Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1986, Page 40
Hafir þú ábendingu eða vitn- eskju um firétt - hringdu þá í síina 687858. Fyrir hvert firéttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnieyndar er gætt. Við tökum við firéttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst, óháð dagblað FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1986. Gæsla staðfest: Tveir áfrýjuðu til Hæstaréttar Sexmenningamir voru í gærkvöldi úrskurðaðir í gæsluvarðhald, fimm til 25. júní en einn þeirra, Sigurþór Guð- mundsson, til 11. júní. Tveir mann- anna, Björólfur Guðmundsson og Páll Bragi Kristjónsson, áfrýjuðu úrskurð- inum til Hæstaréttar. Sjöundi maðurinn, sem handtaka átti en er staddur í útlöndum, heíúr haft SEunband við Rannsóknarlögregl- una og er hann væntanlegur til landsins á morgun. Yfirheyrslur standa stöðugt yfir í málinu en rannsóknin beinist að þvi hvort forráðamenn Hafskips hafi gefið Útvegsbankanum rangar upplýsingar vun stöðu fyrirtækisins og þannig feng- ið lán sem ella hefðu ekki fengist, ^Jjvort forráðamennimir haii notað fé týrirtækisins í eigin þágu og hver sé þáttur starfsmanna Ötvegsbanka fs- lands, hvort einhver eða einhverjir þeirra hafi gerst brotlegir við 141. gr. refsilaganna sem kveður á um stór- fellda eða ítrekaða vanrækslu eða hirðuleysi í starfi. Það hefur vakið athygli hve harka- lega RLR gekk fram í handtöku sexmenninganna er hún greip þá alla í rúminu snemma á þriðjudagsmorgn- inum. Aðspurður um þetta atriði sagði Þórir Oddsson, vararannsóknarlög- ®reglustjóri ríkisins, að það gæfi hugmynd um innihald skýrslu skiptar- áðanda sem rannsóknin byggist á. -FRI Klippur á lofti Lögreglan á Selfossi hefur verið með klippur á lofti að undanförnu. Mikið er um það að menn trassi að láta skoða bifreiðar sínar. Lögreglan hefur tekið þó nokkuð af bílum úr umferð síðustu daga. í gær vom númer klippt af níu bifreiðum á Selfossi. -SOS Glataði skjalatösku Maður nokkur hafði samband við lögregluna í gær og tilkynnti að hann hafi glatað skjalatösku i verslunar- húsnæði Glæsibæjar í Reykjavík. • Mikil verðmæti vom í töskunni, um hundrað þúsund krónur í peningum, tékkhefti og stimplar. Málið er í rann- sókn. -SOS Djöfullinn danskur! Haikaleg gagniýni bankaeftiiiítsins á Útvegsbankann í 10 ár. Ónógar tiyggingar á fjolda útlána „Nægilegar greiðsluttyggingar vantar fyrir miklum fjölda stærri og smærri útlána,“ segir i skýrslu bankaeftirlits Seðlabankans um starfsemi Útvegsbanka íslands 1975. Nákvæmlega sömu orð em höfð um bankann í skýrslu 1978. Sams konar niðurstöður er að finna í skýrslum bankaeftirlitsins frá 1980 og 1985. í samtali við Þórð Ólafsson, for- stöðumann bankaeftirlitsins, sagði hann það rétt vera að þrátt fyrir þessar upplýsingar eftirlitsins, skýrslur og tillögiu- í öll þessi ár hefðu bankaráð og bankastjóm ekki tekið í taumana. Hann sagði stöðu bankans þá eftir Hafekipsmálið að hann yrði að fa 420 milljóna króna stuðning ríkisins ef hann ætti að halda áfram sjálfetæðri starfeemi. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur nú einmitt þennan tryggingaþátt Hafekipsmálsins til athugunar um leið og hún rannsakar athafhir nokkurra yfirmanna skipafélagsins. Útvegsbankinn er hins vegar rekinn þessa mánuðina í skjóli Seðlabank- ans, á meðan viðskiptaráðherra leitar úrræða. Ólíklegt er að Útvegs- bankinn verði rekinn í óbreyttu formi miklu lengur. Til greina kemur samruni við Bún- aðarbankann með ýmsum tilfæring- um á viðskiptum milli allra ríkisbankanna. Einnig kemur til greina sammni Útvegsbanka við suma einkabankana, einnig með frekari tilfærslu viðskipta innan bankakerfisins. Ekki er búist við endanlegri niðurstöðu um framtíð Útvegsbankans fýrr en í haust. -HERB Ærin Leggja á bænum Brimnesi á Árskógsströnd bar síamstvilembingum, dauðum, aðfaranótt þriðjudags. Fyrst átti hún eitt lamb, heilbrigt, en siðan komu síamstvíburarnir. Þeir voru fastir saman á kviði og varð Arnar Gústafs- son, 21 árs bóndasonur á bænum að deyða þá til að ná þeim. „Eg fór með höndina inn og fann fyrir tveim hausum og hélt að lömbin kæmu bæði í einu en þegar hausinn af öðru var kominn sat alit fasL Þá vissi ég að þau voru samföst en því miður var þá orðið of seint að ná í dýra- lækni," sagði Arnar. Leggja var hin borubrattasta i gær og lambinu hennar líður vel. DV-mynd JGH/Akureyri Veðrið á morgun: Dæmigert vorveður Hæð yfir Grænlandi og lægð við Færeyjar halda veðri á landinu svo til óbreyttu á morgun. Nokkuð hvöss norðaustanátt verður áfram ríkj- andi. Kalsarigning verður á Norð- austur- og Austurlandi og hvorki meira né minna en slydda og snjó- koma á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Skýjað verður með köflum sunnanlands, sums staðar smáskúrir. Hiti verður á bilinu 0-4 stig fýrir norðan og 4-7 stig ú sunnanverðu landinu. Hafskipsmálið: Starfsmenn Útvegsbank- ans yfirheyrðir „Það má sjálfeagt búast við því að einhverjir starfemenn Útvegsbankans verði yfirheyrðir en slíkt þarf ekki að hafa neikvæða merkingu. ,“ sagði Þórir Oddsson, vararannsóknarlög- reglústjóri ríkisins, í samtali við DV er við ræddum við hann um þátt Út- vegsbanka Islands í rannsókn RLR á Hafskips-málinu. Aðspurður um umfang Útvegs- bankaþáttarins í rannsókninni sjálfri sagði Þórir að hann tæki ákveðið pláss enda um að ræða aðalviðskiptabanka Hafekips. „Bankastjórar Útvegsbankans komu á fund okkar að eigin frum- k væði og lýstu þar vilja sínum til koma til liðs við okkur í rannsókninni og að láta okkur í té allar þær upplýsing- ar sem við óskum eftir,“ sagði Þórir. Hvað rannsóknina sjálfa varðaði sagði Þórir að gífurlegt verk væri framundan. Rannsókn þeirra yrði ál- gerlega sjálfetæð. -FRI Ferjubakkamálið: Konan kafnaði Krufning á líki konunnar sem fannst látin að Feijubakka 10 er lokið. Rann- sóknin hefur leitt í ljós að konan hafi kafriað. Eins og hefur komið fram þá viðurkenndi eiginmaður konunnar, Magnús Friðrik Óskarsson, að hafa bundið hana á höndum og fótum, og keflað til að koma í veg fýrir að hún færi úr íbúðinni. Magnús Friðrik var í gær úrskurð- aður í gæsluvarðhald til 3. september að kröfu Rannsóknarlögreglu ríkisins. Honum var jafhframt gert að sæta geðrannsókn. -sos Amarflug verr statt? „Ég kannast ekkert við þessar upp- lýsingar," sagði Haukur Bjömsson, stjómarformaður Amarflugs, er DV bar undir hann frétt Morgunblaðsins í morgun þess efnis að staða Arnar- flugs sé það slæm að óvíst sé hvort boð flugfélaganna Air Lingus og KLM um skuldbreytingu nægi til að tryggja áframhaldandi rekstur fýrirtækisins. Blaðið segir að afkoma Amarflugs sé mun verri en bráðabirgðayfirlit gaf til kynna. Fyrirtækið hafi tapað vem- lega á fýrstu mánuðum þessa árs. Haukur Bjömsson kvaðst ekki hafa tölur um rekstur Amarflugs fýrsta ársfjórðunginn. „Það er gefið mál að það er tap á rekstri flugfélaga í sjö mánuði á ári, þar á meðal fýrstu þijá mánuðina. Það þýðir h'tið að skoða það tímabil ein- angrað. Sagan sést ekki fýrr en skoðaðir em tólf mánuðir," sagði Haukur Bjömsson. -KMU Kjaradómi frestað Kjaradómur fékk í gær frest til 15. júlí til að úrskurða um sérkjarasamn- inga aðildarfélaga innan BHMR. Kjaradómur óskaði eftir þessari frestun vegna tímahraks. Ríkisstjóm- in féllst á þessa beiðni og gaf út bráðabirgðalög sem kveða á um þessa frestun. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.