Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1986, Qupperneq 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986.
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986.
17
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrottir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
HM-styttan
í Mexíkó
HM-styttan fræga i knattspyrn-
unni, sem vegur fimm kíló, úr skíra
gulli, er komin til Mexíkó. Fulltrúar
FIFA afhentu hana fylkisstjóranum
i Puebla-fylki, GuiIIermo Morales,
við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í
Puebla. Sú borg er 120 km austur af
Mexíkó-borg og þar verða höfuð-
stöðvar ítala þegar þeir verja heims-
meistaratitil sinn.
Styttan, sem er mctin á meira en
60 þúsund dollara eða um 2,5 milljón-
ir króna, verður til sýnis í öllum átta
borgunum í Mexíkó, þar sem HM-
leikir verða háðir. Hún veröur síðan
afhent sigurvegurum heimsmeist-
arakeppninnar eftir úrslitaleikinn á
Aztee-leikvanginum mikla í Mexíkó-
borg 29.júní. hsím
Víkingur í
undanúrslit
- á Reykjavíkurmótinu og
leikur þar við KR
Víkingur sigraði ÍR, 2-1, 6 Reykja-
víkurmótinu í knattspymu á sunnu-
dag. Hefur þar með sigrað í sínum
riðli á mótinu. Það þýðir, ef að líkum
lætur, að Víkingur leikur við KR í
undanúrslitum, Fram við Val. Leik-
imir í undanúrslitum verða 2. og 4.
maí en úrslitaleikurinn 8. maí.
Þeir Jón Bjami Guðmundsson og
Andri Marteinsson skoruðu mörk
Víkings gegn ÍR, þriðji sigur Víkings
í riðlinum. Liðið hafði áður sigrað
Val og Ármann. í kvöld kl. 20.30
leika Fylkir og KR í mótinu á Hallar-
flötinni. hsím
Skíðadeild
Ármanns 50 ára
Nú i ár minnast Ármenningar 50
ára afmælis skíðadeildar sinnar. Nú-
verandi skíðaaðstaða Ármenninga er
i Kóngsgili i Bláfjöllum. Þar hafa
Ármenningar byggt upp aðstöðu sína
og starfrækja þeir þar tvær fuHkomn-
ar skíðalyftur og hafa auk þess komið
upp einni fullkomnustu aðstöðu til
mótahaids sem fyrirfinnst á landinu.
Núverandi formaður skíðadeildar
Ármanns er Ómar Kristjánsson end-
urskoðandi. -SMJ
..Ég stefni á fast sæti
í aðalliði næsta vetur“
Það á ekki af Trevor Francis að
ganga. í leik Napoli og Samdoria á
sunnudag í ítölsku 1. deildinni Na-
poli sigraði 3-0 - fékk Francis mikið
högg í andlitið. Kinnbeinið brákaðist,
jafnvel um brot að ræða. Nær engar
líkur eru á að Francis leiki með cnska
landsliðinu á miðvikudag gegn Skot-
um á Wembley en hann hafði verið
valinn í enska Iandsliðshópinn eftir
langa fjarveru, mest vegna meiðsla.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem
dettur út úr hópnum. Áður þeir Bry-
an Robson, Gary Lineker og Terry
Fenwick. hsím
• Trevor Francis.
- leikur í marki Grindvíkinga í 3. deildinni í sumar
„Það er rétt að ég hef ákveðið að
leika með Grindvíkingum í 3. deild-
inni í sumar. Auk þess að leika með
liðinu mun ég aðstoða við þjálfun
yngri flokka félagsins," sagði Ög-
mundur Kristinsson, markvörður í
knattspyrnu, í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Ögmundur er þekktur markvörður
og nú undanfarið hefur hann þjálfað
markverði hjá 1. deildar liði Breiða-
bliks. Það mun hann gera til 15.
maí. Ögmundur og félagar léku í
fyrrakvöld gegn Höfnum í Suður-
nesjamótinu í knattspyrnu og sigraði
Grindavík, 2-0, og hélt Ögmundur
þar með hreinu í sínum fyrsta leik
með Grindvíkingum. Mikill hugur
Atvinnumenn á
ólympíuleikum?
Sú hugmynd að heimila atvinu-
mönnum að vera með á ólympíleik-
unum verður aðalumræðuefni á
fundi fulltrúa þátttökuþjóðanna sem
verður í vikunni í Seoul í Kóreu.
Ef þessi tillaga nær fram að ganga
þá verða þetta mestu breytingar sem
hafa orðið í 90 ára sögu ólympiulei-
kanna. Vonast alþjóðlega ólympíu-
nefndin til þess að þetta verði til að
auka enn frekar á virðingu og vin-
sældir ólympíuleikanna. Með þessu
yrði ekkert vafamál um það hvort
bestu íþróttamennirnirkepptu á leik-
unum. Geta þá áhorfendur búist við
því að sjá menn eins og Maradonna
og Boris Becker keppa á ólympíuleik-
unum.
Aðalandstaðan gegn þessum hug-
myndum kemur frá austantjalds-
löndunum sem viðurkenna ekki
atvinnumennsku meðal sinna
íþróttamanna. En þrátt fyrir and-
stöðu þeirra er talið líklegt að
hugmyndirnar nái fram að ganga þó
þær taki trúlega ekki gildi fyrr en
eftir vetrarólympíuleikanna í Kan-
ada 1988. -SMJ
ér í þeim Grindvíkingum og ætla
þeir sér stóra hluti í 3. deildinni í
sumar. Koma Ögmundar, sem er 32
ára og hefur mikla reynslu að baki,
mup örugglega styrkja lið UMFG
mikið og verður fróðlegt að sjá
hvernig Ömma og félögum gengur í
sumar.
• Þess má geta að Gunnlaugur
Hreinsson verður varamarkvörður
hjá Grindvikingum í sumar en hann
hefur tekið fram skóna á ný eftir
hvíld í fjögur ár frá knattspyrnu.
-SK
• Ögmundur Kristinsson, hinn
þekkti markvörður í knattspyrn-
unni, hefur skipt um félag og leikur
í marki Grindvíkinga í sumar.
Noregur náði
fram hefndum
Norska körfulandsliðið sigraði það íslenska,
85-89, í felulandsleik í Keflavík í gærkvöldi
Frá Magnúsi Gíslasyni, blaða-
manni DV á Suðurnesjum:
Norska landsliðið í körfuknatt-
leik náði að koma fram hefndum í
gærkvöldi er landslið íslands og
Noregs í körfu mættu í felulands-
leik í Keflavík. Sem kunnugt er
sigraði Island Noreg á eftirminni-
legan hátt í Laugardalshöll á
laugardag og Norðmenn verða þar
með áfram í c-keppninni.
íslenska liðið var greinilega ekki
komið niður á jörðina því Norð-
menn komust í 1-12. Flestum
lykilmönnum íslenska liðsins var
skipt út af og yngri og óreyndari
leikmenn komu í þeirra stað og
stóðu sig mjög vel, náðu þeir að
minnka muninn verulega þannig
að staðan í leikhléi var 44-49 Nor-
egi í vil.
Minnstur varð munurinn í byrjun
síðari hálfleiks, 48-51, en síðan sigu
þeir norsku aftur framúr og sigr-
uðu örugglega, 85-89.
Stig íslands: Guðni Guðnason 17,
Valur Ingimundarson 17, Pálmar
Sigurðsson 14, Páll Kolbeinsson 9,
Símon Ólafsson 7, Torfi Magnússon
5, Þorvaldur Geirsson 4, Tómas
Holton 4, Ragnar Torfason 4, Jón
Kr. Gíslason 2 og Birgir Mikaelsson
2.
Haakon Austerfjord var stigahæst-
ur Norðmanna með 26 stig en risinn
Georg Posti skoraði 20 stig. Jón
Otti Ölafsson og norski dómarinn,
Robert Person, dæmdu leikinn og
var sá norski afburða lélegur eins
og í öllu Evrópumótinu. -SK
• Pal Csernai, fyrrum þjálfari Ás-
geirs Sigurvinssonar hjá Bayem
Munchen, var rekinn frá Dort-
mund.
Pal Csernai
rekinn frá
Dortmund
Eftir að Borussia Dortmund tapaði
fyrir Stuttgart, 4-0, um helgina ák-
vað stjórn félagsins að reka þjálfara
liðsins, Ungverjann Pal Cscrnai.
Csernai, sem er orðinn 53 ára, var
þjálfari hjá Bayern Munchen á með-
an Ásgeir Sigurvinsson var leikmað-
ur þar. Dortmund hefur gengið
afleitlega undir hans stjórn og er lið-
ið nú í þriðja neðsta sæti og er í
mikilli fallhættu. Csernai er sjötti
þjálfarinn sem er rekinn úr Bunde-
sligunni i vetur. -SMJ
Gaiy Lineker
markahæstur
Það er hinn marksækni framherji
Everton og enska landsliðsins, Gary
Lineker, sem er markahæstur í ensku
fyrstu deildinni. Hefur hann skorað
34 mörk í vetur. Næstir á eftir honum
eru þeir Ian Rush hjá Liverpool og
John Aldridge hjá Oxford með 29
mörk. Frank McAvennie hjá West
Ham hefur síðan skorað 26 mörk.
{ annarri deild hefur Kevin Drin-
kcll hjá Norwich skorað 23 mörk,
Keith Bertschin hjá Stoke hefur
skorað 21 mark og þeir Frank Bunn
hjá Hull og Keith Edwards hjá
Sheffield United hafa skorað 20
mörk.
í Skotlandi er Steve Cowan hjá
Hibernian markahæstur með 26
mörk en þeir John Robertson hjá
Hearts og Ally McCoist hjá Rangers
hafa skorað 25 mörk. -SMJ
Brisbaine
býðurí
ólympíu-
leikana
árið 1982
Nú er ljóst að mikill slagur vcrður
um að halda sumarólympíuleikana
1992. Þegar hafa sex borgir sent inn
tilboð um að halda þá. Meðal þeirra
eru fjórar borgir i Vestur-Evrópu:
Amsterdam, Barcelona, Birming-
ham og Paris. Þar að auki hefur
Belgrad sótt um þá. Nú hefur ástr-
alska borgin Brisbaine sent inn tilboð
í leikana og hefur það vakið tölu-
verða athygli en hingað til hefur
verið talið liklegast að Barcelona fái
þá.
Brisbaine hefur boðist til að reiða
fram 20 milljónir dollara til að greiða
niður ferðakostnað þátttökuþjóð-
anna og eru borgaryfirvöld í Bris-
baine staðráðin í að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að fá leikana.
Alþjóðlega ólympíunefndin mun
taka ákvörðun i október um hverjir
fá leikana. -SMJ
- segir Sigurður Jónsson hjá ShefHeld Wednesday
• Larry Holmes, endanlega hættur.
- sagði þulur BBC eftir að West Ham hafði gersigrað New*
castle, 8-1, á Upton Park í gærkvöldi. Newcastle þurfti að nota
þrjá markverði í leiknum. West Ham eygir enn möguleika á tHflin-
um í Englandi í fyrsta skipti
Ballesteros og
Langer hnífjafnir
- á nýjasta listanum yfir bestu golfleikara heims
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, blaða-
manni DV í Englandi:
Leikmenn Lundúnaliðsins West
Ham voru í miklu stuði í gærkvöldi
er þeir léku gegn Newcastle í 1. deild
ensku knattspyrnunnar á heimavelli
sínum, Upton Park. West Ham sigr-
aði, 8-1, og að sögn útvarpsmanns
hjá BBC áttu leikmenn West Ham
að geta skorað ein átján mörk í leikn-
um. Þetta var ekki einungis söguleg-
ur leikur vegna allra markanna. Allt
gekk á afturfótunum hjá Newcastle
og liðið þurfti að nota þrjá mark-
menn í leiknum en slíkt er nánast
einsdæmi í knattspyrnu.
Martin Thomas, markvörður
Newcastle, meiddist í fyrri hálfleik
og hann gat ekki byrjað síðari hálf-
leikinn. Chris Headworth fór i
markið og stóð sig eins og hetja, fékk
aðeins á sig eitt mark. Hann meidd-
ist síðan og útherjinn Peter Beards-
ley fór í markið og fékk á sig þrjú
mörk.
Miðvörðurinn Alvin Martin með
þrennu
Jí'iðvörðurinn Alvin Martin skor-
aði þrjú mörk fyrir West Ham í
gærkvöldi. Martin skoraði fyrsta
markið, Ray Stewart, ekki úr víta-
spyrnu, mark númer tvö, Neil Orr
McAvennie, sitt 27. mark á tímabil-
inu, og síðasta mark West Ham
skoraði Alvin Martin úr vítaspyrnu
og var það þriðja mark hans í leikn-
um. í lokin náði síðan Billy White-
hurst að minnka muninn í 8-1 fyrir
Newcastle og þar við sat.
West Ham á enn möguieika
West Ham á enn möguleika á að
vinna Englandsmeistaratitilinn í
fyrsta skipti í sögu félagsins. Liðið
hefur nú hlotið 72 stig í 37 leikjum.
Staða toppliðanna er annars þannig:
Liverpool....39 23 10 6 81-37 79
Everton....38 24 7 7 78-38 79
WestHam ..37 22 6 9 66-34 72
Man. Utd ....40 21 9 10 65-35 72
Chelsea....38 20 11 7 55-45 71
Ef West Ham nær að vinna þá leiki
sem liðið á inni á toppliðið Liverpool
nær það 78 stigum en þess má geta
að síðasti leikur West Ham á keppn-
istímabilinu verður gegn Everton á
Goodison Park í Liverpool.
• Einn annar leikur fór fram í gær-
kvöldi i 1. deild ensku knattspyrn-
unnar. Watford og Nottingham
Forest skildu jöfn á heimavelli Wat-
ford, hvort lið skoraði eitt mark.
John Barnes skoraði mark Watford
en Nigel Clough skoraði fyrir Forest.
-SK
Spánverjinn Severiano Ballesteros
og Vestur-Þjóðverjinn Bernhard
Langer eru nú jafnir i efsta sæti á
lista yfir bestu kylfinga heimsins sem
birtur var í gær. Báðir hafa þeir hlot-
ið 993 stig.
Þeir Ballesteros og Langer eru í
nokkrum sérflokki. Ástralíumaður-
inn Greg Norman er nú kominn í
þriðja sætið með 752 stig en fjórði í
röðinni er Bretinn Sandy Lyle með
740 stig. Gamla kempan, Jack Nick-
laus, er sem stendur í 20. sæti með
443 stig. Efsti Bandaríkjamaðurinn
er Mark O’Meara með 696 stig 1
fimmta sæti. Næstu menn eru:
6. Tom Watson, USA.........684 stig
7. Tommy Nakajima, Japan.....638-
8. Corey Pavin, USA..........614 -
9. Hal Sutton, USA...........601
10. CalvinPeete, USA..........600-
11. Lanny Wadkins, USA.......572 -
12. Curtis Strange, USA......548 -
13. Andy Bean, USA...........526 -
14. Payne Stewart, USA.......509 -
15. Tom Kite, USA............505 -
16. Fuzzy Zöller, USA........496 -
17. Craig Stadler, USA.......459 -
18. Isao Aoki, Japan.........458 -
19. John Mahaffey, USA........452-
20. Jack Nicklaus, USA.........443-
• Severiano Ballesteros og Bern-
hard Langer sjást hér saman eftir
að Langer hafði sigrað í US Masters
keppninni í fyrra. Þessir tveir kylf-
ingar eru í sérflokki í heiminum í
dag eins og fram kemur á listanum
yfir þá bestu hér að ofan. -SK
það þriðja og fjórða markið í fyrri
hálfleik var sjálfsmark fyrirliða
Newcastle, Glenn Roeders.
West Ham hélt uppteknum hætti í
síðari hálfleiknum og skorði liðið þá
einnig fjögur mörk áður en New-
castle náði að skora sitt eina mark
í leiknum. Alvin Martin skoraði
fímmta markið, Paul Goddard það
sjötta, sjöunda markið gerði Frank
• Alvin Martin, miðvörður West
Ham, skoraði þrjú mörk fyrir West
Ham í gærkvöldi er lið hans rót-
burstaði Newcastle, 8-1, á Upton
Park.
Holmes tókst ekki að
endurheimta titiiiinn
- tapaöi öðru sinni fyrir Spinks í hringnum |
Larry Holmes, einum mesta
hnefaleikara heims fyrr og siðar,
mistókst að endurheimta heims-
meistaratitilinn í þungavigt í Las
Vegas aðfaranótt mánudags. Tap-
aði á stigum fyrir heimsmeistaran-
um Mickael Spinks í frekar jöfnum
leik. Annar tapleikur Holmes sem
atvinnumaður. Hann missti heims-
meistaratitilinn til Spinks sl. ár
eftir að hafa unnið 48 leiki sem
heimsmeistari. Vantaði einn sigur
til að jafna met Rocky Marciano,
þess fræga kappa.
Eftir leikinn tilkynnti Holmes að
hann væri nú endanlega hættur
keppni, 18 ára glæsilegum ferli í
hringnum, sem fært hefði honum
yfir 30 milljónir dollara, væri lokið.
Honum hefur gengið vel í lífinu,
nýtt peninga sina vel í viðskiptum.
Hann er kvæntur og á fimm böm.
Hann var þó allt annað en án-
ægður með tapið gegn Spinks.
Taldi sig hafa verið órétti beittan
af dómurunum. Áleit sjálfur - eins
og þjálfari hans - að hann hefði
sigrað í leiknum. Fór á sjúkrahús
eftir leikinn vegna smávægilegra
meiðsla og viðurkenndi að þar
hefði hann grátið í fyrsta skipti á
ferli sínum. Ekki vegna meiðslanna
„heldur vegna þess hve ég hafði
lagt hart að mér, fórnað miklu en I
síðan ekki verið metinn af því sem _
ég gerði í hringnum," eins og hann |
sagði síðar við fréttamenn. _
Spinks er 29 ára og hefur ekki |
tapað í 29 leikjum sem atvinnu- ■
maður. Varð fyrsti hnefaleikamað- ■
urinn í léttþungavigt til að hljóta ■
heimsmeistaratitilinn í þungavigt. ®
Hefur afsalað sér heimsmeistara- ■
titlinum í þungavigt. hsím _
„West Ham átti að
skora átján mörk4 4
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, blaða-
manni DV í Englandi:
„Ég veit að sú knattspyrna sem
Sheffield Wednesday leikur er ekki
mikið fyrir augað. Við leikmennirnir
höfum rætt um það okkar á milli að
við þyrftum að æfa betur samspilið i
stað endalausra kýlinga," sagði Sig-
urður Jónsson, knattspyrnumaður
hjá enska liðinu Sheffield Wednes-
day, i samtali við DV í gærkvöldi.
Sigurður hefur undanfarnar tvær
vikur verið í gifsi vegna meiðsla á
kálfa en ætlar að reyna að byrja að
æfa á ný í dag. „Því er ekki að neita
að ég hef verið óheppinn með meiðsli.
En ég kvarta ekki á meðan ég tek
framförum. Mér finnst ég hafa
styrkst mikið líkamlega frá því ég
kom hingað. Ég kann mjög vel við
mig hér og stefni ótrauður á fast
sæti í liðinu á næsta keppnistímabili.
Ef það tekst hins vegar ekki mun ég
sjá til hvað ég geri,“ sagði Sigurður
Jónsson en þess má geta að hann er
samningsbundinn Sheffield Wednes-
day næstu tvö keppnistímabil.
Sigurður hefur lítið leikið með Wed-
nesday í vetur og ljóst er að hann
leikur ekki meira með liðinu á keppn-
istímabilinu sem nú er að ljúka. En
ef meiðslin láta Sigurð í friði ætti
hann að eiga góða möguleika á að
komast i aðalliðið næsta vetur.
-SK
Connors nældi
i milljonirnar
- sigraði á tennismótmu í Japan
Jimmy Connors, USA, sigraði
óvænt á tennismótinu í Tokýo
um helgina. Sigraði Mats Wi-
Iander, Svíþjóð, í úrslitaleiknum,
sem fjórtán þúsund áhorfendur
fylgdust meö. Tvær lotur, 6-4 og
6-0, og Connors hlaut 110 þúsund
dollara í fyrstu verðlaun, 4,5
milljónir króna. Wilander hlaut
70 þúsund dollara, tæpar þrjár
milljónir kr. Ivan Lendl og Stefan
Edberg kepptu einnig á mótinu.
-hsim
Ögmundur til UMFG
• Pálmar Sigurðsson skoraði 14 stig gegn Noregi í Keflavík í gærkvöldi.
Enn slasast
Francis