Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1986, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1986.
Iþróttir
„Höfum leik-
ið þokkalega
ik
-segir Atkinson, stjóri Utd
„Það gæti hljómað imdarlega en
að mínum dómi höfum við leikið
þokkalega það sem af er keppnis-
tímabilinu. Það var kannski í
einum leik sem við lékum beinlínis
illa,“ sagði Ron Atkinson, fram-
kvæmdastjóri Manchester United,
í sjónvarpsviðtali í Englandi á
sunnudagskvöldið. Það er farið að
hitna mjög undir Atkinson og þyk-
ir árangur liðsins það sem af er,
að áliti stuðningsmanna þess,
jaðra við hneyksli. Liðið er skipað
mörgum af bestu leikmönnum
Englands og er í næstneðsta sæti
í deildakeppninni með 4 stig eftir
sjö umferðir.
„Við munum berjast áfram og
ég er ákveðinn í því að snúa þess-
ari þróun við. Satt best að segja
langar mig til að láta marga éta
þau stóru orð, sem hafa verið höfð
um mig, ofan í sig,“ sagði Atkin-
son. -SMJ
HG til Islands?
Framarar eru nú í vinna í því að fa
danska handknattleiksliðið HG/Glad-
saxe í heimsókn til Island upp úr
miðjum október. Félagið kemur þá til
með að leika hér nokkra leiki. Hér á
árum áður var það árviss viðburður
að dönsk lið heimsóttu ísland.
Þjálfari Framliðsins, Per Skárup, lék
með HG/Gladsaxe sl. vetur. Hann hef-
ur rætt við forráðamenn félagsins sem
hafa sýnt áhuga að koma hingað til
lands. -SOS
Piontek vill
fá Molby í
læknisskoðun
Sepp Piontek, landsliðsþjálfari
Danmerkur, var afar óhress þegar
Jan Mölby, sem leikur með Li-
verpool, kom ekki til Kaupmanna-
hafnar fyrir leik Dana og
V-Þjóðverja. Sagt var að Mölby
ætti við meiðsli að stríða í ökkla.
Piontek hafði strax samband við
Liverpool og óskaði eftir því að
Mölby kæmi til Kaupmarmahafh-
ar í læknisskoðun. -SOS
Simonsen kveður
Allan Simonsen leikur síðasta
landsleik sinn fyrir Danmörku í
Kaupmannahöfii í kvöld. Þá mæt>
ast Danir og V-Þjóðveijar þar í
vináttulandsleik. Simonsen, sem
er 33 ára, hefur leikið 14 ár í lands-
liðmu, eða síðan hann klæddist
fyrst landsliðspeysunni og skoraði
tvö mörk gegn íslendingum á
LaugardalsveUinum 1972. -SOS
Kassler rekinn
George Kassler, þjálfari Köln,
hefur verið látinn taka pokann
sinn eftir aðeins sjö mánaða dvöl
hjá félaginu. Köln hefur aðeins
þijú stig í v-þýsku Bundesligunni.
Kessler, sem er 53 ára, gerðist
þjálfari hjá Köln í febrúar. Hann
keypti fimm nýja leikmenn til Köln
fyrir þetta keppnistímabil, þar á
meðal Danann Morten Olsen og
Englendinginn Tony Woodcock.
-sos
Dómarar fa
kostaboð
„Við erum auðvitað mjög ánægðir
með þessa þróun og nú er bara að
standa sig,“ sagði Rögnvald Erlings-
son handknattleiksdómari þegar við
slógum á þráðinn til hans í gær. Hann,
ásamt Gunnari Kjartanssyni, hefúr
fengið boð um að dæma leiki erlendis
á næstunni.
Fyrsta verkefiiið er Evrópuleikur
norsku og dönsku meistaranna í
kvennaflokki en sá leikur fer fram í
Noregi á sunnudaginn. Ekki fá þeir
félagar langa hvíld eftir heimkomuna
þaðan því um næstu mánaðamót halda
þeir til Spánar og dæma þar leiki á
heimsmeistaramóti kvennaliða.
Rúsínan í pylsuendanum
Rúsínan í pylsuendanum er svo boð
sem þeir Rögnvaldur og Gunnar fengu
frá danska handknattleikssamband-
inu og munu þeir dæma landsleik
Dana og Norðmanna sem fram fer í
janúar á næsta ári. Mjög langt er síð-
an íslenskir dómarar hafa fengið svo
viðamikil verkefni og þakka menn
þetta mjög miklum og góðum störfúm
Kjartans Steinbacks hjá Handknatt-
leikssambandi Islands en hann hefur
unnið mjög ötullega að dómaramálum
að undanfömu.
-SK
Ami fotbrotnaði
- mikil vandræði hjá KR í handboltanum
kvöld. Líklegt er að 2. flokks
markvörður verði settur i markið en
sá er að stíga upp úr árs meiðslum.
„Þetta er mikið áfall og við erum
alveg markmannslausir sem stendur,“
sagði Ölafur Jónsson, þjálfari KR-inga
i handknattleik, í samtali við DV i
gær. Sem kunnugt er meiddist Gísli
Felix markvörður illa fyrir nokkru og
í fyrradag fótbrotnaði Ami Harðarson
sem staðið hefur i marki vesturbæjar-
liðsins það sem af er Reykjavíkurmót-
inu í handknattleik.
Þetta er mikið áfall fyrir KR-inga
sem eiga að leika til úrslita í Reykja-
víkurmótinu gegn Val á fimmtudags-
Gísli Felix að ná sér
Gísli Felix Bjamason sagði í samtali
við DV í gær að hann væri allur að
koma til en hann ætti þó nokkuð í
land ennþá. „Ég reyni að vera klár í
slaginn fyrir fyrsta leikinn í íslands-
mótinu," sagði Gísli Felix.
-SK.
Ekkert mark í Noregi
Noregur og Austur-Þýskaland
skildu jöfn í landsleik þjóðanna, skip-
uðum leikmönnum 21 árs og yngri.
Ekkert mark var skorað í leiknum sem
fram fór í Hamar í Noregi. Áhorfendur
vom 722.1 gærkvöldi léku einnig Sví-
þjóð og Sovétríkin og ekkert mark var
heldur skorað þar. Áhorfendur vom
1462.
-SK.
Noregur mætir A-Þýskalandi
Norðmenn leika án fyrirliða síns, Hall-
var Thoresen, þegar þeir mæta A-Þjóðverj-
um í Evrópukeppni landsliðs í Osló í
kvöld. Thoresen, sem leikur með Eind-
hoven í Hollandi, er meiddur. Norðmenn
og A-Þjóðverjar íeika í sama riðli í EM
og íslendingar, Rússar og Frakkar.
A-Þjóðverjar hafa leikið sex landsleiki
í röð án þess að skora mark. Norðmenn
eru bjartsýnir á sigur. Tor Roste Fossen,
landsliðsþjálfari Norðmanna, segir að
Andreas Thom hjá Dynamo Berlín sé
hættulegasti leikmaður A-Þjóðverja og
hann reiknar með að þeir leiki 4-4-2 gegn
Norðmönnum.
-sos
•Asgeir Sigurvinsson sést hér í landsleiknum gegn Frökkum á Laugardalsvell
„Island fagnar hínum
litla Beckenbauer
íi
- Sigi Held og úrslitin gegn Frökkum vekja mikla athygii í Þýskalandi
tungumál og íslendingar hafa ferð-
ast mjög mikið."
Affi Himaissan, DV, Þýskalandi;
„Morguninn eftir landsleik Islands
og Frakklands flaug Held til Lúxem-
borgar frá Reykjavík. Hann var
samferða Atla Eðvaldssyni, fyrirliða
íslenska landsliðsins, og hélt frá
Lúxemborg til heimabæjar síns,
Dortmund. Þegar Held kom til
Þýskalands var hann mjög hissa á
þeirri miklu umfjöllun sero lands-
leikur íslands og Frakklands fékk í
þýsku blöðunum.“
í nýjasta hefti þýska íþróttablaðs-
ins Kicker er grein um Sigfried Held,
landsliðsþjálfara íslands, í knatt-
spymu og framansagt er úr um-
ræddri grein sem þar birtist. Áfram
úr Kicker:
varð frægur á ný og komst í sviðsljó-
sið á einni nóttu eftir frábæra
frammistöðu íslenska landsliðsins
gegn Evrópumeisturum Frakklands.
Eftir leikinn tók hann sér vikufrí
og heimsótti fjölskyldu sína í Dort-
mund. Þegar hann kom þangað
stoppaði ekki síminn. Dagblöðin á
íslandi vildu fá að vita allt um Held
og líf hans og á íslandi var hann
kynntur sem maður vikunnar."
„Frægur á einni nótlu“
„Eftir tvö ár sem atvinnulaus þjálf-
ari tók Sigi Held, sem lék 41 lands-
leik fyrir Vestur-Þýskaland, við
íslenska landsliðinu í febrúar. Hann
„Aldrei komið fyrir áður“
I greininni í Kicker er haft eftir
Held: „Svona árangri gegn gífurlega
sterkum andstæðingum hefur ís-
lenska landsliðið aldrei náð áður.
Ég kunni strax vel við mig þegar ég
kom til íslands. Ég hef orðið var við
að margir Þjóðverjar álíta íslend-
inga algera frumbyggja en það eru
þeir alls ekki. íslendingar eru mjög
opinskáir og opnir fyrir öllu sem er
að gerast í kringum þá í heiminum.
Næstum allir íbúar Islands tala tvö
„Lambakjöt og lax“
Sigi Held heldur áfram og segir:
„Lambakjöt og lax er orðið uppá-
haldsmatur hjá mér. Það fæst hvergi
nýrri og betri fiskur en í Reykja-
vík,“ segir Held og greinilegt er að
hann er mjög ánægður með veru
sína á íslandi. í sumar dvaldist kona
hans f sjö vikur hjá honum á íslandi
en hún dvelur nú í Þýskalandi.
spurð að því í greininni í Kicker
hvort hún hafi aldrei getað hugsað
sér að flytjast með manni sínum til
íslands.
„Númeri minni en Becken-
bauer“
Vera Sigi Held á íslandi hefur vak-
ið mikla athygli í Þýskalandi og
kona hans, Christel, hefur oft orðið
að svara spumingum fjölmiðla varð-
andi eiginmann sinn og starf hans á
íslandi. Hún svarar jafnan á þessa
leið: „Það má líkja starfi Sigi Held
á íslandi við starf Franz Becken-
bauer hér í Þýskalandi. Held er bara
Christel er
emu numen mmm.
„Veðrið ekki nægilega gott“
Christel er mikill sóldýrkandi og
svarar spumingunni á þessa leið: „Ef
veðrið væri betra á íslandi gæti ég
vel hugsað mér að setjast að þar.“
Sigi Held sér verkefiii sitt í öðm ljósi
og segir rólegur eins og hans er von
og vísa: „Ef vel er spilað og góður
árangur næst á knattspymuvellin-
um em íslendingar líka hæstánægð-
ir með lífið.“
í umræddri grein í Kicker er sagt
að næsta stórverkefiii íslenska
landsliðsins og Sigi Held sé viður-
eignin við Sovétríkin á miðvikudag
og blaðið veltir því fyrir sér hvort
önnur óvænt úrslit muni líta dagsins
ljós. Það er greinilegt að Þjóðverjar
bíða með álíka óþreyju eftir úrslit-
unum í þeim leik og íslendingar.
-SK
r
I
I
I
I
I
I
I
I
i
I
I
I
i
I
I
I
I
I
I
I
«
c
sl