Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Qupperneq 33
DV. FOSTUDAGUR 21. MARS1986. 45’ Sviðsljós Sviðsljós Ef hægt er að tala um hundrað prósent sveiflu þá var þessi hundrað og þrjú prósent hjá Harris og félögum. Frá vinstri: bassaleikarinn Ralph Armstrong, tommarinn Sherman Ferguson og Eddie Haris. Akureyri: Rafinagnaóur Eddie Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: Jassarinn og grínistinn Eddie Harris fékk frábærar undirtektir þegar hann lék í Alþýðuhúsinu á Akureyri síðastliðið sunnudags- kvöld. Margir voru mættir til að klappa, sneisafullur Alli hlustaði á snillinginn og félaga hans, bassa- leikarann Ralph Armstrong og trommarann Sherman Ferguson. Tónleikarnir á Akureyri voru fyrstu tónleikar Harris í þessari Islands- heimsókn hans. Hann lék kvöldið eftir í Broadway og síðar í Vest- mannaeyjum. Jass í heimsklassa og írábærir náungar, Harris og félagar. Það fer í verra ef prestinum vefst tunga um tönn... Brúðarkjóllinn á meðfylgj- andi myndum er danskur og þykir kannski heldur í djar- fara lagi. En fyrir þá sem eru að byggja og hafa lítil aurar- áð er það þó huggun harmi gegn að efnið er ekki dýrt í Efþú baxa ... en hann er þó heppinn að þurfa ekki að segja margt að lokum. alklæðnað af þessu tagi og eftir athöfnina má endur- nýta ,,átfittið“ í slaufur, gluggatjöld og borða af hin- um ýmsu stærðum og gerð- um. Sviðsljós Ólyginn sagði... Hólmfríður Karlsdóttir er isköld eins og fósturjörðin að sögn danska blaðsins Se og Hor. Augun sem iskristallar og tenn- urnar hvitar sem nýfallin mjöll. Að vera fegursta kona heims er henni eingöngu hrein og klár viðskipti segir sama blað og bætir við að þetta hafi hún lært á undanförnum mánuðum. Og svo á hún lika kærasta sem les lög heima á íslandi og er öfund- sverðasti karlmaður i veröldinni - þeir eru með þetta allt á hreinu frændur okkar á flatlendinu. John Forsythe hoppaði þegar hann fann heilan flokk málara í svefnherberginu sinu einn daginn þegar hann kom heim úr vinnunni. Hvað þeir voru að gera þarna? Auðvitað að mála kytruna í hólf og gólf. Karlin- um líkaði ekki bara illa við nýja litinn heldur vildi ráða sjálfur hvenær og hvernig svefnstaður hans væri farðaður. Þegar leið á daginn kom nágranninn á næsta horni og hirti til sin vinnuflokkinn, sem átti víst upphaflega að snyrta til hjá honum en ekki Forsythe. Nú á leikarinn frægi von á málur- unum aftur fijótlega - til þess að mála svefnherbergið aftur í uppr- unalega litnum. Paul Anka á að minnsta kosti einn aðdáanda ennþá. Gamla poppkempan söng á sviði í Las Vegas í vetur og meðal áheyrenda var arabiskur olíusjeik. Hann féll kylliflatur fyrir hljóðunum i Anka og sendi þakk- argjöf að loknum hljómleikunum - eitt stykki sportbíli á litlar tiu milljónir króna. Paul gamli Anka kom ekki upp nokkru hljóði lengi á eftir. Fiskréttir frá kr. 160,- Kjötréttir frá kr. 200,- OPIÐ KL. 8-21.45 ALLA DAGA. Smurbrauðstofqn BJORNINN SMURT BRAUÐ OG SNITTUR - Njálsgötu 49 - Sími 15105. ötluvv Laugaveg 34a-Sími 14165 auglýsir: Kjötbær er ekki einungis góð kjötbúð, hjá okkur færð þú allar mjólkurvörur, brauð, fisk, ávexti, grænmeti og flest annað er viðvikur matargerð. í hádegi bjóðum við upp á 6-8 Ijúffenga rétti sem þú getur borðað á staðnum eða tekið með út. Kjötbær, Laugavegi 34, sími 14165. Opið laugardaga til kl. 2. ^RARIK BL. ^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS RAFEINDAVERKFRÆÐINGUR/ -TÆKNIFRÆÐINGUR Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir aö ráða, rafeinda- menntaöan starfsmann til starfa á rafeindadeild stofn- unarinnar. Starfið er aðallega fólgið í áætlanagerð, hönnun og verkumsjón með framkvæmdum og tæknilegum rekstri á fjargæslu- og fjarskiptakerfum. Starfið býður upp á fjölbreytt og áhugaverð verkefni við rafeinda- búnað, tölvur og hugbúnað almennt. Leitað er að manni með próf í rafeindaverkfræði/- tæknifræði eða sambærilega menntun. Upplýsingar um starfið veitir deildarverkfræðingur rafeindadeildar RARIK í síma 91-17400. Umsóknum, er greini menntun og fyrri störf, ber að skila til starfsmannadeildar, Laugavegi 118, Reykjavík, fyrir 10. apríl 1986. Rafmagnsveitur ríkisins. Laugavegi 118,105 Reykjavík. í G. im Auglýsendur, athugið. Síðasta blað fyrir páska kemur út MIÐVIKU- DAGINN 26. MARS og fyrsta blað eftir páska kemur út ÞRIÐJUDAG- INN l.apríl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.