Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Page 7
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986. 7 Veiðivon 20 punda hjá Pálma Veiðimaðurinn og söngvarinn Pálmi Gunnarsson hefur farið víða til veiða í sumar og veitt mikið. Pálmi var mættur í Vopnafjörðinn um leið og Hofsá var opnuð, og fékk hann laxa. Pálmi veiddi 20 punda fisk í ánni og var þetta hinn mesti bardagi. „Þetta var alveg meiri háttar barátta, virki- lega skemmtilegt,“ sagði Pálmi Gunnarsson um viðureignina við lax- Bláa höndin Veiðimönnum fjölgar og fjölgar, þannig á það líka að vera. Ný veiðifé- lög eru stofnuð og veiðimenn fara saman til veiða. Fyrir nokkrum dögum var nýtt veiðifélag stofnað í Borgar- firði og fékk félagið nafnið Bláa höndin. HA? Já, Bláa höndin og verð- ur líklega bara gert út á bláa fiska. Formaður hins nýja veiðifélags er Sig- mundur Eggertsson og ætla þeir félagar mest í silungsveiði. Tittir Veiðimenn, sem voru að koma af Amarvatnsheiði, báru henni ekki góð- ar sögur. „Við fengum saman 30 fiska og þetta vom mest „tittir“, fiskar frá 30 grömmum og upp í 1,5 pund,“ sagði Ólafur Bergmann Bjamason og bætti við. „Við fengum þetta fína veður og veiðin hefði átt að vera betri fyrir vik- ið, en það var öðm nær og þetta væri kannski hægt að veiða vel á togara. Veiðin hefur minnkað mikið síðan við fórum á Amarvatnsheiðina fyrst og fiskurinn er líka orðinn svo smár.“ Össur Skarphéðinsson ritstjóri var að koma af heiðinni nokkrum dögum á eftir Ólafi og hann sagði. „Þetta vom mest tittir sem við fengum, ég og Siggi bróðir." Tilraunastöng í Laxá í Refasveit Eitt hefur vakið athygli varðandi Laxá í Refasveit og það er „tilrauna- stöng“ sem veitt er á. Stöng þessi er leyfð í Norðurá, sem kemur ofan af Þverárfjalli og rennur í Laxá fyrir ofan brú við Núp i Laxá. Ekki er vitað til að lax hafi veiðst í Norðurá og ekki fyrir innan brúna yfir Laxá hjá Núpi. En með þessari tilraunastöng á að athuga þetta mál betur og kannski veiðist lax á þessum stöðum í sumar. Fjöldi veiðistaða er þama, svo s'em Bakkahylur, Bæjarfljót og Túnhylur í Norðurá. Töluvert veiðist af silungi á þessum stöðum. Margir vænir í Kleifarvatni Veiðisögur úr Kleifarvatni em sum- ar ótrúlegar þessa dagana eða eigum við að segja frekar sögur af þessum stóm úr vatninu. Eða öllu fremur þeim stóm sem em í vatninu og taka ekki neitt sumir. Veiðimenn, sem vom við veiðar nýlega, sáu nokkra væna synda rétt hjá landi en þeir vildu ekki neitt og létu sig hverfa út á djúpið. Skömmu seinna kom einn 11 punda urriði einn og hann tók agn veiðimanna, hinir sem komu fyrst vom margir stærri. 30 punda í Hrútafjarðará Sverrir Hermannsson er veiðimaður mikill og veiðir mikið á hveiju sumri, hvort sem það er í Þverá í Borgarfirði eða Hrútafjarðará. Sverrir var við veiðar í Hrútafjarðará fyrir skömmu og sá víst einn lax, um 30 punda. Sá vildi eklri Hary Mary fluguna góðu hjá Sverri. Kannski fær einhver annar veiðimaður þennan fisk næstu daga. Við skulum vona það. G. Bender ;•; «^11^ UÆw Breiðumörk 12 - Hverayerði Simi 99 4225. auglýsir: SUMARTILB0Ð A P0TTAPL0NTUM Eigum til takmarkað magn af stórum plöntum fyrir skrifstofur og stofnanir. Grænmeti og ávextir í úrvali Opið alla daga til kl. 21. Nissan Patrol TURBO dlsil 4*4, 1985. ekinn 76 þús. km, 5 gira, vökva- stýri, útvarp, 7 manna. Ath. skipti á ódýrari bll. Varð 970 þús. Nissan Laural dfsil árgarö 1983. gull- fallegur bill, ekinn 147 þús. km. sjálf- skiptur, vökvastýri, rafdrifnar rúður, topplúga. Ath. skipti á ódýrari. Verð 510 þús. Toyota HILUX pickup 4x4. m/plasthúsi. árgerð 1980, ekinn 70 þús. km. 6 cyl. Buick vél, sjálfskiptur, vökvastýri, breið dekk, spokefelgur, útvarp, segul- band, splittað drif að framan. Ath. opið á milli húsa. Ath. skipti á ódýrari bif- roið. Verð 480 þús. Subani XT turbo 4x4. árgerð 1988. ok- inn aðeins 3 þús. km, sjálfskiptur, vökvastýri, rafdrifnar rúður, stillanlegir demparar, hæðarstilling, veltistýri, sjálfvirkt aldrif o.fl. o.fl., meiri háttar sportbíll með óteljandi aukahlutum. Ath. skipti á ódýrari bifreið. Verð 900 þús. Mercedes Benz sendibill 4x4 dfsil, ár- gerð 1974, ekinn 90 þús. km, 5 gira, vökvastýri, innréttaöur aftur i. Ýmis skipti koma til greina. Verð 480 þús. Subaru station 4x4 árgerð 1985, okinn 25 þús. km. sjálfskiptur. vökvastýri, útvarp/segulband, litur d-blár. Bein sala. Verð 550 þús. ATH.: Nú eru komnir nýlegir bilar á skrá. t.d. Tercel 4x4, árgerðir '85 og '86, Subaru station 4x4, árgerð '86. Cressida turbo dísil. árgerð '85, BMW 323 I. árgerð '83, Nissan Blucbird disil, árgerð '85, Escort XR3 I, árgerð '84. Mazda 626 2000. 2ja dyra, árgerð '85, Colt '83, ásamt ýmsum öðrum frambærilegum bilum. Ertu með verki í bakinu ? Það er óþarfi! CLAIRCL heilsupúðinn eyðir bakverknum á þægilegan hátt. ClAIRDLheilsupúðann geturðu notað hvar sem er, í vinnunni, í bílnum, á ferðalagi eða heima. Með 10 mín. notkun í hvert sinn endist rafhlaðan í 150 skipti. CLAIROL heilsupúðinn mýkir stirða vöðva og liðamót og örvar blóðrásina. SKIPHOLTI 19' SÍMI 29800 VIÐTÖKUM VEl A M0TI ÞER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.