Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1986, Page 12
12
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986.
Fjölmiðlar
Sígarettulaus
lögfræðingur
- nýtt andlit á skjánum
Landsmenn rekur í rogastans er
nýtt andlit fer að birtast reglulega á
sjónvarpsskjánum. Það gerðist nú
nýverið er Stefán L. Stefánsson hóf
að lesa erlendar fréttir í fféttatíma
sjónvarps. „Nýja andlitið" kom okk-
ur hér á DV ekkert spánskt fyrir
sjónir. Við þekkjum Stefán frá gam-
alli tíð er hann vann hér öll þau störf
er til féllu í pressugarði DV.
„í sjálfu sér er ekki mikill munur
á að vinna fyrir blað eða sjónvarp.
Ef til vill má segja að stressið sé á
öðrum tímum á vinnustað eins og
sjónvarpinu. Á DV spennast menn
allir upp á morgnana en á sjónvarp-
inu er stressið á kvöldin. Svo er það
bara spuming hvort mönnum hentar
betur að vera stressaðir á morgnana
eða kvöldin. Mér finnst betra að vera
stressaður á kvöldin," sagði Stefán.
Stressið á sjónvarpinu hefur þó
bersýnilega ekki alveg gert út af við'
Stefán þvi að á þeim stutta tíma sem
liðin er ffá því hann hóf störf hjá
sjónvarpinu hefur hann náð þeim
merka áfanga í lífi sínu að hætta að
reykja. I staðinn tyggur hann nýja
nikótíntyggjóið að ráði læknis:
„Ég var búinn að reykja látlaust í
13 ár og aldrei hætt. Þegar ég byij-
aði að vinna á sjónvarpinu varð mér
ljóst að þar reykti nánast enginn.
Það er ómögulegt að sitja einn í
reyknum."
Stefán L. Stefánsson er aðeins ráð-
Stefán L. Stefánsson, nýbakaður lögfræðingur og hættur að reykja.
DV-mynd ÓÖ
inn til sumarafleysinga hjá sjón-
varpinu. Er haustar mun hann að
öllum líkindum hverfa af skjánum
og hvað þá tekur við er óljóst. „Ég
var að ljúka lögfræðiprófi en er ekki
vanur að gera áætlanir langt fram í
tímann.“
Stefán L. Stefánsson er 29 ára gam-
all og ef einhver hefur áhuga getum
við upplýst það hér og nú að sambýl-
iskona hans heitir Guðrún Harðar-
dóttir. -EIR
Helgi S. Helgason
Forstjórabróðir
selur útvarpið
Ríkisútvarpið ætlar ekki að láta í
minni pokann fyrir einkaútvarps-
stöðvum sem búast má við að fari
að skjóta upp kollinum. Ráðinn hef-
ur verið nýr forstöðumaður allra
auglýsingadeilda útvarpsins og er
ráðgert að sameina þær undir eitt
og sama þakið í nýja útvarpshúsinu
um áramót.
Hlutverk nýja forstöðumannsins
verður að markaðssetja Ríkisútvarp-
ið eins og hverja aðra vöru og til
starfans hefur verið ráðinn Helgi S.
Helgason viðskiptafi-æðingur og
bróðir Sigurðar Helgasonar, for-
stjóra Flugleiða. Helgi tekur við
starfinu 1. ágúst en að undanfömu
hefur hann starfað hjá Scania-Vabis
umboðinu og meðal annars selt vöm-
bifreiðar. -EIR
Clapton með ódauðlegar perlur
- Hróarskelduhátíðin í Danmörku 1986
Waferboys frá Skotlandi komu mörgum á óvart með frábærri frammistöðu.
Hróarskelduhátíðin í Danmörku,
stærsta popphátíð í Evrópu, var
haldin í 15. skipti um síðustu helgi.
Undirritaður varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að upplifa herlegheitin
og mun ítarleg skýrsla birtast í
helgarblaði DV að viku liðinni. Hér
verður þó stiklað á helstu atriðum
Roskilde hátíðarinnar í ár.
Hátíðin var formlega sett kl. 5
föstudaginn 4. júlí og í kjölfarið
fylgdi þindarlaus tónlistarflutning-
ur er tók ekki enda fyrr en undir
rökkur á sunnudegi. Þá höfðu rúm-
lega eitt hundrað hljómsveitir og
tónlistarmenn látið ljós sitt skína.
Menn mega hafa sig alla við ef
þeir ætla að fylgjast með því helsta
sem fram fer á slíkri hátíð tónlistar
og mannlífs. Það er skemmtileg
reynsla fyrir hvem sem er að sækja
þennan mannfagnað, jafnvel fyrir
þá sem láta tónlistina sig litlu
skipta.
Frábær föstudagur
Feargal Sharkey reið á vaðið með
sitt geðþekka popp og lék lög af
sinni geysivinsælu sólóplötu auk
sígildra slagara úr tónsmiðjum
David Bowie, Rolling Stones o.fl.
Hin stórgóða skoska sveit Water-
boys var fyrsta stómúmerið á
aðalsviðinu og vann hún hug og
hjörtu áhorfenda sem þekktu þó
greinilega fátt til þessarar frábæru
hljómsveitar sem sent hefur frá sér
þrjár breiðskífur. Tónlist Water-
boys er hlý og þmngin stemmningu
og spannar litróf tilfinninganna,
gleði, trega, reiði, von. - En þetta
var aðeins byrjunin. Lloyd Cole &
the Commotions fylgdu í kjölfarið
og þýska sveitin BAP og um klukk-
an hálftíu var komið að snillingn-
um Elvis Costello og hljómsveit
hans, The Attractions. Þetta vom
fyrstu tónleikar Costellos með
Attractions í tæp 2 ár en piltamir
höfðu greinilega æft vel því fram-
lag þeirra var rafmagnað, borið
uppi af léttum grípandi rokklögum
af fyrstu tveimur breiðskífum Co-
stellos.
Einhverjum hefði þótt þetta yfrið
nægur skammtur af hágæðapoppi
á einum degi en rúsínan var eftir:
sjálft gítargoðið Eric Clapton með
hljómsveit sína er m.a. innihélt
Phil Collins á trommur. Clapton
flutti ódauðlegar perlur frá ýmsum
tímaskeiðum á glæsilegum ferli og
var sannarlega ógleymanlegt að
upplifa snilli meistarans í návígi.
Clapton er greinilega í toppformi
um þessar mundir og ekki skaði
að hljómsveit hans var mjög sterk.
Þetta er ungt og ...
Laugardagurinn var borinn uppi
af efnilegum nýliðum í breskri
rokktónlist. Fyrstan ber að telja
eldhugann og trúbadorinn Billy
Bragg sem líkt og hans er vani kom
fram einsamall með gítara í far-
teski og flutti baráttusöngva sína
fyrir jafnrétti og öðrum höfuð-
hugsjónum mannúðarsinna. Hull-
sveitin Red Guitars kom næst og
hefur efalítið aflað sér fjölmargra
nýrra aðdáenda með sínu aðgengi-
lega vitræpfrrokki. Að síðustu vil
ég nefna frsku hljómsveitina Blue
in heaven en hún leikur þungt
öflugt rokk og var flutningur henn-
ar og sviðsframkoma vel í hressi-
legri kanti. Blue in heaven á eftir
að feta hina grýttu braut til frægð-
ar og almennrar viðurkenningar
en af frammistöðunni í Roskilde
má ráða að hún muni uppskera
laun erfiðisins.
Suddi
Frammistaða veðurguðanna olli
miklum vonbrigðum, tárfellir
þeirra var með öllu óþolandi og
stórefa ég að þeim verði boðið á
næstu Hróarskelduhátíð eftir þessa
lúalegu framkomu. - Aðeins sá til
sólar í eitt skitið skipti og var það
kjarnmikið gítarrokk Big Country
sem ruddi burt þungbúnum skýjun-
um. Big Country kynnti m.a. lög
af glænýrri breiðskífu, The seer,
og sannaði að hún eru eitt al-
skemmtilegasta hljómleikaband
sem völ er á. Þá er aðeins eftir að
geta einnar stórsveitar, verðugs
fulltrúa íslands, Mezzoforte, en
hún er önnur íslenska sveitin sem
boðið er á hátíðina. Sú fyrri var
Kukl er sló í gegn þar í fyrra.
Mezzoforte nýtur töluverðra vin-
sælda í Danmörku sem endurspegl-
aðist í þrælgóðum undirtektum
áhorfenda við hinu vandaða jass-
poppi Frónbúanna. Var gleðilegt
að sjá Baunverjana öskra og
stappa af fögnuði þegar Mezzo
flutti stuðsmellina Garden party
og This is the night. Komust okkar
menn í alla staði vel frá sínu og
hafa vonandi tryggt áframhaldandi
þátttöku íslenskra sveita á Ros-
kilde hátíðinni. Hér hefur verið
minnst á nokkra hápunkta Ros-
kilde festivals árið 1986, sem var
vægast sagt vel heppnað og hrein-
asta veisla fyrir tónlistarunnendur.
Sem fyrr segir mun ég í næsta helg-
arblaði gera ítarlegri grein fyrir
hátíðinni, stemmningunni, mann-
lífínu og tónlistinni.
Skúli Helgason