Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1986, Qupperneq 40
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986.
Lögreglunienn án verkfallsréttar
Launa-
- hækkanir
12-24
prósent
Laun lögreglumanna hækka um 12
til 24% samkvæmt kjarasamningi sem
samninganefndir ríkisins og lögreglu-
manna undirrituðu í gær. Laun þeirra
hækka um 4 til 8 launaflokka. Allir
fá 3 launaflokka hækkun frá 1. febrú-
ar sl. Mismunurinn kemur síðan frá
1. september. Á móti þessu afsala lög-
reglumenn sér m.a. verkfallsrétti.
„Almennt tel ég þetta vera viðun-
andi samkomulag og með þvi opnast
möguleikar á að gera ákveðnar skipu-
lagsbreytingar hjá lögreglunni," sagði
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra í
gær.
í kjölfar þessara samninga er gert
ráð fyrir að miklar breytingar verði
gerðar á vaktafyrirkomulagi í tengsl-
um við þá úttekt sem gerð var á
löggæslustörfúm á höfúðborgarsvæð-
inu.
Einar Bjamason, formaður Lands-
sambands lögreglumanna, sagðist
ekki búast við að heildarlaun myndu
hækka mikið. Hins vegar mætti gera
ráð fyrir að yfirvinna ætti eftir að
dragast saman, svo fremi sem flótti
úr starfinu hætti. Lægstu laun hækka
úr um 21 þúsund krónum í yfir 24
þúsund krónur. Laun varðstjóra, 55
ára og eldri, hækka mest, eða úr um
34 þúsund í um 44 þúsund krónur.
Lögreglumenn gefa eftir ýmis atriði,
s.s. fatakostnað, og einnig lækkar
greiðsla vegna aukavinnu um helm-
ing. I næstu viku verður atkvæða-
greiðsla um samninginn.
„Útgjaldalega séð er þetta ekki dýr
samiiingur vegna þeirra skipulags-
breytinga sem á móti koma,“ sagði
Indriði H. Þorláksson, formaður
samninganefndar ríkisins.
Stjóm BSRB samþykkti í gær álykt-
un þar sem þess er krafist að ekki
komi til skerðingar verkfallsréttar
lögreglumanna. -APH
Ávallt feti framar
SÍMI 68-50-60.
,^o'0lLASröí
ÞRÖSTUR
SÍÐUMÚLA 10
LOKI
Selja þeir ekki ópal
á börunum á ísafirði?
m m ■■■
Var Sjallinn
seldur í aprfl?
- málaferii á milli eigenda Crown Chicken og stjómar Sjallans
þetta ggggj j^n Amason, flutninginn hjá hóraðsdómara í Um þetta snýst deilan. „Þeir segja
Jan G. HauHsaon, , AKureyn:_ annar eigenda kjúkhngastaðarins fyrradag að ef krafan næði ekki fram okkur hafe rift samningnum. Það
„Við gerðum samning 15. april við Crown Chicken á Akureyri, en eig- að ganga með fógetaaðgerðinni þá gerðumviðaldrei.Þeirbáðuásínum
stjómarmenn Akurs um kaup á endumir hafa krafist þess fyrir yrði hugsanlega farið í skaðabóta- tíma um ífest eftir að hafa skrifað
hlutabréfúm þeirra í Sjallanum en fógetarétti á Akureyri að þeim verði mál og jafnvel farið fram á lögbanp undir. Síðan gerðist ekkert. Við höf-
þeir eiga tæp 82% hlutafjárins. Þeir afhent tæplega 82% hlutafjár í Akri á rekstri Sjallans. um ekkert heyrt í þeim síðan. Þess
skrilúðu undir ásamt okkur og átti hf. sem rekur Sjallann. vegna viljum við láta reyna á gildi
samningurinn að taka gildi frá 1. Stjómarmenn Akurs, þeir Jón Kr. samningsins fyrir dómstólum,“ sagði
maí. Við teljum samninginn lögieg- Lögmaður eigenda Crown Chick- Sólnes, Aðalgeir Finnsson og Þórður Jón Rafri, annar eigenda Crown
an og viljum að dómstótar skeri úr en, þeirra Jóns Rafris og Helga Gunnarsson, telja að samningnum Chicken.
umhvorthannséígildieðaekki." Helgasonar, lýsti því yfir við mál- hafi verið rift með lögmætum hætti.
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra og Ólafur G. Einarsson þingflokksformaður ræða saman á þingflokksfundi
Sjálfstæðisflokksins í gær. DV-mynd Óskar öm
Albert
skýrði
sínmál
Aðalumræðuefni þingflokksfund-
ar Sjálfstæðisflokksins, sem hald-
inn var í gær, var breytingar í
bankamálum í ljósi þess að Útvegs-
bankinn stendur nú illa að vígi.
Viðskiptaráðherra kynnti leiðir til
breytinga; og voru þær ítarlega
ræddar.
Þá var einnig fjallað um kjara-
samning BHMR og lögreglumanna;
ennfremur um reglugerð um mjólk-
urkvóta sem væntanleg er á
næstunni.
í upphafi fúndarins skýrði Albert
Guðmundsson iðnaðarráðherra frá
því hvað á hans daga hefði drifið í
sambandi við „Guðmundarmálið".
Engar umræður urðu um hans
mál. Hugsanlegar haustkosningar
voru ekki ræddar. -APH
Veðrið um heígina:
Svipað
veður
verður um
land allt
I dag verður víðast bjart veður norð-
anlands en skýjað sunnanlands og
smáskúrir.
Á morgun (sunnudag) má búast við
að létti til með hægri norðanátt sunn-
antil á landinu en verði skýjað og
sums staðar skúrir norðantil. Hitastig
verður á bilinu 9-14 stig.
Gripinn
glóðvolgur
Bílstjóri var tekinn fyrir ölvun
við akstur á lögreglustöðinni á
Isafirði í gær.
Maðurinn kom akandi að lög-
reglustöðinni um hádegisbilið og
fór inn til að spyrjast fyrir um glöt-
uð pérsónuskilríki. Lögreglumenn
sáu þá að maðurinn var undir
áhrifum áfengis. Fékk hann ekki
að yfirgefa stöðina á ökutækinu.
Ekki mun maðurinn hafa verið
mikið ölvaður. Taldi lögreglan að
eitthvað af áfengi hefði setið í hon-
um frá gleðskap kvöldið áður.
-ÞJV
r
I
I
I