Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1986, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986.
Fréttir
Hvalamálið:
Hvað segja stjómmálaleiðtogarnir
um Coldwaterkönnunina?
Skoðcinakönnun Coldwater Seafood Corporation um aístöðu Bandaríkjamanna til hvalveiða,
sem Gallup-stofnunin framkvæmdi, hefur valdið nokkrum úlfaþyt. Eins og DV skýrði frá á fimmtu-
dag kemur þar fram að 77% Bandaríkjamanna eru á móti vísindaveiðum íslendinga.
En fleira kemur þar fram sem vert er að velta vöngum yfir. Meðal annars eru 42% tilbúin að
bindast samtökum um að hætta að kaupa íislenskan fisk, 84% eru samþykk þvi að Bandaríkja-
stjóm styðji bannið varðandi hvalveiðar í viðskiptaskyni, þó 52% hafi hvorki heyrt né lesið neitt
um alþjóðlega bannið gegn hvalveiðum í viðskiptaskyni.
En hvað segja stjómmálaleiðtogamir um niðurstöðu þessarar könnunar og hvemig túlka þeir
hana?
DV hafði samband við sex fulltrúa stjómmálaflokkanna. -KÞ
Guðmundur Bjamason, Framsóknarflokki:
Tilfínningasemin
ræður ferðinni
„Mér sýnist á þessu að menn
láti tilfinningasemina hlaupa
með sig í gönur, hins vegar er
niðurstaðan sem slík skiljanleg,
við erum svo óþekktir í Banda-
ríkjunum,“ sagði Guðmundur
Bjamason.
„Á sínum tíma greiddi ég at-
kvæði með hvalveiðibanni þar
sem ég taldi þá og tel enn að við
eigum að taka meiri hagsmuni
fram )Ær minni. Hins vegar
finnst mér allt tal um þessi nátt-.
úruvemdarsamtök og þeirra
talsmenn vera komið út í hreinar
öfgar.
En það sem við verðum að gera
í stöðunni er það að við þurfum
að kynna okkar málstað betur og okkar sjónarmið en þetta er
orðið það mikið tilfinningamál að erfitt getur verið að beita nokkr-
um rökum. En þótt við séum fá, smá og óþekkt verðum við að
taka okkur tak og beita fyrir okkur vísindamönnum til að koma
á framfæri grundvallaratriðum um þetta mál,“ sagði Guðmundur
Bjamason.
-KÞ
Guðmundur Bjarnason.
Svavar Gestsson, Alþýðubandalagi:
Andstaðan er
ekki útbreidd
„Það að svona hátt hlutfall
hefur aldrei heyrt minnst á hval-
veiðibann sýnir að andstaðan
gegn okkur er ekki eins mikil
og af er látið,“ sagði Svavar
Gestsson.
„Niðurstaða þessarar könnun-
ar þykir mér benda til þess að
sú andstaða, sem sögð er vera í
Bandaríkjunum gegn okkur, hef-
ur verið máluð alltof dökk. Mér
þykir athyglisverðast í þessu
hversu hátt hlutfall veit ekki
neitt um málið. Sú niðurstaða
könnunarinnar ýtir enn frekar
undir þá skoðun mína að við eig-
um hvorki að hneigja okkur fyrir Bandaríkjamönnum í þessu
máli né skoðanakönnuninni sem slíkri," sagði Svavar Gestsson.
-KÞ
Svavar Gestsson.
Sígríður Dúna Kristmund., Kvennalista:
Óttast
afleiðingamar
„Þessi niðurstaða kemur
mér ekki á óvart en ég óttast
afleiðingamar," sagði Sigríð-
ur Dúna Kristmundsdóttir.
„Ég er engan veginn undr-
andi á því hversu hátt hlut-
fall Bandaríkjamanna er á
móti vísindaveiðunum sem
slíkum, hins vegar kemur
mér á óvart að 44% skuli þó
vita um hvalveiðibannið því
að firéttaflutningur vestra af
erlendum vettvangi er ekki
mikill.
Við eigum mikilla hags-
muna að gæta á fiskmörkuð-
unum þar í landi og timinn
verður að leiða í ljós hver framvinda mála verður," sagði
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir.
-KÞ
Sigríöur Dúna Kristmunds-
dóttir.
Stefán Benediktsson, BJ:
Áróðursstarf
okkar ekkert
„Þessi niðurstaða er skilj-
anleg. Áróðursstarf okkar í
þessum hvalamálum er ekk-
ert í Bandaríkjunum,“ sagði
Sfefán Benediktsson, Banda-
lagi jafhaðarmanna.
„Við höfurn ekki tök á því
að snúa almenningsálitinu í
Bandaríkjunum í þessu máli
við. Þetta fólk getur ekki sett
sig í okkar spor. Við verðum
að gera okkur grein fyrir því
að kynni þessa fólks af hvöl-
um og slíkum dýrum eru af
Moby Dick og heimsóknum
í sædýrasöfn. Það er vonlaust Stefán Benediktsson.
verk að sannfæra þetta fólk,
sem horfir á fallega höfrunga og háhyminga leika listir sín-
ar, um að það þjóni einhverjum tilgangi að drepa þessi dýr,“
sagði Stefán Benediktsson.
-KÞ
Friðrik Sophusson, Sjalfstæðisflokki:
Vanþekking
Bandaríkjamanna
„Niðurstaðan er lýsandi dæmi
um vanþekkingu Bandaríkja-
manna í þessu máli. Það að 52%
skuli aldrei hafa heyrt minnst á
bannið, en samt eru 77% á móti
vísindaveiðunum, sýnir hversu
langt við eigum í land með að
kynna okkar málstað," sagði
Friðrik Sophusson.
„Annars kemur þessi niður-
staða mér ekki að óvörum. Þetta
fólk skilur ekki að þjóðir á norð-
urslóðum, sem lifa á veiðum,
þurfa að halda jafnvægi í náttú-
runni.
Þar fyrir utan hafa Banda-
ríkjamenn sumir hverjir aldrei
séð sjó, sumir virðast halda að
fiskur vaxi á tijám. Við verðum því að fara að hella okkur út í
það að reka áróður fyrir því sem við erum að gera ef við ætlum
að halda velli sem fiskveiðiþjóð," sagði Friðrik Sophusson.
-KÞ
Friðrik Sophusson.
Jon Baldvin Hannibalsson, Alþýðuflokki:
Úreld könnun
„Könnun frá í nóvember, eins
og þessi er, er gjörsamlega úreld
og hefur ekkert gildi. Það væri
hins fróðlegt að gera könnun
núna og fá viðbrögð Bandaríkja-
manna við atburðum síðustu
daga,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, Alþýðuflokki.
„Almennt eru Bandaríkja-
menn friðarsinnar og við verðum
að fá að vita hvort nýjustu tíð-
indin í hvalamálinu valdi því að
þeir hætti að kaupa af okkur fisk.
Alvara hvalamálsins liggur fyrst
og fremst í því hvaða áhrif þetta
hefur í framtíðinni. Ef á að fram-
fylgja varanlegu hvalveiðibanni
hefur það hrikaleg áhrif á fisk-
veiðiþjóð eins og okkur.
Einu rökin sem við höfum, og
erum ekki að ofbjóða stofhinum.
beygi sig fyrir staðreyndum. Það
hvalveiðar síðar meir,“ sagði Jón
Jón Baldvin Hannibalsson.
getum sýnt fram á, er að við
Við verðum að vona að menn
má ekki loka öllum dyrum á
Baldvin Hannibalsson.
-KÞ
Ertu fvlqjandi eða andvigur fyrirætlunum
Islendinga að veiða og drepa 200 hvali á ári
i vísindaskyni fram til ársins 1989?
80 -i
60 -
40-
E3 n
mw///1
: ®
'////////, %
///////// %
////,'////)
'/////■■y/A
/M/m...
///////// %
/////////, %
/////////■
V////////M
'/////////Xía
///////// I
///////// \
///////// í.
'/////////, |
',t
Fylgjandi Andvígir Óákveðnir
Hefur þú heyrt eða lesið eitthvað um
alÞióðleqa bannið gegn hvalveiðum í
viðskiptaskym?
60
50 H
40
30
20-
10 -
0
0 5?'
I ■ -—
V///Z/////. i
///,'' :%
/, ■/////,<!
W///////, i
//////////, i
'///////// I
’//////////. %
:'/////////1
'///////?/ f
Z'Z/l
WMÍ
z///////// 'i
////////M |
'//. '/// / ■ k
Ý/j/ÆW'
7/ym-.
V//'.
V/
//77/////
/////////>.
■Z////Z//M,
■/////////,
7////Z///M
v////////fö
'//////////
:////////).
'////////,/
//////■///■
Z///////M
Z//////Z'. i
'ZX/z/Zz
/////////,
/.y/////M
Z//Z/
iz/zmzS
Heyrt eða
lesið
Hvorki heyrt
né lesið
óákveðnír
Ertu fylgjandi eða andvígur því að halda
aíram að sækja veitingahús og onnur
fyrirtæki sem selja fisk frá íslandi ef
Islendingar veiða og drepa 200 hvali á
ári fram til ársins 1989?