Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986.
5
Fréttir
Framkvæmdir við nýja útvarpshúsið
hafa gengið vonum framar.
Samkeppni
um gerð lista-
verks við
útvarpshúsið
Ákveðið hefur verið að efiia til sam-
keppni um gerð listaverks er sett
verður upp á lóð nýja útvarps- og sjón-
varpshúss Ríkisútvarpsins við Efeta-
leiti. Framkvæmdum við húsið hefur
miðað vel áfram og gert er ráð fyrir
að starfeemi útvarps flytji af Skúla-
götu 4 í nýja húsið snemma á næsta
ári en húsnæði sjónvarpsins verði full-
búið tveimur órum síðar.
Listaverkið mun verða staðsett ut-
anhúss á torgi framan við aðalinngang
hússins. Listaverkið, sem verður upp-
lýst, þarf að vera rismikið og fara vel
við húsið.
Öllum íslenskum listamönnum er
heimil þátttaka í samkeppninni en
komi í Ijós að verðlaunahafa skorti
reynslu • við útfærslu verksins þarf
hann að velja, í samráði við dómnefiid
og útbjóðanda, reyndari aðila sér til
aðstoðar við útfærsluna. í dómnefrid
eiga sæti Markús Öm Antonsson út-
varpsstjóri, Vilhjálmur Hjálmarsson
arkitekt og Kristján Davíðsson mynd-
listarmaður. Veitt verða verðlaun að
fjárhæð allt að 400.000. Fyrstu verð-
laun verða 250.000 krónur en veiting
annarra verðlauna og upphæð þeirra
er háð mati dómnefhdar.
Tillögum ber að skila í síðasta lagi
17. nóvember næstkomandi og hyggst
dómnefhdin ljúka störfhm fyrir árslok.
Haldin verður sýning á öllum gögnum
keppninnar og þeim tillögum sem upp-
fylla skilyrði útboðsins. Allar frekari
upplýsingar um samkeppni þessa em
veittar af trúnaðarmanni dómnefndar,
Þórhalli Þórhallssyni, skrifetofustjóra
SÍM.
-IÓ
Ættarmót haldið
í blíðviðrinu
Eegína Thorarensen, DV, Gjögri;
12. júlí síðastliðinn fór fram ættar-
mót í Ámesi í Strandasýslu í tilefhi
af hundrað ára afmæli Jóns Magnús-
sonar, Gjögri, en hann fæddist árið
1886 og dó 1946. Kona hans, Bjamveig
Friðriksdóttir, fæddist 1897 og dó 1978.
Þau bjuggu allan sinn búskap á Gjögri
og áttu 12 böm sem öll em á lífi. Vom
10 þeirra á ættarmótinu ásamt mökum
sínum og bömum og bamabömum.
Á annað hundrað manns var saman-
komið í Ámeskirkju og hélt presturinn
greinargóða minningarræðu um Jón
Magnússon í tilefhi afinæhsins. Vom
ættingjamir mjög ánægðir með ræð-
una. Við lok ræðu prestsins stóð
Guðmundur Þ. Jónsson, sonur Jóns
Magnússonar, upp og afhenti Guð-
brandsbilíu og er það sú stærsta bók
sem ég hef séð, bundin í skinnband
með gylltum homum og árituð af öll-
um bömunum tólf.
Var síðan farið í samkomuhúsið þar
sem veitingar vom frábærar og
skemmtiatriði fjölbreytt, en veg og
vanda af undirbúningnum við þetta
höfðu bamahöm hjónanna. Var Ingi-
mar Jóhannsson, sem er 19 ára
Reykvíkingur, veislustjóri. Hann stóð
sig með sóma og stjómaði veislunni
- vel.
Ball var haldið í samkomuhúsinu
um kvöldið og var öllum hreppsbúum
boðið þangað og var dansað af miklu
fjöri og lyst. Veðráttan var góð alla
þijá dagana sem afkomendur Jóns
vom hér.
Bflq 1 I
bilasaia hö/íín
Lágmúla 7 (bakhús) Sími: 688888
Bílinnísalinn-
og bíllinn
er farinn.
800 ferm sýningarsalur.
Honda Praiude árg. 1981, aport-
telgur, framhjófedriflnn ainábM.
Toyota Supra árg. 1983, aártega
fallegur sportbill.
Mazda 1,5 GT árg. 1982, með sól-
lúgu, vel með farinn.
Oldsmoblle Cutlass dfsll árg. 1981,
meö öllu.
1982, traust og
MMC Galant árg. 1980 GLS, topp-
elntak.
Hat Uno árg. 1984, fallegur bíll.
Honda Accord árg. 1985 og
1986, nýr blll.
Saab 900 GL
vönduö bifrelð.
Ath.! Girt 1 ha. sumarbústaðaland + peningar í skiptum fyrir bifreið.
Sími 68 - 88 - 88
e^\ag er(/y
Eyjaslóð 7, Reykjavík - Póslhólf 659
Símar 14093 - 13320 Nafnnr. 9879-1698
Nú er mikið úrval
af hústjöldum,
göngutjöldum og
gistitjöldum í ferðalagið.
Sendum í póstkröfu.
*
o
Cr
5 manna tjald, kr. 9.970,-
Fleygahiminn, kr. 12.292,-
(Keypt saman 10% staðgreiðslu-
afsláttur.)
Dallas
4ra manna, verð kr. ca 19.850,-
6 manna, verð kr. 25.040,-
Apollo
2ja manna, verð kr. 4.748,-
3ja manna, verð kr. 5.872,-
Barnatjöld í miklu úrvali frá kr. 1.000,
Hefur þú mátað alla sólstólana?
Viðleguútbúnaður
í miklu úrvali.
Hagstætt verð.
; J«.J i