Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Síða 31
DV. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986. 31 Sandkorn Sandkorn Þorgeir Þorgeirsson rithöf- undur. Slegið á léttari strengi Nýlega var haldin árs- hátíð Tékkneska-íslenska félagsins. Skemmtu gestir sér afar vel og segjast sum- ir þeirra munu minnast gleðinnar lengi. Þetta á að sjálfsögðu sín- ar skýringar eins og allt annað. Samkvæmt hefð- bundna forminu hefur tékkneski sendiherrann haldið ræðu kvöldsins. Hafa þær tölur verið mjög í andanum eins og eðlilegt er. En að þessu sinni hljóp stjórn félagsins litillega út undan sér. Hún fékk Þor- geir Þorgeirsson rithöfund til að mæla fram hátíðar- ræðuna. Þorgeir hefur dvalið í Tékkóslóvakíu og er gjörkunnugur þar eystra. Hann er sagður hafa farið á kostum í ræðu sinni og skopast eins og honum er einum lagið, að sjálfsögðu á mjög kurteis- legan hátt. Höfðu gestir hina mestu skemmtan af málsnilli rithöfundarins. Hæpinn gróði Það hefur komið fyrir að hlaupið hefur bærilega á snærið hjá þeim sem skipt hafa við bensínsjálfsalana. Tankarnir hafa gerst örlát- ir og ælt úr sér miklu meira magni en viðskiptavinur- inn hefur greitt fyrir. En menn eru misjafnlega heppnir í þessum efnum sem öðrum. Maður einn þurfti að taka bensin í Mosfellssveit. Hann renndi upp að sjálf- salanum og mataði hann á 300 krónum. Þegar hann fór að dæla sá hann að ekki var allt með felldu og hann myndi fá fyrir miklu meira en 300-kallinn. Kættist maðurinn nú ákaflega og dældi og dældi enda stór- gróði í augsýn. En hann var ekki eins kátur þegar hann ætlaði að aka af stað. Hann hafði nefnilega sett disilolíu á bilinn í staðinn fyrir bens- ín. Ökuferðin endaði því þannig að draga varð bilinn í bæinn. Stórmenni í heimsókn Alþýðuflokkurinn aug- lýsir þessa dagana sumar- ferð til Ítalíu. Verður hún væntanlega farin að kosn- ingaslagnum afstöðnum. Það sem vekur athygli varðandi auglýsinguna þá arna eru myndirnar sem birtast i henni. Þær eru af stórmennunum Guðlaugi Tryggva Karlssyni hesta- krata, Craxi, forsætisráð- herra Ítalíu, og tónskáldinu Þeir féiagarnir snæddu meö prjónum. Verdi. Skýringin á þessu er sú að Guðlaugur Tryggvi verður fararstjóri og Craxi er formaður italskra krata. Hins vegar mun erfitt að fá nokkuð staðfest um flokks- skirteini tónskáldsins. Er það trú manna að myndin af honum sé látin fljóta með af því að hann og Jón Bald- vin þóttu furðu líkir þegar sá síðarnefndi kom fram í sjónvarpinu í vetur. En Craxi þessi mun hafa í nógu að snúast við að taka á móti gestum. Það er ekki ýkja langt síðan sjálfur Re- agan Bandarikjaforseti sótti hann heim. Þá átu þjóðhöfðingjarnir með pijónum. Verður forvitni- legt að vita hvaða borð- búnað þeir Craxi og Jón Baldvin munu nota við rósakálið. Fyrirgreiðslan í algleymingi Nú stendur atkvæðaver- tíðin sem hæst enda nálgast kosningar óðum. Öllu er beitt sem tiltækt er því kvótinn er enginn og því hægt að mokveiða fram á síðasta dag. Fyrirgreiðslu- pólitíkin er alls ráðandi og virkilega gaman að lifa. í Vestmannaeyjum vakti það athygli þegar húsið Landlyst, sem bærinn á, var skyndilega látið einum frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins í té til eigin afnota. Að því er fregnir herma höfðu margir reynt að fá húsið en án árangurs. Telja illgjarnir fullvíst að þarna sé um stórpólitískt mál að ræða sem aldrei hefði fengið framgang nema fyrir kosningar. Og í ljósi þessa íhuga Vestmannaeyingar nú hvernig þeir geti sem best nýtt sér þetta stutta fyrir- greiðslutimabil fram að kosningum. Sjá margir fram á blómatíð sem gæti litið einhvern veginn svona út: Bátaáhugamenn gætu fengið Lóðsinn til frjálsra afnota. Unglingahljóm- Það er enginn kvóti á atkvæða- vciöunum. sveitir fá æflngapláss hjá bænum hið snarasta. Moto- cross-strákarnir geta hreiðrað um sig í áhalda- húsi bæjarins og dyttað þar að tækjum sínum. Tölvu- áhugahópurinn fær Ráð- húsið til eigin afnota og sjóstangaliðið fær að renna í flskabúrin í Fiskisafninu. Já, það getur orðið fjör í Eyjum. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kvikmyndir__________Kvikmyndir Austurbæjarbíó - Flóttalestin ★ ★ ★ ★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit Köld spennumynd Heiti: Flóltalestin (Runaway Train). Leikstjóri: Andrei Konchalovsky. Handrit: Djorde Miljcevic, eftir handriti eft- ir Akira Kurosawa. Kvikmyndun: Alan Hume. Tónlist Trevor Jones. Aðalleikarar: Jon Voight, Eric Roberts, Rebecca DeMomay og John P. Ryan. Andrei Konchalovsky hefur greini- lega aðlagast bandarískum lífsvenj- um nokkuð vel því Flóttalestin er fyrst og fremst vel heppnuð spennu- mynd á bandaríska visu. Horfinn er rómantíski blærinn sem einkenndi Elskhuga Maríu (Maria’s Lovers) og gerði þá mynd meira evrópska. í staðinn er komin köld spenna sem heltekur áhorfandann allan þann tíma sem Flóttalestin tekur í sýn- ingu. Flóttalestin gerist í Alaska. I ramm- gerðu fangelsi situr Mannheim (Jon Voight), fangi sem hafði verið lokað- ur af í þrjú ár vegna stroktilrauna sinna. Honum er þvert gegn vilja yfirmanns fangelsisins, Rankin (John P. Ryan), hleypt úr klefa sín- um. Rankin, sem hatar Mannheim, egnir hann til flótta. Það gerir Mannheim með aðstoð ungs fanga, Buck Logan (Eric Roberts). Þeir ná að flýja úr fangelsinu út í kuldann og halda til næstu jámbrautarstöðv- ar. Þar velja þeir sér lest til að flýja i. Svo illa vill til að stjómandi lestar- innar deyr meðan lestin er á fúllri ferð og æðir nú lestin stjómlaus um auðnir Alaska og eykur jafht og þétt hraðann. Reynt er að stöðva lestina en allar tilraunir til þess mis- takast. I fyrstu vita þeir félagar ekki hvað er að gerast. Það fá þeir aftur á móti að vita þegar þriðji farþeginn í lestinni birtist. Það er ung stúlka sem var aðstoðarmaður ekilsins. All- Jon Voight í hlutverki hættulegs sakamanns gerir hér tilraun til að stöðva stjómlausa lestina. ar tilraunir þeirra þriggja til að stöðva lestina mistakast og virðist ekkert nema dauðinn bíða þeirra... Það verður að segjast eins og er að langt er síðan önnur eins spennu- mynd hefur sést á hvíta tjaldinu. Allt hjálpast að. Frábær kvikmynda- taka þar sem kuldalegt landslag Alaska nýtur sín. Lestin sjálf, sem er ógnvekjandi, og síðast en ekki síst frábær leikur þeirra Jon Voight og Eric Roberts í hlutverkum stór- hættulegra glæpamanna sem bera enga virðingu fyrir lífinu. Jon Voight tekst ávallt að skapa sterkar persónur í myndum sínum. Hér hefúr honum tekist að skapa sérstaklega eftirminnilega persónu. Mannheim er dýr á yfirborðinu. Maður sem hefur alla ævi lifað glæp- samlegu lífi en er harður sem stál og þótt langt sé í tilfinningamar em þær fyrir hendi eins og kemur í ljós í síðasta hluta myndarinnar. Þótt Eric Roberts falli aðeins í skugga Jon Voight tekst honum samt vel að lýsa þessari einskis nýtu persónu sem Logan er. Andrei Konchalovsky er með Flótta- lestinni kominn nokkuð langt ffá uppruna sínum í rússneskri kvik- myndagerð þar sem hann var talinn meðal meistara. I staðinn hefur hon- um tekist með tveimur fyrstu myndum sínum í Bandaríkjunum að skapa sér nafti og á örugglega eftir að kveða mikið að honum í framtíð- inni enda greinilegt að hér er á ferðinni leikstjóri sem veit svo sann- arlega hvað hann vill og hefúr vítt sjónarsvið. Hilmar Karlsson. Frá og meö 15. maí 1986 kom til framkvæmda breyting á útlánakjörum Iðnlánasjóðs og eru þau sem hér segir: Vélalán undir kr. 700.000,00 og byggingalán undir kr. 5.000.000,00 bera vexti og eru bundin lánskjaravísitölu. Vélalán yfir kr. 700.000,00 og byggingalán yfir kr. 5.000.000,00 bera vexti og eru bundin gangi SDR. Lán til vöruþróunar og markaðsleitar bera vexti og eru bundin lánskjaravísitölu. Frá og með sama degi varð samsvarandi breyting á útistandandi lánum, þar sem ákvæði skuldabréfa heimilaslíkt. TOYOTA Opið á laugardögum kl. 13.00-17.00 Isuzu Trooper árg. 82, bensin, Daihatsu Charade árg. 80, ekinn ekinn 70.000, hvítur. Verö 440.000. 87.000, grár. Verö 130.000. Toyota Tercel árg. 80, 4ra dyra, Toyota Camry dísil turbo 84, ekinn ekinn 72.000, brúnn. Verö 170.000. 10.000 á vél. Verö 520.000. Toyota Cressida árg. 78, ekinn 119. 000, grænn. Verð 145.000. Toyota Crown disil árg. 80, 5 gíra, ekinn 92.000, rauöur. Verö 290.000. BMW 518 árg. 82, ekinn 70.000, gylltur. Verð 420.000. Aukahlutir: læst drif, vökvastýri, útvarp/segul- band, litað gler. Range Rover árg. 84, sjálfsk., ekinn 40.000, beige. Verö 1250.000. Skipti á ódýrari. TOYOTA Nýbýlavegi8 200 Kópavogi S. 91-44144

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.