gat hann tekiö gleði sína aftur eftir hljómleika SSS i Coventry en þá var dæminu snúið við og einn liðsmanna SSS fluttur á saumastofuna eftir að liafa skallað flösku. Hann þurfti sjö spor. . . Ekki er ein báran stök hjá eymingja Andrew V Ridgeley. Vart hafði liann misst djobbió i Wham! er hann missti djohbið sem kappakstnrsbi Istjóri hjá Renaultfyrirtækinu. Kunnug- ir segja að forstjórunum hafi borist viógerðareikningur- inn . . Ekki nieir um það. . .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.