Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1986, Page 35
DV. FÖSTUDAGUR 21. MARS1986. 47 Föstudagur 21.mars Sjónvaip 19.25 Brúðuleikur - Endursýn- ing. Höfundar og flytjendur Sigríður Hannesdóttir og Helga Steffensen. 19.40 Björninn og refurinn. Fimmti þáttur. Teiknimynda- flokkur í fimm þáttum. I>ýðandi Trausti Júlíusson. (Nordvision Finnska sjónvarpið.) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Frcttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Unglingarnir í frumskóg- inum. Umsjónarmaður Jón Gústafsson. Stjórn upptöku Gunnlaugur Jónasson. 21.10 Knstljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Sonja B. Jónsdóttir. 21.45.00 Sá gamli (Der Alte). Nýr flokkur-Fyrsti þáttur. Þýsk- ur sakamálamyndaflokkur í þrettán þáttum. Aðalhlutverk: Siegfreid Lowitz og Michael Ande. „Sá gamli“ hefur ekki síður notið vinsælda í heima- landi sínu en Derrick, starfs- bróðir hans. þótt hann beiti ekki alveg sömu aðferðum til að ráða fram úr flóknum málum. Þýð- andi Kristrún Þórðardóttir. 22.40 Seinni fréttir. 22.45 Bjarnarey. (Bear Island). Bresk/kanadísk bíóm.vnd frá 1979, gerð eftir samnefndri bók eftir Alistair McLean. Leikstjóri Don Sharp. Aðalhlutverk: Don- ald Sutherland, Vanessa Redgrave, Richard Widmark, Christopher Lee, Lloyd Bridges og Barbara Parkins. Vísinda- menn við rannsóknir á norður- slóðum komast í hann krappan. Margt bendir til að í hópnum séu útsendarar nasista í annarlegum erindagjörðum. Þýðandi Björn Baldursson. 00.50 Dagskrárlok. Útvarprásl 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 14.00 Miðdegissagan: „Á ferð um ísrael vorið 1985“ Bryndís Víglundsdóttir segir frá (5). 14.30 Sveiflur - Sverrir Páll Er- lendsson. (Frá Akureyri) 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a. Píanósónata í A-dúr op. 120 eftir Franz Schubert. Ronald Turini leikur. b. Ótókvartett í F-dÚr K. 370 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Iíinleikarar úr Fíl- harmóníusveit Berlínar leika. 17.00 Helgarútvarp barnanna. Stjórnandi: VemharðurLinnet. 17.40 Úr atvinnulifinu - Vinnu- staðir og verkafólk. Umsjón: Hörður Bergmann. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.35 Tilkynningar. 19.45 Þingmál. Umsjón: Atli Rúnar Halldórsson: 19.55 Daglegt mál. örn Úlafsson . flytur þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveinsaon kynnir feril Hafliða Hallgrímssonar. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgun- dag8Íns. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma (47) 22.30 Kvöldtónleikar. a. „Frau-. enliebe und Leben", lagaflokkur op. 42 eftir Rotert Schumann. Sigríður Ella Magnúsdóttir syngur; Ólafur Vignir Alberts- son leikur á píanó. b. Tilbrigði eftir Witold Lutoslawski við stef eftir Niccolo Paganini. Gísli Magnússon og Halldór Har- aldsson leika á tvö pt'anó. 23.00 Heyrðu mig eitt orð. Umsjón: Kolbrún Halldórsdóttir. 24.00 Fréttir. 00.05 Djassþáttur - Jón Múli Árnason. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á RÁS2til kl. 03.00. ÚtvaiprásII 14.00 Pósthólfið í umsjá Valdísar Gunnarsdóttur. 16.00 Léttir sprettir. Jón Ólafs- son stjórnar tónlisUirþætti með íþróttaívafi. Útvarp Sjónvarp Bíómynd kvöldsins í sjónvarpinu, Bjarnarey, er gerð eftir samnefndri sögu eftir Alistair McLean. Sjónvarpið kl. 22.45 BJARNAREY í kvöld verður sýnd bresk-kanadísk bíómynd frá 1979, Bjarnarey. Er hún gerð eftir samnefndri bók eftir Alista- ir McLean. McLean hefur notið gifur- legra vinsælda hér á landi sem reyf- arahöfundur og bækur hans undan- tekningarlaust verið metsölubækur fyrir hver jól. Hafa margar sögur hans verið kvikmyndaðar og notið mikilla vinsælda. Bjamarey er afskekkt heimskauta- eyja þar sem vísindamenn frá Sam- einuðu þjóðunum starfa við lofts- lagsrannsóknir. Þar var kafbátahöfn Þjóðveija í seinni heimsstyrjöldinni en nú er þessi óbyggilegi staður hluti af vamarkerfi Nato. I vísindamannahópnum eru margir með leyndardómsfulla fortíð: Þar er amerískur líffræðingur, Frank Lans- ing (Donald Sutherland), Hedi Lind- quist, (Vanessa Redgrave) sem er norskur læknir. Prófessor Otto Ger- ran (Richard Widmark) sem er þýskur og foringi hópsins. Einnig er þarna pólskur prófessor sem Christoper Lee leikur ásamt fleira fólki. Fljótlega fer ýmislegt merkilegt að gerast þarna í einangruninni og dul- arfullir atburðir eiga sér stað. Margt bendir til þess að þama séu útsendar- ar nasista í annarlegum erindagjörð- um. Kemur þá ýmislegt í ljós varðandi fortið leiðangursmanna. Frægir leikarar Það er mikið um fræga leikara í þessari mynd enda hefur það verið einkennandi fyrir myndir eftir sögum McLean að þar er alltaf mikið leik- araval. Hins vegar hafa þær ekki alltaf tekist sem skyldi einhverra hluta vegna. Frægust er sjálfsagt Arnarborgin en það var mjög góð spennumynd. Donald Sutherland, sem leikur í myndinni, er frá Kanada og varð frægur í lok sjöunda áratugarins. Hann hefur leikið í mörgum frægum myndum enda er hér úrvalsleikari á ferð. Hann sló fyrst í gegn i stríðs- myndunum M.A.S.H. og Kellv's Heroes. Síðan lék hann m.a. í Klute og Don’t Look Now. Einnig lék hann í Nálarauganu sem var sýnd hér í kvikmyndahúsi nýlega. Leikara eins og Vanessu Redgrave, Richard Widmark og Christopher Lee ætti ekki heldur að þurfa að kynna. Kvikmyndahandbókin gefur mvnd- inni hálfa stjörnu sem er ekki sérstök einkunn. En þó ætti að vera í lagi að horfa á mvndina ef fólk hefur ekkert annað að gera. -SM J Sjónvarpið kl. 21.45: Sá gamli - nýr leynilögreglumaður í kvöld kemur nýr leynilögreglumað- ur til að stytta okkur stundir á föstu- dagskvöldum. Það er orðinn fastur liður að hafa sakamálaþætti á föstu- dagskvöldum og er það ágætur siður en leynilögregluþættir eru mjög vin- sælt sjónvarpsefni. Þessi nýi þáttur fjallar um lögreglu- mann sem gengur undir nafninu Sá gamli og er hann samlandi okkar ágæta félaga, Derricks. Hefur hann að sögn notið svipaðra vinsælda og Derrick þó hann beiti ekki sömu aðferðum við að leysa gáturnar. Þetta er þrettán þátta röð og aðalhlutverk- in eru leikin af þeim Siegfried Lowitz og Michael Ande. Sá gamli heíúr aðstoðarmann eins og Derrick og Holmes en aðstoðarmennirnir eru ekki síður mikilvægir fyrir uppbygg- ingu myndarinnar. Þessi íyrsti þáttur heitir Liðhlaup- inn. Segir hann frá manni einum sem vingast við prófessorsdóttur. Hann er glæpamaður en vill hætta því þegar hann kynnist þessari stúlku sem hann er mjög hrifinn af. En það er ekki svo auðvelt að losna út úr því umhverfi sem hann hefur lifað í til þessa. Menn ganga víst ekki svo auðveldlega út úr þessum félagsskap og gengur honum illa að losa sig við sína fyrri félaga. Kemur að því að sá gamli verður að hefja afskipti. Það er Kristrún Þórðardóttir sem þýðir þættina og segir hún að þeir séu mjög spennandi og skemmtilegir. Atburðarásin er hröð en hver þáttur ersjálfstæður. -SMJ < ' -m. Það er leikarinn Siegfried Lowitz sem leikur þann gamla sem heitir reyndar Erwin Koster.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.