Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1986, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1986.
Utlönd
9
DV
Sænskir læknar:
Einangrið
eyðnisjúkl-
inga í sér-
stökum sam-
félögum
Gunnlaugur Jónaaon, DV, Lundi;
„Eina úrræðið er að einangra
alla þá er smitast hafa af eyðni
í sérstökum samfélögum og
skylda alla íbúa Svíþjóðar, sem
náð hafa 15 ára aldri, til að gang-
ast undir blóðpróf á sex mánaða
fresti,“ skrifa tveir sænskir lækn-
ar í heilsíðugrein í Svenska
Dagbladet í gær. Greinin hefur
vakið gílurlega athygli en undir-
tektimar hafa jafiiframt verið
mjög neikvæðar.
„Eyðni virðist ætla að verða
mesti harmleikur nútímans á
heilbrigðissviðinu. Það er engin
lækning til og verður ekki til á
næstunni. Fjöldi eyðnitilfella
tvöfoldast um það bil áttunda
hvem mánuð. Með sama út-
breiðsluhraða munu árið 1992
verða 39.000 eyðnisjúklingar í
Svíþjóð, áttatíu prósent þeirra
munu láta lífið tveimur árum
eftir að þeir hafo fengið sjúk-
dóminn,“ skrifa læknamir. „Að
einangra hina smituðu er harm-
leikur fyrir þessa einstaklinga.
En það er betra en að hundruð
þúsunda smitist innan 10 ára og
að tugþúsundir deyi úr eyðni á
sama tímabili," segir ennfremur
í grein læknanna.
Gertrud Sigurdsen heilbrigðis-
ráðherra er meðal þeirra sem
gagnrýnt hafa sjónarmið lækn-
anna tveggja og segir það í senn
ómannúðlegt og óraunsætt. „Til-
lögumar em greinilega settar
fram í fullri alvöm þó erfitt sé
að trúa því. En auk alls annars
sem má út á þær setja em þær
óframkvæmanlegar frá kostnað-
arsjónarmiði," segir heilbrigðis-
ráðherrann. Ýmsir aðrir hafa
verið enn harðari í gagnrýni
sinni um tillögumar og líkt þeim
við tillögur öfgahópa í Banda-
ríkjunum og sagt að þær séu með
öllu óframkvæmanlegar í lýð-
ræðisþjóðfélagi.
Súdanskir
skæruliðar
hamla ekki
matvæla-
dreifíngu
Haft er eftir talsmönnum al-
þjóðlegra hjálparstofhana í
Súdan, er annast hafa matvæla-
dreifingu í landinu, að skæmlið-
ar, ér berjast gegn stjómvöldum,
hafi gefið fyrirheit um að þeir
myndu ekki frekar trufla dreif-
ingu matvæla í landinu en orðið
er.
Skæruliðar súdanskra stjóm-
arandstæðinga, er mest hafa sig
í frami í suðurhluta landsins,
höfðu fyrr hötað að skjóta niður
hvert það flugfar er flygi inn á
umráðasvæði þeirra í suðurhlut-
anum. Neyðaraðstoð sökum
hungursneyðar hefúr fram að
þessu verið mest í suöurhluta
Súdan, en þar hefúr langvarandi
þurrkatíð leitt til hungurs og
örbirgðar milljóna heimamanna.
Talsmaður alþjóðlegu hjálpar-
stofnananna sagði í morgun að
skæmliðar hefðu lofað að skjóta
ekki á C-130 flutningaflugvél
hjálparstofnananna er fyrir-
hugað væri að færi í tvo leið-
angra með matvæli og hjálpar-
gögn inn á umráðasvæði
skæmliðanna í suðurhluta Súd-
an.
Lítt þekkt öfgasamtök
halda Codre og Scippio
Tiltölulega óþekkt líbönsk bylting-
arsamtök lýstu í morgun ábyrgð á
hendur sér fyrir rán á frönskum ríkis-
borgara er rænt var í Beirút fyrir
skömmu og að hafa í haldi banda-
rískan ríkisborgara er rænt var í
borginni fyrr á þessu ári.
Þetta kom fram í orðsendingu sam-
takanna er komið var til dagblaðs í
Beirút í morgun, ásamt ljósmyndum
af mönnunum tveim er þau sögðust
hafa i haldi. w
Hér er annars vegar um að ræðá
Frakka að nafni Marcel Codre, er
byltingarsamtökin segja að sé viðrið-
inn franska leyniþjónustustarfsemi í
Beirút, og Bandaríkjamann að nafiii
Joseph Scippio, starfsmann sjúkra-
húss er rekið er af bandaríska háskól-
anum í Beirút. Scippio var rænt á
götu í Beirút þann tólfta september
síðastliðinn.
I yfirlýsingunni em tvímenningamir
sakaðir um njósnastarfsemi fyrir ríki
sín og að mál þeirra verði tekið fyrir
byltingardómstól alþýðu er kveða
muni upp dóm í máli þeirra.
- I yfirlýsingu samtakanna sagði enn-
fremur að ríkisstjómir Frakka, ísraels
og Bandaríkjamanna undirbyggju nú
nýja herferð gegn alþýðu miðaustur-
landa og að ríkisstjóm Frakklands
hefði brotið öll loforð er hún hefði
gefið í viðræðum við byltingarsamtök-
in er komið var á fyrir tilstuðlan
ríkisstjómar Alsír.
Byltingarsamtökin afeala sér allri
ábyigð á nýlegri öldu sprengjutilræða
í París er fram að þessu hafa orðið
níu manns að fjörtjóni og sært marga
tugi.
Bandarísk stjómvöld áætla nú að
sex Bandaríkjamenn séu í haldi hjá
líbönskum öfgasamtökum, en alls er
talið að slík samtök haldi nú fjórtán
útlendingum í haldi í Líbanon.
Forseetisráðherra Sví-
þjóðar fær fastan bústað
Guimlaugur Jónsson, DV, Lundi
Sænska ríkið hefur fest kaup á veg-
legri íbúð við hliðina á konungshöll-
inni í Stokkhólmi og er íbúðin ætluð
Ingvar Carlsson forsætisráðherra.
í október mun ingvar Carlsson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, flytja í
sérstaka ibúð ætlaða forsætisráð-
herrum landsins. Hingað til hefur ekki
verið um neinn fastan bústað að
ræða.
I framtíðinni mun forsætisráðherra
landsins búa i þessari íbúð en fram
að þessu hefur ekki verið um að ræða
neinn fastan bústað í líkingu við Dow-
ning Street 10 í Bretlandi.
Það var morðið á Olof Palme sem
opnaði augu sænskra stjómvalda fyrir
því að forsætisráðherra landsins þyrfti
á föstum bústað að halda sem auðvelt
væri fyrir lögreglumenn eða lífverði
að gæta.
Umrædd íbúð varð fyrir valinu
Gunnlaugur Jónssan, DV, Lundú
Opinberir starfemenn í Svíþjóð hafa
boðað til verkfallsaðgerða frá og með
næstkomandi þriðjudegi hafi sam-
komulag ekki tekist fyrir þann tíma.
Mun verkfallið ná til um 17.000 starfs-
manna og þeir valdir með það í huga
að aðgerðimar komi fyrst og fi. nst
vegna þess að hún stendur miðsvæðis
og var talin auðveld að verja. Vafa-
laust hefur nálægðin við konungs-
höllina ekki heldur vera talin spilla
fyrir.
Að sögn sænskra fjölmiðla haföi
Ingvar Carlsson sjálfur aðrar óskir um
bústað sem sænska öryggislögreglan
gat ekki fallist á. Reiknað er með að
forsætisráðherrann flytji inn í íbúðina
í lok október þegar nauðsynlegum
endurbótum á henni á að vera lokið.
rúður á vinnuveitandanum en síður á
almenningi.
Meðal þeirra sem fara í verkfall em
stöðumælaverðir, miðasalar jámbrau-
tanna en einnig hjúkrunarkonur við
mörg stærri sjúkrahús landsins. Svo
og starfsfólk dagheimila í þremur bæj-
um, þar á meðal háksólabæjunum
Uppsölum og Lundi.
Svíþjóð:
Verkfall opinberra starfsmanna
KYNNUM e scm NÝJA
FRÁ International FRÆSARA
MEÐ ELEKTRÓNlSKUM STILLINGUM
PRÓGRÖMMUÐ STILLING ÁSPINDLIOG LANDI
SCM-lnternational eru stærstu framleiðendur í heimi á trésmíðavélum og hafa undanfarin
ár margoft verið verðlaunaðir fyrir framúrskarandi hönnun.
SCM - mest seldu tréiðnaðarvélar á Islandi
IÐNVÉLAR & TÆKI
Smiðjuvegi 28 - sími 76100
Vatrmi
Bílasprautun
CinhEsll
vandaöar vörur
Smemlar
Margar gerðir.
Afar hagstætt verð.
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar
681722 og 38125
vandaðaðar vörur
Verkfæra-
kassar
Fyrirliggandi
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar 681722 og 38125
RYKSUGUR
LÉTTAR - HANDHÆGAR
SJÚGA EINNIG VATN
HAGSTÆTT VERÐ
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
Simar 681722 oq 38125. .