Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Qupperneq 16
16 DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986. Spurningin Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Ertu farin/n að spá í borgar og sveitarstjórnarkosningarn- ar? Páll Ársælsson deildarstjóri: Nei, ekki neitt. Ég þarf ósköp lítið að spá í þessi mál. Eg held með Dav- íð. Anna Lilja Gunnarsdóttir, starfs- maður Opals: Jú, eitthvað. Ég les blöðin og svo verða kosningafundir á mínum vinnustað. Óðinn Jóhannsson þjónn: Nei. Ég þarf þess ekki. Ég hef þeg- ar gert upp hug minn. Sveinn Björgvinsson tónlistarmaður: Já, það streyma kosningabækling- amir inn um bréfalúguna hjá mér. Enn er ég samt óákveðinn. Stefán J. Sveinsson nemi: Ég hef haft svo mikið að gera við námið að ég hef hreinlega ekkert athugað þessi mál. Haukur Haraldsson deildarstjóri: Já, ég hef setið nokkra kosninga-1 fundi. Ég er búinn að ákveða hvað! ég ætla að kjósa. Hátollaðar hljómplötur Steinar Berg ísleifsson skrifar: Ég reikna með að flestir hafi brosað í kampinn og samglaðst Reyni Pétri Invarssyni, er þeir lásu frétt undir fyr- irsögninni „Keypti 40 hljómplötur" sem birtist í DV 15.maí. Fréttin vakti athygli mína af öðrum ástæðum. Ég ætla ekki að Reyni Pétri hafi verið gert að greiða innflutnings- gjöld eða söluskatt af þessum innflutn- ingi sínum fremur en þeim þúsundum íslendinga sem árlega kaupa tug- þúsundir, jafnvel hundruð þúsunda, hljómplatna og kassettna í útlöndum og koma með inn í landið sem hluta af farangri. Nú vil ég síður en svo fara að draga nafn og persónu Reynis Pét- urs inn í umræður um íslensk tollalög og framfylgd þeirra. En ég get ekki orða bundist við að benda á skaðsemi þeirrar hátollastefiiu sem hljómplötur sæta, eða 75% af innflutningsverði. Augljóst er að verslun á erlendum hljómplötum hefur að mestu verið færð út úr landinu. Þetta hlýtur að vera eðlileg afleiðing langvarandi há- tollastefnu á þessum vöruflokki og aukinna ferða íslendinga til útlanda. Afleiðingin er einnig miklu víðfeðmri og alvarlegri. Fótum hefur verið kippt undan þeim fyrirtækjum sem fyrir nokkrum árum höfðu hljómplötuinnflutning og ís- lenska útgáfu að aðalstarfsemi. Harðast hefur þetta þó komið niður á íslenskri hljómplötuútgáfu, sem er að þróast út í að verða nokkurs konar heimilisiðnaður, þar sem lagahöfund- ur, flytjandi, útsetjarar, upptöku- stjómandi, útgefandi og dreifandi er i flestum tilfellum sami aðilinn. Undir slíkum kringumstæðum er mannlegt og eðlilegt að gagnrýni og gæðakröfur frá hinum margbreytilegu sviðum út- gáfunnar sé í lágmarki. Enda útkoman eftir því í langflestum tilfellum og eng- ir möguleikar að við uppfyllum þær gæðakröfur sem gerðar eru alþjóðlega við slík skilyrði. Það þarf enga reiknimeistara til að reikna út slæma afkomu hinna ís- lensku hljómplötufyrirtækja eða tap ríkisins vegna innflutnings ferðafólks á hljómplötum. Ummerkin blasa all- staðar við. Ákvörðunartaka um lækkun tolla á hljómplötum til sam- ræmis við tolla á hljómflutningstækj- um hlýtur að flokkast undir það sem nefnt er heilbrigð skynsemi sem ég veit að finnst í fjármálaráðuneytinu ef vel er leitað. „Það þarf ekki reiknimeistara til að reikna út slæma afkomu íslenskra hljóm- plötufyrirtækja..." segir Steinar Berg ísleifsson. Aldrei nóg af fótbolta f sjónvarpinu, segir Róbert. Aldrei nóg af fótbolta Róbert Albertsson hringdi: Ég vil mótmæla því sem var sagt á lesendasíðunni um daginn að of mikið væri af fótbolta í íþróttaþættinum hjá Bjama. Það er aldrei nóg af fótbolta í þættinum. Þetta er tvímælalaust vin- sælasta íþróttin hér og þess vegna eðlilegt að sýnt sé mikið af svoleiðis efni. Ég vil einnig mótmæla því sem sagt var að aðstoðarmaðurinn hans Bjama stæði ekki í stykkinu. Þetta er ekki rétt, hann stendur sig mjög vel. íþróttaþættimir em flestir mjög góðir. Skilaboð til sjonvarpsins G.B. hringdi: Mig langar að koma á framfæri þakklæti til sjónvarpsins fyrir að sýna myndina Skilaboð til Söndm annan í hvítasunnu. Ég hef verið sjúklingur í mörg ár og þess vegna ekki átt þess kost að fara í bíó. Það er mjög ánægju- legt þegar sjónvarpið sýnir þessar íslensku myndir sem margar hverjar em mjög góðar. Einnig vil ég þakka sjónvarpinu fyr- ir endursýningamar á leikritum Jökuls heitins. Hann var góður höf- undur og bókin Skilaboð til Söndm, sem myndin byggir á, er lýsandi dæmi um það. Húfulausir kokkar G.R.A. skrifar: Það var sagt í einhverju dagblað- inu um daginn að í bígerð væri veisla ársins, jafhvel aldarinnar. Hún var á vegum hóps matreiðslumanna sem halda úti einhverjum sælkeraklúbbi. Með þessari frétt birtist mynd af nokkrum matreiðslumönnum sem vom að undirbúa lostætið. En viti menn. Það vantaði á kokkana höf- uðfótin. Það er alvarlegur ágalli, sem virðist vera landlægur hér, að matreiðslumenn nota ekki tilskilin höfuðbúnað, þ.e. kokkahúfuna - „La togue du chef‘, aðaleinkenni hins alþjóðlega matreiðslumanns. Ef þetta vantar þá vantar punktinn yfir i-ið. Margir góðir veitingastaðir hafa sprottið upp í seinni tíð og fjöl- breytni hefúr stórum aukist, allt til hins betra. Enn em þó margir van- kantar á þessu sviði. Til dæmis er alveg hætt að bera fram mat, jafhvel á bestu veitingastöðum, nema á diskum sem skellt er á borðið fyrir framan mann svo glymur í borð- plötunni. Dúkurinn er ekki klæddur „filti“ sem á að dempa hljóð. Enn er líka verið að bera fram rauðvínið, gott eða slæmt, á borð gestanna þannig að flöskum er skellt á borðið eftir að úr þeim hefur verið hellt. Ég veit ekki um neinn stað þar sem notaðar em þar til gerðar vínkörfur fyrir rauðvínið. Hvítvín er svo sjald- an borið fram í kæli eða flaska skilin eftir í honum við borð gesta. Margt fleira mætti upp telja sem látið er undir höfuð leggjast vegna kæruleysis í þjónustu. Það er afleið- ing þeirrar miklu spennu sem ríkir hvarvetna i þjóðfélaginu, líka á veit- ingastöðum, þar sem annars ætti að vera fremur afslappað andrúmsloft, bæði hjá gestum og starfsfólki. Hér er „La togue du chef“ að minnsta kosti á réttum stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.