Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Page 20
20
DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986.
Iþróttir iþróttir
• Hér sést þrumuskot Guömundar Torfasonar þjóta í gegnum varnarvegg Þoi
en leikmönnum Fram tókst að trufla varnarvegginn hjá Þór og mynda þannii
Tveir pólskir
til Homburg
Vestur-þýska liðið Homburg, sem
nýlega vann sér sæti í Bundesligunni,
eða 1. deildinni i Vestur-Þýskalandi,
skýrði frá því i gær að tveir HM-leik-
menn Póllands hefðu gert samning við
félagið. Mundu þeir leika mcð því í
Bundesligunni næsta leiktímabil.
Leikmennimir eru Andrzej Buncol,
scm leikið hefur með Legia í Varsjá,
og Roman Wojcicki, Widzew Lodz.
Þeir gerðu samning við Homburg til
eins árs. Ekki var skýrt frá þvi hvað
þýska félagið hefði greitt fyrir leik-
mennina en talsmaður þess sagði að
beðið væri eftir Ieyfi fyrir leikmennina
frá pólskum íþróttayfirvöldum. hsím
Staðaní
1. deild
Staðan í 1. deild eftir sigur Fram á
Þór í gærkvöldi, síðasta leiknum í 2.
umferð.
FH
Breiðablik
KR
Akranes
Fram
Þór
Víðir
Keflavík
Valur
ÍBV
Þriðja umferðin hefet á föstudag kl.
20. Þá leika Akranes-Víðir á Akra-
nesi, Keflavík-Valur í Keflavík, og
KR-FH í Frostaskjóli. Á laugardag
kl. 14 leika Þór Vestmannaeyjar á
Akureyri og Breiðablik-Fram í Kópa-
vogi. -hsim
Stórsigur
Barcelona
- á Real Madrid
Barcelona vann stórsigur, 0-4, á Real
Madrid í síðari leik liðanna í spænska
deildabikamum nú í vikunni í 2. um-
ferð. Leikið var í Madrid en í fyrri
leiknum varð jafntefli, 2-2, í Barce-
lona. Samanlagt vann því Barcelona,
6-2. Af öðrum úrslitum má nefna að
Espanol og Valencia gerðu jafiitefli,
1-1. Valencia vann samanlagt, 6-3.
Valladollid tapaði á heimavelli fyrir
Atletico Madrid, 0-1. Atletico vann
samanlagt, 4-3. -hsím
Landsliðið enn
ekki valið
- í íraleikinn
„Ég fór á leik Fram og Þórs í gær-
kvöldi og þetta var besti leikurinn sem
ég hef séð hér,“ sagði Sigfried Held
landsliðsþjálfari sem enn er að skoða
leikmenn í landsliðshópinn fyrir
Reykjavíkurleikanna sem hefjast á
sunnudaginn. „Ég sá margt gott til
leikmanna í gærkvöldi en þeir leikir
sem ég hef séð hingað til hafa ekki
verið nógu góðir. I þessum liðum voru
margir ágætir leikmenn sem landsliðið
getur vel notað,“ sagði Sigfried.
Enn hefur landsliðshópurinn ekki
verið valinn endanlega. Þó er ljóst
hvaða erlendir leikmenn koma í leik-
ina. I fyrri leikinn koma þeir Bjami
Sigurðsson, Brann, Arnór Guðjóns-
son, Anderlecht, Pétur Pétursson,
Hercules, Sigurður Jónsson, Sheffteld
Wed. og Ragnar Margeirsson, Wat-
erschei. Bjarni getur hins vegar ekki
verið með í seinni leiknum. Þá koma
þrír leikmenn frá Sviss, þeir Sigurður
Grétarsson og Ómar Torfason hjá Luz-
ern og Guðmundur Þorbjörnsson hjá
Baden til liðs við hópinn. Eggert Guð-
mundsson hjá Halmstad kemst ekki í
þessa landsleiki.
Það er því ljóst að það verður að
bæta 11 leikmönnum hér að heiman
við hópinn en ætlunin er að velja 19
leikmenn. Hveijir það verða er ekki
ljóst enn. Það ætti væntanlega að skýr-
ast fyrir morgundaginn en þá síðdegis
mun ætlunin vera að kalla landsliðs-
hópinn saman. -SMJ
• Mark Þórs kom eftir mikil mistök í vörn Fram. Hlynur Birgisson nýtti sér þ:
..Erum með
- sagði Ásgeir Elíasson, þjálfa
„Ég er ánægður með strákana í þess-
um leik, þeir gerðu eins og fyrir þá var
lagt. Við unnum Þórsara hér i fyrra
einnig 2-1 og ég held að við höfum
sýnt hér að við erum með betra lið.
Urslitin koma mér því ekki á óvart,“
sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram,
en Fram sigraði Þór frá Akureyri í
gærkvöldi á Valbjamarvelli í spenn-
andi leik sem hefði getað farið á hvom
veginn sem er. Það var Guðmundur
Torfason sem tryggði Fram sigur með
glæsilegu marki beint úr aukaspymu.
Þrátt fyrir að leikurinn færi fram á
Valbjamarvelli sem er frekar óheppi-
legur fyrir knattspymu þá var hann
ákaflega skemmtilegur á að horfa.
Bæði lið em skipuð leiknum og nett-
um leikmönnum sem geta látið bolt-
ann ganga á milli sín. Fyrri hálfleikur-
inn var þó miklu fjömgri enda komu
öll mörkin í honum.
Fyrsta færi leiksins kom á 10. mín-
útu þegar Siguróli Kristjánsson átti
hörkuskot yfir mark Fram eftir góða
sókn Þórsara. Þór byrjaði leikinn und-
an vindi og vom þeir heldur meira
með boltann fyrri hluta hálfleikins.
Margir Framarar vildu fá víti á 17.
mínútu og Guðmundur Steinsson virt-
ist hafa hugann meira við það heldur
en að nýta sér ágætt færi sem hann
var í.
Fyrsta mark leiksins kom á 20. mín-
útu. Pétur Ormslev tók þá homspymu
og eftir mikið þóf fyrir framan mark
Þórs tókst Guðmundi Steinssyni að
ýta boltanum inn. Þama sváfu leik-
menn Þórs á verðinum en þeir hefðu
getað verið búnir að hreinsa frá marki.
1- 0 fyrir Fram, nokkuð gegn gangi
leiksins.
Á 23. mínútu braut Nói Bjömsson,
fyrirliði Þórs, illa á Steini Guðjónssyni
og varð harrn að fara af velli. Ljót
brot hjá Nóa en oft var óþarflega mik-
il harka í leiknum sem getur stafað
af því hve völlurinn er lítil.
Frábært mark hjá Guðmundi
Torfasyni.
Þórsarar jöfnuðu leikinn á 29. mín-
útu og var ákaflega klaufalega að því
staðið hjá leikmönnum Fram. Om
Valdimarsson átti þá lausa sendingu
aftur á Jón Sveinsson sem virtist hafa
boltann ömgglega. Það vildi þó ekki
betur til en svo að hann missti af bolt-
anum. Hlynur Birgisson var fljótur að
átta sig, náði knettinum, renndi sér
framhjá Friðriki markverði og sendi
knöttinn í netið. Snyrtilega gert hjá
Hlyni en þetta vom ljót mistök í vöm
Fram. Staðan 1-1.
En leikmenn Fram vom fljótir að
kvitta fyrir þessi mistök. Einni mínútu
síðar, eða á 30. mínútu, fengu þeir
aukaspymu rétt fyrir utan vítateig
Þórs, fyrir miðju marki. Það var Guð-
mundur Torfason sem tók spymuna
og það var engin smáspyma! Þrumu-
skot hans þaut í gegnum vamarvegg
Þórs, í þverslána og þaðan í markið,
án þess að Baldvin Guðmundsson,
markvörður Þórs, kæmi neinum vöm-
um við. Ótrúlega fallegt mark sem
kemur ömgglega vel til greina sem
mark ársins. Fram komið aftur yfir,
2- 1.
• StefiB Graf.
Ný stjarna
Vestur-þjóðveijar hafa eignast nýja
stjömu í tennis - undrabarn á þessu
sviði að sögn þeirra sem best þekkja
til. Á sunnudag, í úrslitum vestur-
þýska meistaramótsins í einliðaleik
kvenna í Vestur-Bcrlín, sigraði hin 16
ára StefE Graf bestu tenniskonu
heims, Martinu Navratilova, Banda-
ríkjunum, mjög létt í tveimur lotum,
6-2 og 6-3. Ótrúleg úrslit. hsím
Norðurianda
mót í boccia
Kaupmannahofn
arsson, ÍFA. Þjálfarar og fararstjórar
em Anna Bjamadóttir og Jón Haukur
Damelsson.
Á Norðurlandamótinu síðasta, sem
háð var fyrir tveimur árum, hafnaði
íslenska sveitin í fjórða sæti en var
aðeins hársbreidd frá því að leika um
1.-2. sætið. Myndina að neðan tók
Brynjar Gauti af íslensku keppendun-
um í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í
gær. Þeir héldu til Kaupmannahafhar
í morgun. -hsím
- hja fötluðum
Sex íslenskir þátttakendur verða á
Norðurlandamóti fatlaðra í boccia,
sem fer fram í Kaupmannahöfn um
helgina og auk þess tveir fararstjórar.
íslensku keppendumir munu allir
keppa í einstaklingskeppni og sveita-
keppni.
íslensku keppendur em Sigurður
Bjömsson, ÍFR, Haukur Gunnarsson,
ÍFR, Láms Ingi Guðmundsson, IFR,
Sigurrós Karlsdóttir, ÍFA, Bjöm
Magnússon, ÍFA, og Tryggvi Gunn-
Erik Hajas
til Maritim
- liðsins sem Hans Guðmundsson leikur með
Sænski landsliðsmaðurinn kunni í
handknattleikniun, Erik Hajas, Hellas,
hefur gert samning við spánska liðið
Maritim, Tenerife, sem leikur í 1. deild.
Hans Guðmundsson, fyrrum leikmað-
ur FH og íslenska landsliðsins, lék
• Erik Hajas.
einmitt með þessu liði síðari hluta
keppnistímabilsins og skoraði grimmt.
Liðið komst upp og ekki er annað vit-
að en Hans haldi þar áfram.
Tveir aðrir íslendingar leika nú á
Spáni, Einar Þorvarðarson og Sigurð-'
ur Gunnarsson, Tres de Mayo, einnig
Tenerife, og Viggó Sigurðsson lék þar
um tíma og varð spænskur meistari
með Barcelona. Erik Hajas verður
fimmti sænski leikmaðurinn til að
leika með spænskum handknattleiks-
liðum. Landsliðsmarkvörðurinn frægi,
Claes Hellgren, var tvö ár hjá Tres
de Mayo og Bjöm Jilsen eitt ár. Sig-
urður og Einar tóku síðan stöður
þeirra hjá félaginu. Pelle Carlén leikur
með Grenollers í Barcelona og Lenn-
arth Ebbinge með Maritim. Þá má
geta þess að næsta leiktímabil mun
Bjöm Jilsen leika í Vestur-Þýskalandi
með Wiesbaden í 2. deild. Hellgren er
orðinn þjálfari í Bandaríkjunum.
hsím