Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986. Fjölmiðlar DV „Síðustu dagar Pompeii" heitir nýr ítalsk-bandarískur framhaldsmynda- flokkur, sem sjónvarpið byrjar að sýna á miðvikudaginn kemur. Pompeii var ein af minni borgum ftalíu og lá við rætur fjallsins Vesúv- íusar. Borgin hrundi að nokkru í jarðskjálfta ánð 63 eftir Krist og var verið að endurbyggja hana þegar Vesúvíus tortímdi henni á nýjan leik, að þessu sinni endanlega. Einmitt þessar stórkostlegu nátt- úruhamfarir tryggðu Pompeii varanlega sess á spjöldum sögunnar því borgin er sjaldan nefnd nema í sambandi við sína hrikalegu jarðar- för. Vesúvíus gaus þann 24. ágúst árið 79. Aska og grjót þeyttust hátt í loft upp og logar leiftruðu í dimmum skýjabólstrum. Síðan skall yfir helli- regn sem breytti gosefnunum í steypiflóð ösku og vikurs sem á sex stundum gróf Pompeii undir átta til Atriði úr sjónvarpsþáttunum „Síðustu dagar Pompeii". Konan er iona, sem Olivia Hussey leikur. mál einstakra borgarbúa. Auglýsing- ar um herbergi til leigu, um týnda muni, um stuðning við frambjóðend- ur í kosningum, auglýsingar um skylmingaleika og fleira og fleira. Claucus elskar íonu í sjónvarpsþáttunum „Síðustu dag- ar Pompeii" fylgjumst við með Grikkja, Claucus að nafni, sem búið hefur í Pompeii í mörg ár. Claucus er velkominn inn á heimili allra betri Rómverja þó ekki sé hann rómversk- ur sjálfur, enda vel menntaður og fágaður maður og vellauðugar að auki. Claucus elskar fonu sem er róm- versk. Hún og bróðir hennar, Antoníus, höfðu verið alin upp af Arbaces, æðsta presti gyðjunnar Isis. Systkinin ungu líta á Arbaces sem föður sinn, en í raun er hann aðeins á höttunum eftir peningum þeirra og hafði átt þátt í að raunverulegum föður þeirra var fyrirkomið. Síðustu dagar Pompeii tíu feta þykku lagi. Allan þann dag og næsta á eftir nötraði jórðin og byggingar hrundu. Á þriðja degi birti loks upp aftur. en þá stóðu aðeins þök húsánna í borginni upp úr ösku- laginu. Frásagnir sjónarvotts Varðveist hafa frásagnir sjónar- votts af þessum ósköpum. Þegar þetta gerðist var náttúruvísinda- maðurinn Plíníus hinn eldri yfirmað- ur rómverska flotans í Mísenum. Hann fór á vettvang til að hjálpa nauðstöddu fólki og eins fýsti hann að rannsaka fyrirbæri þetta. Plíníus hinn eldri var aldinn að árum og virðist ferðin hafa orðið honum um megn, því þegar fólkið var að flýja undan reyk og hagli yfirbugaðist hann, hné til jarðar og dó. En frændi hans, Plíníus yngri, var með í ferðinni og í tveimur bréfum sem hann skrifaði sagnfræðingnum Tacitus, segir hann frá því sem hann upplifði og því sem honum var sagt um dauða frænda hans. Dagur varð sem dimm nótt íbúar í Pompeii voru nálægt tutt- ugu þúsund, en milli tvö og þrjú þúsund manns munu hafa farist í eldgosinu. Áhorfendur grófust í rústum leikhúsa, fjöldi fólks kafnaði af ryki eða eiturgufum og flóðbylgur vömuðu því að menn gætu flúið sjó- leiðina. Dagur varð sem dimm nótt þegar gosið stóð sem hæst. Margir flóttamenn týndu ástvinum sínum í myrkrinu og juku á skelfinguna með ópum sínum og kveinstöfum. Sumir ákölluðu guðina, aðrir æptu að allir guðir væm dauðir og sá heimsendir sem fyrir löngu hefði verið spáð væri nú skollinn yfir. Fáeinir þeirra sem eftir lifðu grófu í rústunum eftir verðmætum þegar eldgosinu lauk. Síðan var borgin yfirgefin og hvarf smám saman alger- lega undir nýjum jarðvegi. Hafist var handa við að grafa Pompeii upp árið 1749 og hefur verið fram haldið með hléum fram til dagsins í dag. Mestur hluti hinnar fornu borgar hefur nú verið afhjúpaður og svo margt í ljós komið að í sumum greinum þekkja menn Pompeii betur en Rómaborg hina fomu. Óhugnanlegar eftirmyndir af hinum dauðu Margir hinna dauðu varðveittust eins og smurlingar í goslaginu. Regnið og vikurinn myndaði stein- lím sem harðnaði og þornaði og með því að fylla þessi steypumót náttúr- unnar með gipsi fengust óhugnan- legar eftirmyndir hinna eyddu mannslíka. Fjölmargir létust af því þeir flúðu ekki heldur leituðu skjóls í kjöllur- um og öðrum stöðum innan dyra, sem menn héldu örugga. Fundist hafa beinagrindur af heilu fjölskyldunum. Sumstaðar sjást þess merki að fólkið hefur í örvæntingu reynt að grafa sig út úr húsunum. Þekktastur er fund- urinn af manni sem sat samanbeygð- ur í vatnsveitu við bóndabæ rétt fyrir utan Pompeii. Með líkama sínum hafði hann reynt að verja eitt stærsta safn silfurmuna sem til er frá þessum tímum. Þetta er hinn firægi Boscoreal fjársjóður sem varðveittur er á Louv- re safninu. Brask og saurlifnaður Af því sem grafið hefur verið upp hafa menn geta fengið góða mynd af lífi Pompeiinga. Þeir lifðu til að skemmta sér. I borginni voru þrjú almenningsböð, íþróttaskóli, lítið leikhús með sætum fyrir tvö þúsund og fimm hundruð manns, annað stærra, sem tók fimm þúsund, og hringleikhús þar sem tuttugu þúsund áhorfendur gátu skemmt sér við að horfa á aðra heyja dauðastríðið fyrir sig. Borgarbúar reistu guðum sínum musteri. en ekki voru þeir neitt til- takanlega trúhneigðir. Til þess voru þeir of önnum kafhir við iðnað og brask, leiksýningar og saurlifnað. Miðstöð borgarinnar var torgið og götumar út frá torginu fullar af há- værum sölumönnum og þrefandi kaupendum. Neðar í götunum voru svo veitingahús, spilavíti og pútna- hús. Menjar um innibúnað heimilanna bera vitni um öryggi, þægindi og fjöl- skrúðugar listir. Skrautlegt landslag og þokkafúllar konur vom gjaman málaðar á veggi húsa í Pomoeii og í mörgum húsanna vom ágætis högg- myndir. Megir þú hnerra notalega Ekki hefði fengist fullkomin mynd af lífi Pompeiinga hefðu þeir ekki haft þann sið að klóra hugrenningar sínar á veggi húsa. Yfir þrjú þúsund veggáletranir hafa verið lesnar í rústunum, en vafalaust hafa þær ver- ið miklu fleiri. Stundum krotuðu höfundamir nöfn sín eða einhver grófyrði, eins og menn stunda enn þann dag í dag. Einnig má finna skilaboð af ýmsu tagi til vina og óvina eins og til dæmis þessi: „Sam- íus ritar Comelíusi, hengdu þig.“ Víða em letruð ástarorð, oft í ljóð- um. Tryggur piltur skrifar unnustu sinni: „Lifðu heil Viktoría, og hvar sem þú ferð óska ég að þú hnerrir notalega." Engu færri em tilkynn- ingar um almenn efni eða nauðsynja- Claucus kemst að sannleikanum og segir Antoníusi. Antoníus ásakar æðsta prestinn sem drepur hann og kennir síðan Claucusi um morðið. Honum er varpað í fangelsi og dæmd- ur til að berjast við skylmingaþræl f hringleikahúsinu. Örlög hans virð- ast ráðin en þá dynja ósköpin yfir. Jörðin skelfur og drunur miklar skekja loftið, eldur og aska leggjast yfir borgina. En það er ekki vert að rekja sögu- þráðinn lengur til að eyðileggja ekki spennuna fyrir áhorfendum. Margir þekktir leikarar sjást í þessum þátt- um. Skal þar frægastan telja sjálfan lávarðinn, Lawrence Olivier. Önnur þekkt andlit em þar, til dæmis þeir Franco Nero, Emest Borgnine, Oli- via Hussey og Brian Blessed. Þætt- imir em sex talsins og koma í staðinn fyrir Hótelþættina. -VAJ Örvæntingarfullir Pompeiingar á flótta undan hamförum Vesúvíusar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.