Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1986, Blaðsíða 34
34
DV. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Svií
Ólyginn
sagði...
Grace Jones
er yfirleitt svo vígaleg ásýnd-
um að halda mætti að hún
óttaðist ekkert eða engan. Svo
er þó ekki. Grace óttast
hryðjuverkamenn eins og svo
margar amerískar stjörnur.
Hún átti nú á dögunum að
sýna loðkápur og pelsa í París
en var treg til. Það þurfti
einkaþotu til að ferja hana til
Frakklands, hún fékk sjö
vöðvabúnt til að gæta sín dag
og nótt og að síðustu leyni-
legt aðsetur.
Yoko Ono
er farin að stunda skíðaíþrótt-
ina af kappi. Vinir hennar
hvöttu hana til að fara á skíða-
námskeið svo hún gæti tekið
þátt í þessu skemmtilega
sporti með þeim. Ono, sem
er mjög vör um sig, fór á nám-
skeið í Colorado en heimtaði
að báðir lífverðir hennar, sem
þekkja varla skíði frá skautum,
færu einnig á það. Lífverðirnir
hlýddu en höfðu að sjálf-
sögðu vopnin á sér. Annar
þeirra steyptist á hausinn eins
og títt er með byrjendur og
hljóp skot úr byssunni öðrum
skíðamönnum til mikillar
hrellingar. Sem betur fer
meiddist enginn en Ono hefur
nú látið fylginauta þessa
leggja byssurnar til hliðar
meðan þau eru í brekkunum.
Kennv Rogers
sem er Hallbjörn þeirra
Bandaríkjamanna hefur nú
lofað konu sinni, Marianne,
að taka ekki aftur þátt í koss-
asenum, hvorki á hvíta tjald-
inu né á skjánum. Marianne
segir að þau hafi rætt þetta
fram og aftur og komist að
þeirri niðurstöðu að kvik-
myndakossarnir tækju of
mikið á hjónabandið.
Birgitte Stallone vill fá barnið!
og það, ásamt Sly, sé mikilvægara í
hennar augum heldur en ferill henn-
ar sjálfrar.
Barnið er tveggja ára gamall strákur
sem heitir Julian. Hann var yngri
en eins árs þegar móðir hans skildi
hann eftir hjá pabbanum, rokk-
söngvaranum Kaspar Winding, og
hélt til Ameríku í leit að frægð og
fé. Hún fann hvort tveggja með að-
stoð Sylvester Stallone. Stuttu síðar
skildi hún við Kaspar og giftist Stall-
one, eftir að hann hafði sagt skilið
við eiginkonu sína og tvo syni. Ka-
spar fékk yfirráðaréttinn yfir Julian,
eftir að Birgitte hafði verið lýst óhæf
móðir sem vanrækti barn sitt. En nú
segist Birgitte aldrei hafa vanrækt
barnið og segir Kaspar hafa vitað
að hún ætlaði sér alltaf að sækja
það, hann sé einungis að refsa sér
fyrir að hafa farið frá honum. Ef
Kaspar heldur þessu til streitu er
víst Stallone að mæta, og hver vill
eiga bæði Rocky og Rambo fyrir
óvini? En Kaspar er hvergi banginn,
umboðsmaður hans segir að hinn
nýfengni Stallone-auður muni ekki
hjálpa Birgitte neitt. I Danmörku
ráði lögin en ekki peningarnir og ef
til málarekstrar komi muni Kaspar
berjast til síðasta blóðdropa við
Rocky-hjónin og sigra með rothöggi.
Julian, sem styrinn stendur um.
Nýja konan hans Sylvester Stall-
one, Birgitte Nielsen hin danska,
vill nú óð og uppvæg fá yfirráðin
yfir syni sínum af fyrra hjónabandi.
Stallone styður fast við bakið á henni
í þessu efni og er víst mjög reiður
yfir hve mál þetta tekur á taugar
hennar. Vinir þeirra hjóna hafa sagt
að Birgitte sakni barnsins ógurlega
Kaspar, ætlar að berjast uns yfir
Tapa Rocky og frú bardaganum?
Intercoiffure á íslandi!
í dag befst hérlendis Norður-
landaþingið Intercoiffure. Á þing-
inu, sem haldið er á íslandi í fyrsta
skiptið, munu þekktustu hár-
greiðslumeistarar Norðurlanda
líoma saman og skiptast á hug-
myndum og upplýsingum. Þingið
er haldið á Laugarvatni og í
Reykjavík dagana 12.-17.júní og
munu um 120 erlendir gestir sækja
það. Meðal þeirra eru þau Lydia
Premier frá Sviss og Maurice
Franck frá París. Premier er þekkt-
ur hárgreiðslumeistari frá Zúrich
og rekur þar stóra stofu en Maurice
Franck er alheimslistráðunautur
Intercoiffure, rekur stofur bæði í
París og Genf og starfar þar að
auki fyrir mörg helstu tískuhúsin
í París. í tengslum við þingið verð-
ur efnt til hátíðarsýningar í
Broadway á sunnudaginn kl. 15.00.
Þar munu fulltrúar frá Norðurl-
öndum sýna, Lydia Premier mun
halda hárgreiðslusýningu, sem
sýnd hefur verið víða í Sviss, og
Maurice Franck mun færa landan-
um nýjustu straumana frá París,
bæði í hárgreiðslu og fatnaði.
Ástæða er til að hvetja þá sem
áhuga hafa á að líta inn í Broad-
way því hér er um einstakt tæki-
færi að ræða til að sjá hið nýjasta
í hár- og fatatísku.
Hið nýjasta frá Maurice Franck. Tískan hjá Stuhr í Danmörku.