Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1986, Síða 40
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið i
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjalst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 12. JÚLl 1986.
Albeit Guðmundsson um Guðmund J. Guðmundsson:
komu frá Bjöigólfi
„Frá því við töluðum um að ég
reyndi að hjálpa þér til hvíldardvalar
erlendis skv. læknisráði, vissir þú
Guðmundur
endurgreiðir
Albert
Guðmundur J. Guðmundsson
aiþingismaður hefúr endurgreitt
AÍbert Guðmundssyni iðnaðar-
ráðherra peningagjöf sem hann
þáði árið 1983, að viðbæt.tum
‘ •Ývöxtum.
í bréfi til Alberts, dagsettu 10.
júlí, segir Guðmundur meðal
annars: „Það sem ég taldi vera
vinargreiða af þinni hálfu hefúr
snúist upp í andhverfú sína og
hefur orðið að mesta bjamar-
greiða lífs míns. /.../ Nú liggur
sú niðurstaða saksóknara fyrir,
að ég hef i engu brotið gagnvart
lögum. En það er ekki allt málið,
það vissi ég fyrir. Hitt er sýnu
verra: Hin opinbera rannsókn
staðfestir að peningamir komu
alls ekki frá þér- þeir komu með
ólögmætum hætti frá þriðja að-
ila. Við það get ég ekki unað og
því sendi ég þér meðfylgjandi
bankaávisun að upphæð kr. 152.
250,- sem er höfúðstóllinn, ásamt
vöxtum frá 1983 og bið þig að
koma þessum peningum til
skila.“
Og undir þetta skrifar Guð-
mundur J. Guðmundsson. -EA
ALLAR GERÐIR
SENDIBÍLA
Skemmuvegur 50
LOKI
En hvaðan kom Guðmundi
tékkinn til Alberts?
að ég bað Björgólf Guðmundsson,
sem vin okkar beggja, um að standa
fyrir söfnun til ferðarinnar, en aldrei
var það svo skilið að ég einn léti úr
eigin vasa þær kr. 120 þús. sem þú
tókst við úr minni hendi.“ Þetta seg-
ir í bréfi sem Albert Guðmundsson
iðnaðarráðherra ritaði Guðmundi
J. Guðmundssyni alþingismanni í
gær.
Með bréfinu endursendi iðnaðar-
ráðherra Guðmundi ávísun að
fjárhæð 152 þúsund krónur. Guð-
mundur sendi Albert ávísunina á
fimmtudag og bað um að henni yrði
komið til skila. Með því vildi hann
endurgreiða 100 þúsund krónur sem
hann þáði frá Albert árið 1983.
Enn er ekki ljóst hvort Guðmund-
ur þáði 100 þúsund krónur eða 120
þúsund krónur frá Albert. í bréfi,
sem ríkissaksóknari sendi rann-
sóknarlögreglu ríkisins á fimmtu-
dag, segir að ágreiningur sé með
aðilum um fjárhæð. Viðtakandi segir
greiðsluna hafa verið 100 þúsund
krónur en samkvæmt greiðslugögn-
um og milligöngumönnum var hún
120 þúsund krónur.
í bréfi ríkissaksóknara segir að um
sé að ræða fjármuni frá Hafckip og
að rannsókn á máli Guðmundar
hafi farið fram í tengslum við rann-
sókn á áætluðum brotum forráða-
manna Hafckips við notkun á
sérstökum hlaupareikningi. Guð-
mimdur hafi verið yfirheyrður sem
vitni og því verði ekki um neina
málsókn gegn honum að ræða. í bréfi
saksóknara segir að ekki sé vitað til
þess að hann tengist með neinum
öðrum hætti rannsókn Hafekips-
málsins en þeim sem nú hefiir komið
fram.
í öðru bréfi, sem saksóknari sendi
rannsóknarlögreglunni á fimmtu-
dag, segir að ekki sé hægt að aðskilja
þátt Alberts Guðmundssonar frá
heildarrannsókn Hafckipsmálsins.
-EA
Blóðgjafi sýkt-
ur af eyðni
- hverjir fengu blóð hans?
f athugun á . öllum blóðbirgðum
Blóðbankans við Barónsstíg hefur
komið í ljós að einn blóðgjafi hefur
sannanlega verið sýktur af eyðni
(AIDS) er hann gaf blóð. Er nú unnið
að rannsókn á því hverjir og hversu
margir hafi fengið blóð hins sýkta í sig.
Frá 13. nóvember 1985 hafa öll blóð-
sýni er komið hafa í Blóðbankann, svo
og birgðir sem til voru í geymslu fyrir
þann tíma, verið skimuð með tilliti til
þess hvort í þeim leyndist eyðniveira.
Er niðurstaðan sú er fyrr greindi; einn
blóðgjafi hefur verið sýktur er hann
gaf blóð. Viðkomandi tilheyrir
áhættuhópi en þeir eru sem kunnugt
er hommar, eiturlylíasjúklingar og
blæðarar.
Alls hafa 25 íslendingar greinst með
eyðni, 18 hommar, 5 eiturlyfjaneytend-
ur og tveir sem falla utan áhættuhóp-
anna. Annar þeirra er maður er hafði
samfarir við vændiskonu erlendis,
hinn er kvenmaður sem að öllum lí-
kindum smitaðist við samfarir við
einstakling af gagnstæðu kyni.
Af þeim sem smitast hafa af eyðni
hér á landi eru langflestir á aldrinum
20-29 ára, eða 17 talsins. 6 eru á aldrin-
um 30-39 og 2 milli fertugs og fimm-
tugs. -EIR
í góða veðrinu, sem rikl hefur að undanförnu, er oft gott að kæla sig og fá sér is. Ekkl er annað að s]á en þær systur, Selma og Vald-
fs Hauksdætur, kunnl svo sannarlega að meta þennan Ijúffenga fylgiflsk sólargeislanna. DV-mynd Óskar ðm
Veörið um helgina:
Vindur
snýst
Um helgina snýst vindur smám sam-
an til suðlægrar áttar, með vaxandi
líkum á úrkomu sunnanlands og
vestan, þó ætti að verða þurrt víðast
hvar á laugardag. Norðanlands léttir
hins vegar til og áfram verður létt-
skýjað á Austurlandi. Þokkalega
hlýtt verður um allt land, allra hlýj-
ast þó norðaustan lands.
Pan-hópurinn
í svait/hvílu
„Menn geta pantað blandaðan hóp,
svartan eða alhvítan, allt eftir óskum
hvers og eins,“ sagði Sæmundur
Haukur Haraldsson sem rekur Pan-
sýningarhópinn og verslar með hjál-
partæki ástarlífeins í harðri
samkeppni við fyrrum samstarfemann
sinn. Sæmundur Haukur hefúr ráðið
þeldökkt sýningarfólk til starfa og
býður sýningar sínar á alla mann-
■ fagnaði, hvort sem er í heimahúsum
eða á opinberum skemmtistöðum.
Sala á hjálpartækjum ástarlífcins
virðist enn vera blómlegur atvinnu-
vegur hér á landi og þegar DV sló á
þráðinn í póstverslunina House of Pan
í gær og spurðist fyrir um umsvif versl-
unarinnar þessa dagana svaraði
afgreiðslustúlka: „Það dregur úr sölu
í júlí. Fólk virðist ekki hafa orku í
annað en liggja í sólbaði." -ElR