Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Blaðsíða 23
DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986. 23 Fallegir fákar og góðir tímar Hvítasunnukappreiðum Fáks lauk á mánudaginn með úrslitaröðun í gæðingakeppni, kappreiðum og verðlaunaafhendingu. Þetta mót er eitt besta og stærsta hvítasunnu- mót sem Fáksmenn hafa haldið um árabil. Framkvæmd var örugg og fumlaus og veður gott mestallan tímann. Til marks um stærð móts- ins má geta þess að 54 hestar voru skráðir í B-flokk gæðinga og 43 í A-flokk gæðinga. Sjö riðlar, hver með fjórum hestum, voru í 250 m skeiði en 16 hestar í 150 m skeiði. Vegna þessa fjölda hófst mótið á fimmtudeginum og stóð í fjóra daga. Ein af ástæðum fyrir öllum þess- um fiölda er eflaust landsmótið sem haldið verður á Hellu í sumar. Ekki einungis voru knapar að keppa um fyrstu sætin í gæðinga- keppninni, heldur var ákveðið fyrirfram að sjö efstu hestar kæ- must á landsmótið sem fulltrúar Fáks. Af þessum sökum var keppn- in geysihörð því allir vilja komast á landsmót með fáka sína. Þrátt fyrir það var öll keppni markviss og yfirbragð sýninga yfir- leitt með ágætum. Ein mesta breyting til góðs var klæðnaður knapa. Svo til allir knapar voru mjög snyrtilega klæddir og sumir ákaflega fallegir sýnum. Til dæmis voru þeir sjö knapar sem komust í úrslit í barnaflokki til mestu fyrir- myndar, snyrtilega klæddir og reiðmennska þeirra fáguð og yfir- lætislaus. Gæðingakeppni Hvítasunnukappreiðar Fáks hóf- ust á fimmtudaginn með gæðinga- keppni í B-flokki. Þar voru 54 hestar skráðir og mættu langflestir til keppni. Það lá ljóst fyrir að sjö knapar kæmust á landsmót með hesta sína þannig að ekkert mátti útaf bregða. Keppnin hófst klukk- an 17.30 og stóð yfir til um það bil 23.00 um kvöldið. Þá höfðu spjalda- sýningar með einkunnum verið niður lagðar vegna tímaskorts. Röðun í sæti var svo á mánudegin- um. Þá riðu knapar einungis tölt og brokk. Úrslit urðu þau að Sölvi, Jóns Inga Baldurssonar, stóð efstur þriðja árið i röð og hlaut að launum til eignar bikar sem keppt hefur verið um undanfarin ár. Sölvi hlaut 8,60 í einkunn. Knapi var sem fyrr Gunnar Arnarson. I öðru sæti var Gári, Fríðu H. Steinarsdóttur, sem Sigurbjöm Bárðarson sat, og hlaut 8,59 í einkunn. Þriðji var Goði, Jóhannesar Elíassonar, sem Trausti Þ. Guðmundsson sat, og hlaut 8,37 í einkunn, fjórði Núpur, Sigurbjörns Bárðarsonar, sem Ei- ríkur Guðmundsson sat, með 8,48 í einkunn, fimmti Kórall, sem Orri Snorrason á og sat, með 8,46, sjötta var Eva, sem Fríða H. Steinars- dóttir á en Sigurbjörn Bárðarson sat, með 8,36 í einkunn og sjöundi Bikar, sem Bragi Ólafsson á en Gunnar Arnarson sat, með 8,36 í einkunn. Skýring á því hvers vegna hestur í þriðja sæti er með lægri einkunn en sá sem er í fjórða sæti er sú að Goði í þriðja sæti lenti hærra vegna röðunar, á mánudeg- inum. Ekki voru eins margir hestar í A-flokki gæðinga, eða aðeins 43. Þar sigraði Sókron, Þórdísar Sig- urðardóttur, og hlaut 8,55 í ein- kunn. Þetta er í þriðja skipti sem Sókron sigrar í A-flokki gæðinga hjá Fáki. Fyrst árið 1983, svo 1984 og loks nú 1986. Knapi var Hregg- viður Eyvindsson. I öðru sæti var Heljar, Matthíasar Sigurðarsonar, með 8,35 í einkunn. Albert Jónsson sat Heljar. Heljar var í fimmta sæti eftir dóma en tókst að vinna sig upp í 2. sætið í röðun. Þriðji var Ljúfur, Marinós Sigurpálsson- ar, sem Albert sat einnig, en Ragnar Hinriksson í röðun. Ljúfur hlaut 8,43 í einkunn. Fjórði var Smári, Hallgríms Þorsteinssonar, sem Hafliði Halldórsson sat, með 8,41 í einkunn, fimmti Gormur, sem Sigurbjörn Bárðarson á og sat, með 8,32 í einkunn, sjötti Djákni, sem Sigurbjöm Bárðarson á en Eiríkur Guðmundsson sat, með 8,36 í ein- kunn og sjöundi Glanni Ómar, sem Hákon Jóhannsson á en Kristján Birgisson sat, með 8,28 í einkunn. Sýning á mánudaginn, er A-flokks hestunum var raðað í sæti, verður eftirminnileg mörgum áhuga- manninum um hestamennsku því þar voru margir snjallir knapar með góða hesta. Sáust því fallegir skeiðsprettir og örugg handtök. Sjö hæstu í unglingaflokki. Úrslit í 350 metra stökki. Leistur setur íslandsmet í 250 metra skeiði. Töltkeppnin Nú er svo komið að ekki er hald- ið hestamót án töltkeppni. Þar koma fram ágætir töltarar og keppa sín í millum. I töltkeppninni sigraði að þessi sinni Viðar Halld- órsson á Fagra-Blakk. Gunnar Arnarson var annar á Sölva, Al- bert Jónsson þriðji á Bróður, Kristbjörg Eyvindsdóttir fjórða á Sváfni og Erling Sigurðsson fimmti á Snjalli. Á landsmótinu, sem allt miðast við um þessar mundir, verð- ur einmitt keppt í tölti. Ekki er búið að ákveða lágmarkseinkunn þeirra sem mega keppa þar, en ljóst er að sú einkunn verður að vera há svo að ekki verði um of marga hesta að ræða heldur einungis 10- 15 yfirburða tölthesta. Sölvi, efstur i B flokki gæðinga DV-myndir: EJ Unglingar og börn Það var gaman að fylgjast með keppni í barna- og unglingaflokki. Feður og mæður fylgduust með og reyndu að leiðbeina afkvæmunum, oft með góðum árangri. Enda voru flestallir knaparnir fallega og snyrtilega klæddir og hestarnir ágætir. í bamaflokki sigraði Ró- bert Petersen á Stelki, leirljósum klár, ákaflega reistum og glæsileg- um. Hjörný Snorradóttir varð önnur á Ópali, Edda Sólveig Gísla- dóttir þriðja á Seifi, Edda Rún Ragnarsdóttir fiórða á Silfra, Gísli Geir Gylfason fimmti á Skáta, Guð- rún Valdimarsdóttir sjötta á Sokka og Sigurður Matthíasson sjöundi á Dótlu. I unglingaflokki sigraði Guðrún Edda Bragadóttir, en hún er af vel þekktri knapaæ.tt, dótturdóttir Hinriks Ragnarssonar. Hún sat Eril. í öðru sæti var Ragnhildur Matthíasdóttir á Vin, Arna Kristj- ánsdóttir þriðja á Gimsteini, Hörður A. Haraldsson fiórði á Háfi, Páll Briem fimmti á Skjóna, Páll Bragi Hólmarsson sjöundi á Háfeta og Jón Ólafur Guðmundsson sjö- undi á Neista. Þrjár stúlkur efstar, allt glæsileg ungmenni á fallegum hestum. Kappreiðar Undanúrslit í kappreiðum og úr- slit í 150 m skeiði og 300 m brokki voru á laugardeginum en 250 m skeið og úrslit í kappreiðum á mánudeginum. Mikill fiöldi áhorf- enda var á kappreiðunum á mánudaginn og var um að ræða marga hestamenn víða af landinu. Þeir voru að kanna hestaforða Fáksmanna. Tímar voru yfirleitt mjög góðir og var eitt íslandsmet sett. Leistur frá Keldudal rann 250 m skeiðið með knapa sinn, Sigur- björn Bárðarson, á 21,4 sekúndum. Leistur á einnig metið í 150 m skeiði, 13,8 sek., sett 1983. Eigandi Leists er Hörður G. Albertssoii. í öðru sæti í 250 m skeiði var Gorm- ur á 22,1 sek. en Sigurbjöm Bárðarson á og sat Gorm. í þriðja sæti var Litli-Jarpur, Elíasar Guð- mundssonar, sem Ragnar Hinriks- son sat, á 22,5 sek. Tímar voru mjög góðir í 250 m skeiði. Fimm hestar komu í mark á undir 23,0 sek. 150 m skeiðið vann Linsa, sem Sigur- björn Bárðarson á og sat, á. 15,1 sek. Sleipnir, sem Hreggviður Ey- vindsson á og sa.t, var annar á,15,3 sek. og Fjalar, sem María Dóra Þórarinsdóttir á en Orri Snorrason sat, var þriðji á 15,8 sek. Neisti, sem Guðmundur Jónsson á og sat, sigr- aði í 300 m brokkinu á 32,8 sek. sem er mjög góður tími. Trítill, sem Jóhannes Þ. Jónsson á og sat, varð annar á 38,1 sek. og Nafni, sem Svanur Halldórsson á og sat, varð þriðji á 47,5 sek. 250 m unghrossa- hlaup sigraði Gasella Harðar G. Albertssonar á 17,09 sek. Knapi var Erlingur Erlingsson. Þota Guðna Kristinssonar varð önnur en Ró- bert Jónsson sat hana á 17,9 sek. Lonta, sem er dóttir Gjálpar og í eigu Þorkels Bjarnasonar og Gylfa Þorkelssonar, varð þriðja á 18,8 sek. Knapi var María Dóra Þórar- insdóttir. f 350 m stökki sigraði Spóla Harðar G. Albertssonar á 24.3 sek. Knapi var Erlingur Erl- ingsson, Úi Guðna Kristinssonar varð annar á 24,3 sek. (sami tími en sjónarmunur) og Lótus þriðji á 24.4 sek. Kristinn Guðnason er eig- andi Lótusar. Róbert Jónsson sat Úa. Neisti sigraði í 800 m stökkinu. Eigandi hans er Hörður G. Alberts- son en knapi María Dóra Markús- dóttir. Tími 61,0 sek. Örn þeirra Ingu og Þórdísar Harðardætra varð annar á 61,2 sek. Knapi Erl- ingur Erlingsson. Kristur Guðna Kristinssonar varð þriðji á 63,7 sek. en hann sat Róbert Jónsson. Þess má geta að lokum að veitt voru verðlaun Hinriki Bragasyni fyrir besta árangur knapa yngri en 20 ára í skeiði en hann sat Jón Hauk sem rann 250 metra skeiðið á 23,1 sek. v3 óo jjpl^U^^ÓnöQJLt,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.