Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1986, Blaðsíða 26
26
Andlát
Stefanía Ástrós Sigurðardóttir
lést 22. september. Hún fæddist 9.
september 1909 í Vestmannaeyjum.
Foreldrar hennar voru hjónin Sig-
urður Bjömsson trésmiður og Sigríð-
ur Ámadóttir kona hans. Stefanía
var gift Jóni Rögnvaldssyni blikk-
smið. Hann lést 29. apríl 1980.
Stefanía átti 4 uppkomin böm. Útför
hennar verður gerð frá Fossvogskap-
ellu í dag kl. 13.30.
Kristín Halldórsdóttir lést 13. sept-
ember. Hún fæddist í Reykjavík 23.
mars 1955. Hún var dóttir hjónanna
Halldórs Geirs Halldórssonar og
Guðrúnar Thorlacius. Kristín út-
skrifaðist sem stúdent úr öldunga-
deild MH sl. vor. Útför hennar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Friðgeir Guðjónsson vömbílstjóri
lést 14. september. Hann fæddist á
Víðiborði á Mýrum, Austur-Skafta-
fellssýslu, 31. október 1918. Foreldrar
hans vom Pálína Jónsdóttir og Guð-
jón Gíslason. Friðgeir hóf vömbíla-
akstur frá vömbílastöðinni Þrótti
árið 1947 og þá vinnu stundaði hann
til hinsta dags að undanskildum
nokkrum árum sem hann ók strætis-
vögnum Kópavogs. Eftirlifandi
eiginkona hans er Ölöf Sigurbjöms-
dóttir. Þau hjón áttu 8 böm en 7
þeirra em á lífi. Útför Friðgeirs verð-
ur gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
15.
Pétur Daníelsson frá Þómkoti, sem
lést í Landspítalanum 20. september,
verður jarðsunginn frá Víðidals-
tungukirkju laugardaginn 27. sept-
ember kl. 15. Minningarathöfn
verður í Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 25. september kl. 13.30.
Útför Ragnhildar K. Þorvarðs-
dóttur, Langholtsvegi 20, fer fram
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25.
september kl. 13.30.
Valur Einarsson verður jarðsung-
inn frá ísafjarðarkirkju laugardag-
inn 27. september kl. 14.
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1986.
Útvarp - sjónvaip
María Ólafsdóttir bankastarfsmaður:
Ágætur þáttur og fræðandi
í gærkvöldi horfði ég á þáttinn um
Kólumbíu og þótti mér hann ágætur
og fræðandi. En ég sá ekki nema
byijunina á nýja framhaldsþættin-
um „Vitni deyr“, og fannst mér það
sem ég sá fremur langdregið. Uppá-
haldsþátturinn minn í sjónvarpinu
er Fyrirmyndarfaðir. Armars ræðst
það frekar af tilviljunum hvað ég
horfi á. Það fer bara eftir tíma og
áhuga hverju sinni. Á mánudags-
kvöldið horfði ég til dæmis á Sinfón-
íuhljómsveit fslands og hafði mjög
gaman af því. En ég verð að segja
að mér hefur þótt sjónvarpsdagskrá-
in heldur léleg í sumar.
Ég hlusta mjög lítið á útvarpið á
virkum dögum. En oftast á rás 2 á
föstudagskvöldum. Reyndar kveiki
ég alltaf á útvarpinu á morgnana
og hef þá annaðhvort rás 1 eða
Bylgjuna á. Ég er nýfarin að prófa
að hlusta á Bylgjuna á morgnana
og líkar bara vel. Þetta er létt og
skemmtilegt efhi sem ágætt er að
byija daginn með og ágætis tilbreyt-
ing frá rás 1 þó að hún standi
reyndar alveg fyrir sinu.
Hafskipsmálið til
ríkissaksóknara
Þór Erling Jónsson verktaki lést
16. september. Hann fæddist í
Reykjavík 17. janúar 1939. Foreldrar
hans voru Inga K. Þorsteinsdóttir
og Jón H. Kristjánsson. Þór Erling
vann lengst af sem verktaki á stór-
Reykjavíkursvæðinu en síðustu árin
hjá Hreiðari Svavarssyni, veitinga-
manni í Smiðjukaffi og Y. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Guðný
Sverrisdóttir. Þau hjónin eignuðust
sex böm en einnig ól hann upp dótt-
ur Guðnýjar. Útför hans verður gerð
frá Kópavogskirkju í dag kl. 15.
Hólmfríður Guðjónsdóttir, áður
til heimilis í Breiðagerði 8, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu
föstudaginn 26. september.
Halldór Siguijón Sveinsson skip-
stjóri, Skógargerði 9, Reykjavík,
andaðist 21. september.
Sigríður Elín Tómasdóttir frá
Stykkishólmi andaðist í Landspítal-
anum 17. sept. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju 25. sept. kl. 10.30.
Útför Jóns Jónssonar frá Drangs-
nesi, Nesvegi 52, Reykjavík, fer fram
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25.
september kl. 15.
Útför Ingólfs Sigurlaugssonar,
Langholtsvegi 14, Reykjavík, fer
fram föstudaginn 26. september kl.
15 frá Áskirkju.
Ýmislegt
UNM-tónleikar
í dag, miðvikudaginn 24. september, kl.
21 verða haldnir í Norræna húsinu tón-
leikar á vegum UNM á fslandi (Ung
Nordisk Musik). Þeir eru haldnir til kynn-'
ingar og ijáröflunar fyrir þátttöku íslands
í árlegri tónlistarhátíð norræns æskufólks
sem verður haldin að þessu sinni í Árósum
dagana 4.-12. október næstkomandi. Áætl-
að er að 13 manna hópur ungra hljóð-
færaleikara og tónskálda sæki hátíðina
af fslands hálfu og flutt verða átta íslensk
tónverk.
Á efnisskrá tónleikanna í Norræna hús-
inu verða fjögur þessara verka. Frumflutt
verður „Tríó“ eftir Hauk Tómasson. Flytj-
endur eru Gerður Guðmundsdóttir á fiðlu,
Bryndís Björgvinsdóttir á selló og Anna
Guðný Guðmundsdóttir á píanó. Anna
Guðný mun einnig leika undir víólu Helgu
Þórarinsdóttur í „Dimmu" Kjartans 01-
afssonar en geta má þess að þetta verk
hreppti verðlaun í tónsmíðasamkeppni
Ríkisútvarpsins á síðasta ári. Eftir Misti
Þorkelsdóttur verður flutt „Danslag" en
það heyrðist nú í fyrsta sinn í útfærslu
fyrir sópranrödd. Það er Jóhanna Linnet
sem syngur við gítarundirleik Páls Eyj-
ólfssonar. Fjórða verkið á efnisskránni er
raftónverk eftir Helga Pétursson og ber
það titilinn „Trans I-H“.
Fyrirlestur á vegum Rann-
sóknarstpfu
Háskóla Islands í lífeðlisfræði
Fimmtudaginn 25. september kl. 16 mun
dr. G. Edgar Folk, prófessor í lífeðlisfræði
við háskólann í Iowa í Bandaríkjunum,
halda fyrirlestur er nefnist: Notkun
senditækja við lifeðlisfræðilegar rann-
sóknir. Fyrirlesturinn verður haldinn að
Grensásvegi 12, 2. hæð, og er öllum opinn.
Hann verður fluttur á ensku. í fyrirlestrin-
um mun verða fjallað um þá tækni sem
gerir það kleift að fá lífeðlisfræðilegar
upplýsingar frá dýrum sem lifa frjáls í
náttúrunni. Litlum sendum er annaðhvort
komið fyrir inni í dýrinu eða utan á því.
Þetta gefur meiri upplýsingar en hægt
hefur verið að fá með sendum sem einung-
is rekja slóð dýranna. Prófessor Folk mun
í fyrirlestrinum sýna.og segja frá notkun
sendis sem hann kallar „Iowa sendi".
Hann mælir hjartsláttartfðni og líkams-
hitastig og tekur hjartalínurit. Tækni sem
þessa er einnig hægt að nota til að taka
heilalínurit og mæla blóðþrýsting og blóð-
flæði. Þá má nefha að þó aðeins sé mæld
hjartsláttartíðni er hægt að fá með því
mikilvægar upplýsingar um virkni dýra
og efnaskiptahraða, vegna þess að slag-
magn hjartans breytist lítið við eðlilega
virkni heilbrigðra dýra. Prófessor Folk
mun sýna notkun á „íowa sendi“ og segja
frá mælingum sínum á líkamshitastigi
stórra dýra í dvala.
Fyrirlestur
f dag, miðvikudag 24. september, mun dr.
Viðar Guðmundsson eðlisfræðingur flytja
fyrirlestur um rannsóknir sínar og félaga
sinna á Max Planck stofnuninni í Stutt-
gart. Viðar er fræðilegur eðlisfræðingur
og starfar í rannsóknahóp, sem prófessor
von Klitzing stýrir. Klitzing hlaut nóbels-
verðlaunin í eðlisfræði 1985 fyrir upp-
götvun sína á skömmtuðum Hall-hrifum.
Hópurinn fæst mest við rannsóknir á Ga-
As hálfleiðurum í segulsviði. Gallíum
arseníið er í vaxandi mæli notað í rafeind-
arásir í stað kísils. Fyrirlesturinn er opinn
almenningi og verður í stofu 157 í VR-2
byggingu verkfræðideildar Háskólans við
Hjarðarhaga kl. 16.15. Viðar nefnir erindið
Ástandaþéttleika tvívíðra rafeinda-
kerfa í sterku segulsviði. Fyrirlesturinn
er flutur á vegum Eðlisfræðifélags fslands
og eðlisfræðistofu Raunvisindastofnunar
Háskólans.
Afmæli
80 ára er í dag, miðvikudaginn 24.
september, frú María Pálsdóttir frá
Höfða í Grunnavíkurhreppi, Stýri-
mannastíg 13 hér í bænum. Hún
ætlar að taka á móti gestum í Veit-
ingahöllinni, í Húsi verslunarinnar
við Kringlumýrarbraut, eftir kl. 20 í
kvöld.
60 ára er í dag, miðvikudaginn 24.
september, Björn Haraldsson
bankafulltrúi, Hverfisgötu 28 hér í
bænum. Hann er að heiman.
Rannsókn rannsóknarlögreglunnar
á Hafskipsmálinu er lokið og verða
niðurstöður rannsóknarinnar sendar
til ríkissaksóknara í dag.
Þórir Oddsson, settur rannsóknar-
lögreglustjóri, vildi ekkert tjá sig um
niðurstöður rannsóknarinnar í morg-
Einn maður var handtekinn af fíkni-
efnalögreglunni síðdegis í gær í
tengslum við rannsókn lögreglunnar
á amfetamínmálinu sem kom upp ný-
lega. Einnig náði lögreglan meira
magni af amfetamíninu í tengslum við
handtökuna en ekki fékkst uppgefið
hve mikið það magn var. Er mál þetta
un, sagði að hugsanlega myndi ríkis-
saksóknari óska eftir framhaldsrann-
sókn á einstökum þáttum málsins.
Rannsókn þessa máls er ein um-
fangsmesta sem RLR hefur staðið að
á síðustu árum og fá mál hafa vakið
jafrimikla athygli. -FRI
kom fyrst upp var lagt hald á 135
grömm af fíkniefiiinu.
Að sögn Amars Jenssonar, yfir-
manns fíkniefnalögreglunnar, var
maðurinn, sem handtekinn var í gær,
tekinn ásamt tveimur öðrum er málið
kom fyrst upp en sleppt fljótlega. Hann
situr nú í gæsluvarðhaldi. -FRI
HM í Miami:
IVö íslensk pör í und-
anúrslitum heims-
meistarakeppninnar
Tvö islensk pör náðu sæti í und-
anúrslitum heimsmeistarakeppn-
innar í tvímenningi í Miami.
Þórarinn Sigþórsson og Þorlákur
Jónsson náðu þessum áfanga létti-
Bridge
Stefán Guðjohnsen
lega, en hitt parið varð óvænt Jón
Baldursson og Sigurður Sverris-
son.
Jón og Sigurður náðu risaskor í
síðustu umferð fjórðungsúrsli-
tanna og hækkuðu um heil áttatíu
sæti, eða úr 219. sæti í 139.
Guðmundur Hermannson og
Bjöm Eysteinsson fengu hins veg-
ar lakari skor í síðustu umferðinni
og náðu ekki í undanúrslitin.
Samkvæmt reglum mótsins kom-
ast 40 pör úr undanúrslitakeppn-
inni í úrslit, en 168 taka þátt, en
að auki komast átta pör úr sárabó-
takeppni, sem fer fram samtímis
milli þeirra, sem ekki komust í
undanúrslit. Öm Amþórsson og
Guðlaugur R. Jóhannsson em
meðal keppenda í þeim flokki.
Bandaríkjamennimir Meekst-
roth og Rodwoll, fyrrverandi
heimsmeistarar, urðu í efsta sæti í
fjórðungsúrslitunum, Frakkamir
Áttelier og Poubou í öðm sæti og
fyrrverandi heimsmeistarar frá
Brasilíu, Chagas og Branco, í
þriðja sæti.
Undanúrslitakeppninni lýkur
næstu nótt og við verðum með
nánari fréttir í blaðinu á morgun.
-StG
Rannsókn amfetamínmálsins:
Einn handtekinn og
meira efhi fannst