Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1986, Qupperneq 35
35
Sviðsljós
Sviðsljós
DV. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1986.
tsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Brosandi og nýbúin að opinbera.
Hamingjan er tekin að brosa í mót Elizabeth Taylor
að nýju og sjálf geislar hún af hamingju. Nýverið varð
hún amma og stuttu síðar opinberuðu hún og George
Hamilton. Það má með sanni segja að þau séu par árs-
ins í Hollywood. Þau kynntust fyrir alvöru á heilsuhæli,
þar sem þau voru í afslöppun. Hinn spartverski lifnaðar-
háttur virtist opna augu þeirra og ekki leið á löngu uns
þau voru orðin ástfangin upp fyrir haus. George, sem
er 10 árum yngri en Liz, hefur hjálpað henni að hætta
að drekka og hún hefur einnig grennst heilmikið. Hann
er í sífellu að færa henni blóm, pelsa eða skartgripi og
draumur þeirra er að fá að leika saman í kvikmynd.
Elizabeth segist aldrei hafa getað leikið betur en ein-
mitt nú og vinir hennar segja að George hafi svo
sannarlega tekist að gera hana að nýrri og hamingjurík-
ari manneskju. Hún helgar nú baráttunni gegn AIDS
krafta sína og segist aldrei ætla að hætta að berjast
gegn þeim voveiflega sjúkdómi enda hafi hún þurft að
sjá á eftir góðvini sínum, Rock Hudson, í gröfina, en
hann lést af völdum sjúkdómsins.
Hinn 24 júní 1886 var Stórstúka
íslands stofnuð í Alþingishúsinu.
Helsti hvatamaður að stofnuninni
var Björn Pálsson en að henni stóðu
17 stúkubræður í þremur landsíjórð-
ungum. Föstudaginn 6. júní minntust
templarar komandi aldarafmælis og
fór sú viðhöfn fram í húsi þjóðarinn-
ar við Austurvöll. Dagskráin hófst
með guðsþjónustu í dómkirkjunni en
síðan fluttu gestir sig um set yfir í
Alþingishúsið. Þar var stuttur en
hátíðlegur fundur. Hilmar Jónsson
stórtemplar hélt ræðu, Helgi Seljan
flutti Bindindishreyfingunni kveðju
Alþingis og Birgir Arnar, afkomandi
Björns Pálssonar, hélt stutt erindi
um þennan brautryðjanda og fyrsta
stórtemplar hreyfingarinnar. Margt
góðra gesta var viðstatt fundinn og
meðal þeirra var Vigdis Finnboga-
dóttir, forseti íslands, sr. Ólafur
Skúlason vígslubiskup og Jón
Helgason ráðherra. Bindindishreyf-
ingin átti stóran þátt í að bæta hina
fátæklegu félagsmálastarfsemi ís-
lendinga og úr frjósömum jarðvegi
hennar spruttu öflug félög, m.a.
verkalýðsfélög, leikfélög að
ógleymdu Ungmennafélagi íslands.
Margir stjórnmálamenn okkar hafa
einnig öðlast sína fyrstu reynslu í
félagsmálaskóla hreyfingarinnar.
Aldarafmælis minnst.
1 i r«.MM 1 ' - i t +4 j| iwam
;< ofQl it
Gengið til hátíðarfundar.
William Atli Kendall.
Islenskur
staðgengill
Richard Gere!
Nafnið William A. Kendall hljómar
ekki par íslenskt, en þegar miðnafnið
er að fullu sagt kemur annað upp á
teningnum. William Atli Kendall er
íslenskur í aðra ættina en móðir
hans, Unnur Kendall Georgsson, er
fulltrúi Ferðamálaráðs íslands í New
York. Hann hefur verið að fikra sig
áfram á leiklistarbrautinni í landi
tækifæranna, Ameríku, og orðið
sæmilega vel ágengt þótt samkeppn-
in sé hörð. Hann hefur leikið í
auglýsingum og sjónvarpsþáttum, I
þó nokkrum leikritum, þ.á m. Sölu-
maður deyr, og einnig í kvikmynd-
um. í kvikmyndinni Cotton Club var
hann svokallað „photo double”,
nokkurs konar staðgengill, fyrir
stjörnuna og kyntáknið Richard
Gere.
Bóbert Jörgensen, DV, Stykkishólini:
Nýlega gerði Trésmiðja
Stykkishólms auglýsinga-
samning við 4. deildar lið
Snæfells. Færði Trésmiðjan
knattspyrnumönnunum
búninga með auglýsingu fyr-
irtækisins á, sem þeir munu
leika í a.m.k. í sumar. Snæ-
fellingar ætla sér stóra hluti
í deildinni og hafa æft vel
undir stjórn þjálfara síns,
Hollendingsins Peter de
Witte. A myndinni sjást Sig-
urður Kristinsson, forstjóri
T.S., og Peter de Witte þjálf-
ari ásamt Ellert Benedikts-
syni og nokkrum öðrum
leikmönnum Snæfells í nýju
búningunum.
D V-mynd/Róbert
Ólyginn
sagði...
Marlon
Brando
hefur nú í hyggju að koma
fram í sjónvarpsauglýsingu í
fyrsta skipti í langan tíma.
Brando, sem farinn er að
reskjast, hefur aðeins leikið
rremur auglýsingum síðustu
30 árin. Hann segist þó aðeins
gera þetta fyrir vini sína til að
reir geti fengið fleiri túrista í
heimsókn til Tahiti.
Jerry Lee
Lewis
er orðinn þreyttur á sjöttu
konu sinni, Kerrie. Jerry, sem
er 51 árs, er enn í fullu fjöri
og segist aldrei ætla að festa
sig í framtíðinni heldur lifa
fyrir söng, konur og vín. Kerrie
(23) og Jerry hafa verið sam-
an í tvö ár. Hún segir að
söngvarinn sé ótrúr og sam-
búð með honum sé andleg
og líkamleg hrollvekja. Hann
svarar jaessu fullum hálsi og
segir Kerrie vera hina mestu
„nóldurbikkju” sem geri ekki
annað en að eyða peningun-
um hans.
Michael
Jackson
er ek blankur. Nú nýverið
eyddi 'nn um 50.000 kr. í
barnarö, Eðlilega brá fólki við
og héldu r.ienn að Mikki hefði
nú slysast til að barna stelpu.
Svo var þó ekki, fötin voru
ætluð þesta vini hans um
þessar mundir. Vinurinn er
simpansi og sagt er að þeir
vinirnir deili með sér rúmi oq
mat.