Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1986, Qupperneq 15
DV. LAUGARDAGUR 31.MAÍ 1986. 59 HM í Mexíkó HM í Mexíkó HM í Mexíkó HM í Mexíkó • Danskir „Roligans“ koma heim eftir 5-1 sigur í Osló í undankeppninni. Piontek: 20 árum of seinn til HM - danski þjálfarinn var i landsliði V-Þjóðverja 1966 Frá Hauki Lárusi Haukssyni, fréttaritara DV í Danmörku: Velgengni danska landsliðsins á siðustu árum á rætur að rekja til ársins 1979. Þá ákvað danska lands- liðið að eyða miklum fjármunum í að ráða 1. flokks þjálfara í fullt starf sem fengi góða vinnuaðstöðu. Sepp Piontek er maðurinn sem hef- ur drifið danska liðið úr öldudal á toppinn. Hann er 46 ára og á 300 leiki með Werder Bremen að baki í þýsku deildinni. Hann var mjög ná- lægt því að leika í HM í Englandi er keppnin fór þar fram 1966, var í 22 manna hópnum mánuði fyrir keppnina. En heilladísirnar reyndust ekki hliðhollar Piontek. Á meðan Werder Bremen var á keppnisferða- lagi í Búlgaríu kvörtuðu leikmenn þeir sem ekki höfðu verið valdir. Afleiðingin var sú að Helmut Schön, þáverandi þjálfari þýskra, setti Pion- tek út úr liðinu. Danir kalla Sepp Piontek árang- ursríkasta innflytjandann í Dan- mörku en af þeim 68 leikjum, sem hann hefur stjórnað liðinu, hafa 33 unnist, tólf endað með jafntefli og 23 tapast. Hlutfall unninna leikja síðustu þrjú árin er reyndar nokkru hærra. Piontek var varaður við að fara til Danmerkur. Honum var sagt að Danir léku góða knattspyrnu en tækju hana ekki mjög alvarlega. Það væri hluti af hugsanagangi Dana að gefa eftir ef mótherjarnir væru of harðir. Sepp byrjaði á því að berja hörku í leikmennina og venja þá við aga sem ekki virtist vera vanþörf á. Líf þjálfara er ekki eintómur dans á rós- um. „Mitt verk stendur og fellur með 2x45 mínútum og ég get þurft að bíða lengi eftir að fá uppreisn æru.“ Samningur hans við danska knatt- spymusambandið rennur út 1988 en víst er að þá mun verða slegist um hann. • Troels Rasmussen. Orðinn aðalmarkvörður Dana. # Jan Mölby. Uruguay. Francescoli er stærsta vonin Uruguay er það lið sem Franz Bec- kenbauer, stjóri V-Þjóðverja, Alex Ferguson, stjóri Skota, og Sepp Pion- tek, þjálfari Dana, telja vera erfið- ustu andstæðinga sína í E-riðlinum. Orð þeirra þremenninga segja vissu- lega mikið því riðillinn er jafnan talinn sá sterkasti í keppninni. Maðurinn á bak við árangur liðsins er Omar Borás þjálfari. Hann tók við stjórn landsliðsins árið 1981 eftir að liðinu hafði mistekist að vinna sér sæti í lokakeppni HM árið 1982 er fram fór á Spáni. En Borás hélt rétt á spilunum. Hann ákvað að nota aðeins þá leik- menn er sýndu áhuga á því að koma heim í landsleiki og nýta meira inn- lenda leikmenn. Þrátt fyrir þessa stefnu Borás eru enn íjórtán „útlend- ingar“ í liðinu en sem dæmi um fólksflótta knattspymumanna frá Uruguay þar sem laun knattspyrnu- manna eru lág má benda ó að 300 knattspymumenn hafa „flúið land á síðustu fjórum árum. Þekktasti knattspyrnumaðurinn í hópi Borás er Enzo Francescolijafn- HM-ÆÐI - hjá Dönum Frá Hauki Lárusi Haukssyni, frétta- ritara DV í Danmörku: Danir skipuleggja sumarfríið sitt út frá heimsmeistarakeppninni. Kona ein bauð móðir sinni til Kákas- us í Sovétríkjunum. Sú gamla neitaði að koma með nema að tryggt væri að hún gæti séð dönsku leikina í sjónvarpinu. • Fjöldinn allur ætlar til Mexíkó. bankarnir bjóða lán og slegið er sam- an í ferðasjóði. Slátrari einn og bakari á S-Jótlandi auglýstu einnar krónu hækkun á öllum vörum sínum þar sem þeir ætluðu sér til Mexíkó. Mældist sú ráðstöfun vel fyrir hjá viðskiptavinunum. Það verður því heitt í kolunum í Danaveldi í júní og verður gaman að fylgjast með viðbrögðum Dana á hm' • þrátt fyrir mikla varkárni veikt- ust þrír leikmenn úr liði Belga stuttu eftir komuna til Mexíkó. Það voru þeir Leo Van der Elst, Erwin Van der Bergh og Raymond Mommes. Tveir þeirra eru nú skriðnir upp úr bælinu eftir slæma magakveisu en Erwin Van der Bergh lá enn í rúminu þegar síðast fréttist og vafasamt er að hann nói fyrsta leik Belga er verð- ur gegn gestgjöfum Mexíkó 3. júní. • „We are black, we are white. We are danish dynamite". Þessi söngur er nú orðinn einhvers konar óopin- ber þjóðsöngur Dana og verður það líklega fram yfir heimsmeistara- keppnina. • Frakkinn Michele Platini, sem mun verða í sviðsljósinu með liði sínu á HM, hefur þegar lýst því yfir að hann muni ekki verða með ó HM 1990. „Ég er orðinn 31 árs og á næstu keppni verð ég orðinn 35 ára. Það er of hár aldur,“ sagði Frakkinn í viðtali nýlega. an nefndur prinsinn. Francescoli er leikmaður með argentínska liðinu River Plate og margir telja hann besta knattspyrnumanninn í Suður- Ameríku. Uruguaybúar munu vonast eftir því að liðið vinni titilinn í fyrsta sinn síðan 1956. Margir hallast að því að þeim verði að ósk sinni. HM-bikar- inn hefur aldrei hafnað í Evrópu þegar keppnin hefur verið haldin í Ameríku og margir telja Uruguay hafa á að skipa besta landsliðinu í S-Ameríku. HM-hópur Borás er þannig: Markverðir: 1. Rodolfo Rodriguez. 30 ára. 79 leikir. Hefur leikið flesta landsleiki fyrir liðið og er fyrirliði þess. Leikur með Santos. 12. Fernando Alvez. 26 ár. 6 leikír. Fjöl- miðiarnir í Uruguay telja hann besta markvörðinn og völdu hann sem leik- mann ársins á síðasta ári. Snöggur og sérfræðingur í að verja vitaspyrnur. 22. Celso Otero. 26 ára nýliði. Varnarmenn 2. Nelson Gutierrez. 24 ára. 3l\leikur. 13. Cesar Vega. 26 ára. 7 leikir. Dario Pereyra. 29 ára. 30 leikir. Leikur með Sao Paulio og er talinn vera besti miðvörðurinn í brasilísku deildinni. 4. Victor Diogo. 27 ára. 30 leikir. Seinn en traustur bakvörður. 6. Jose Batista. 24 ára. 8 leikir. Fljótur vinstri bakvörður og sérfræðingur í aukaspyrnum. 3. Eduardo Acevedo. 26 ára. 37 leikir. Oft notaður gegn fljótum framherjum. Lítill en mjög fljótur. 15. Eliseo Rivero. 28 ára. 6 leikir. „í Uruguay er knattspyrnan ástriða. Fyrir þjálfara er það sigur eða dauði,“ segir Omar Borás, þjálfari Uruguay. Aðstæðurnar í Mexikó koma til með að henta okkur vel. Mótherjar okkar verða þijár sterkar Evrópu- þjóðir og við erum álitnir vera ,jo- kerarnir" í spilabunkanum. Okkar markmið verður að sýna að við séum Miðjumenn 4 5. Miguel Bossio. 26 ára. 27 leikir. Góð- í ur skallamaður en skortir tækni. 8, Jorge Barrios. 25 ára. 24 leikir. 16. Mario Saralegui. 27 ára. 27 leikir. 11. Sergio Santin. 29 ára. 14 leikir. 18. Ruben Paz. 26 ára. 22 leikir. Leikinn sóknarmaður sem hefur blómstrað eftir nokkur keppnistímabil í Brasilíu. Sóknarmenn 10. Enzo Francescoli. 24 ára. 23 leikir. * Knattspyrnumaður ársins í Argentínu á | síðasta ári. Einnig markahæstur með 25 f mörk. Auka og vitaspyrnusérfræðingur. ; 19. Venancio Ramos. 26 ára. 37 leikir. r Útherji sem hefur unun af einleik. j 7. Antonio Alzamendi. 29 ára. 6 leikir. í Hægri útherji og fljótastur allra í hópn- ' um. i 9. Jorge Da Silva. 24 ára. 20 leikir. Sterkur, fljótur og leikinn miðherji er leikur með Atletico Madrid. 21. Wilmar Gabrera. 26 ára. 24 leikir. 20. Carlos Aguilera. 24 ára. 38 leikir. Markahæstur í Uruguay síðastliðin ár. Snöggur og á gott með að athafna sig jafnvel í mjög þröngum marktækifærum. ekki með síðra lið en sigurlið Uru- guay á HM 1950,“ segir Borás sem hefur gert góða hluti með liðið síðan að hann tók við sem landsliðsþjálfari árið 1982. Borás hefur að mestu valið inn- lenda leikmenn til að leika i liði sinu þar sem hann segir að margir leik- manna utan heimalandsins leggi ekki jafnhart að sér fyrir landsliðið. ; • Francescoli. Kosinn besti knattspyrnumaðurinn í S-Ameríku á síðasta ári. Að vinna eða deyja eru öriög Borás

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.