Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1986, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1986.
5
Stjómmál
Vaxandi líkur eru á því að Steingrím-
ur fari fram á Reykjanesi.
Finnur Ingólfsson gæti reynst Haraldi
Ólafssyni skeinuhættur.
Róðurinn gæti reynst erfiður hjá Har-
aldi Ólafssyni að halda fyrsta sætinu
í Reykjavík.
Bolli Héðinsson minnir á sig.
er nú þótt óvíst sé hverju stuðnings-
menn Daviðs fái áorkað.
Annað í þessu er svo það að báðir
eru þessir menn á svokölluðum „svört-
um lista“ ungliðanna i flokknum sem
vilja þá í burt og nýja menn í staðinn.
Einn kandidat hefur verið neihdur til
sögunnar sem ef til vill gæti skotið
þeim Davíð og Alexander ref fyrir rass
og flogið inn í fyrsta sætið. Er það
kona af Skaganum, Steinunn Sigurð-
ardóttir, sem er sögð mjög vinsæl í
kjördæminu og frambærileg og vænleg
til að rífa til sín fylgi.
Ólafur Þ. í fallhættu?
Vestfirðimir eru nánast eins og
óskrifað blað þessar vikumar þar sem
allir bíða eftir þvi hvað Steingrímur
muni gera en hann hefur verið þar í
efsta sæti eins og kunnugt er. Nú hef-
ur flokkurinn þar tvo þingmenn, auk
Steingríms er það Ólafur Þ. Þórðar-
son. Samkvæmt nýju kosningalögun-
um fengi flokkurinn aðeins einn mann
þar sem þýðir að með sama fylgi nú
og síðast og það að Steingrímur haldi
þar sæti sínu er Ólafur úti.
Það mun Ólafi þykja mjög súrt í
brotið og er hann sagður hvetja Stein-
grím til að flytja sig til og sjálfur mun
hann þá ætla sér fyrsta sætið. En þrátt
fyrir að svo verði er ekki víst að sætið
verði Ólafs og enn em það ungliðam-
ir sem koma til. Ku nú róið stíft i
Þórunni Guðmundsdóttur, varafor-
manni SUF, að hella sér í slaginn og
taka stefhuna á fyrsta sætið ef Stein-
grímur flytur sig en ella annað sætið.
Er Þórunn sögð volg og velta þessu
máli mikið fyrir sér.
Óbreytt staða á Norðurlandi
vestra
Ekki er mikilla sviptinga að vænta
á Norðurlandi vestra. Þar hefur flokk-
urinn nú tvo þingmenn og heldur þeim
samkvæmt nýju kosningalögunum.
Þar hafa félagamir Páll Pétursson og
Stefán Guðmundsson setið og ætla sér
að sita áfram.
Er reyndar búist við að enginn muni
bjóða sig fram þar fyrir utan þá tvo
af neinni hörku heldur aðeins til að
„vera með“ eins og oft er sagt á
íþróttamáli.
Stefán í fyrsta sæti?
Á Norðurlandi eystra hefur Fram-
sóknarflokkurinn þrjá þingmenn nú
en missir einn samkvæmt nýju kosn-
ingalögunum. Þingmenn flokksins þar
Guðmundur G. Þórarinsson veltir
mikið fyrir sér framboði.
Er Olafur Þ. Þórðarson i fallhættu?
em nú Ingvar Gíslason, Stefán Val-
geirsson og Guðmundur Bjamason.
Eins og fram kemur hér að framan
ætlar Ingvar ekki fram aftur. Því telja
félagamir tveir sig sjálfekipaða í fyrsta
og annað sætið og sennilega verða
þeir þar.
Hins vegar hugsa að minnsta kosti
tveir aðrir sér gott til glóðarinnar og
yel getur farið svo að öðrum þeirra
takist að komast í annað sæti. Það er
Bragi Bergmann sem er í yngri kantin-
um og félagi í SUF. Er honum spáð
nokkurri velgengni fari hann fram.
Hinn er Hákon Hákonarson en við-
mælendur DV sögðust ekki hafa trú á
því að hann næði langt eins og staðan
væri nú.
Þá er ónefhd kona ein sem hart er
lagt að þessa dagana að bjóða sig fram.
Sú heitir Valgerður Sverrisdóttir og
er sögð vera að hugsa sig um. Er jafn-.
vel talið að hún gæti blandað sér i
baráttuna.
Halldór traustur í sessi
Á Austurlandi hafa tíu menn gefií
kost á sér í prófkjör flokksins þar. Þai
hefur flokkurinn nú tvo þingmenn, þí
Halldór Ásgrímsson og Jón Kristjáns-
son. Samkvæmt nýju kosningalögun-
um heldur flokkurinn þeim tveim.
Halldór er sagður mjög traustur :
sessi og engum takist að hnekkja veld:
hans þar í kjördæminu. Eins þykir Jón
nokkuð traustur og því þurfi allmikið
að koma til ef á að ýta honum til hlið-
ar, reyndar er enginn frambjóðend-
anna talinn líklegur til að gera það
Báðir þessir menn gefa kost á sér o§
því mjög ólíklegt að nokkur breyting
verði á efetu sætum listans.
Hinir átta sem gefið hafa kost á séi
eru Bimir Bjamason, Einar Baldurs-
son, Guðrún Tryggvadóttir, Jónas
Hallgrímsson, Sigurður Jónsson, Vig-
dís Sveinbjömsdóttir, Þórdís Bergs-
dóttir og Þórhalla Snæþórsdóttir. Af
þessum er Guðrún sögð líklegust til
að hreppa þriðja sætið.
Óviss staða á Suðurlandi
Á Suðurlandi er staðan mjög óviss.
Flokkurinn hefur nú tvo þingmenn
þar og heldur þeim samkvæmt nýju
kosningalögunum. Þingmennimir
tveir em Jón Helgason og Þórarinn
Siguijónsson sem eins og sagt er hér
að ffaman ætlar ekki fram.
Jón er hins vegar ákveðinn í að fara
í slaginn og talið er ólíklegt annað en
hann haldi fyrsta sætinu. En þá er það
annað sætið. Þrír aðrir hafa gefið kost
á sér í framboð eða látið í það skína
að svo verði. Það em Guðni Ágústs-
son, Guðmundur Búason og Unnur
Stefánsdóttir. Öll em þau talin líkleg
til að blanda sér í slaginn um annað
sætið.
Hins vegar eiga sennilega eftir að
koma fleiri framboð sem gjörbreytt
gætu stöðunni, þó mun varla koma til
þess að Jón falli úr fyrsta sætinu.
-KÞ
BQSCH
MA NOTA
HVAR SEM ER
ENCAR SNÚRUR, EKKERT VESEN
1921
Skrúfjárnsborvél með
átaksstillingu, stiglausri
hraðastillingu í báðar
áttir, tveggja gíra, 1. gír:
0-400 snúningar á
mín., 2. gír: 0-900
snúningar á mín. Skrúf-
járnsendar fyrir stjörnu
og venjulegar skrúfur
og hleðslutæki fylgja,
hleðslutími ca 1 klst.
Þyngd ca 1,5 kg.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlarxtebmut 16^« 9135200
Árið 1945 smíðaði Erhard Mettier ásamt 4 starfsmönnum fyrstu
METTLER vogina. í dag starfa 2300 manns hjá fyrirtækinu, umboð eru
í meira en 120 löndum og METTLER vogirnar eru tvímælalaust bestu
tölvuvogirnar í dag. Meira en 40 vogastærðir eru á boðstólum og
mæla þær þunga frá 0,000 000 1 g upp í 6 tonn. Vogirnar tengjast
öllum tölvum og prenturum. Góð og örugg þjónusta.
Mettler-Sauter. Frá míkrógrammi í 6 tonn.
SAUTER
Einkaumboð á íslandi,
KRISTINSSON HF.,
Langagerði 7,108 Reykjavík. Sími 3048Í!