Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1986, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Christopher
Reeve
hefur getið sér gott orð sem
„Superman" í samnefndum
kvikmyndum og ýmsir hafa látið
þau orð falla að hann hafi hrein-
lega fengið sitt rétta hlutverk.
Reeve hefur sýnt að hann er
engin liðleskja fyrir utan vinn-
una og svipar um margt til
ofurhetjunnar þó ekki kunni
hann að fljúga né sé ósaeranleg-
ur. Nýlega bjargaði Reeve
Julianne Springsteen, konu
Bruce Springsteen, frá æstum
aðdáendum Brúsa. Julianne og
Brúsi ætluðu að vera viðstödd
góðgerðarsamkomu í New York
en popparinn forfallaðist. Jul-
ianne fór hins vegar en tók enga
lífverði með sér, taldi þess ekki
þörf án Brúsa. Þegar hana þar
að var fjöldi aðdáenda poppar-
ans fyrir utan húsið að bíða eftir
honum og hópaðist utan um
Julianne. Til allrar hamingju var
Reeve nálægur og kom til hjálp-
ar og fylgdi henni í gegnum
þröngina og örugglega inn í
húsið. Enn á ný bjargár Super-
man málunum.
Andrew
Ridgeley
hinn fyrrveranði Wham-sveinn,
er smám saman að ná sér eftir
skilnaðinn við George Michael
og upplausn hljómsveitarinnar.
Ridgeley er þó hættur að vera
einmana og hefur tilkynnt að
hann muni gifta sig innan
skamms. Sú heppna er fyrirsæt-
an Donia Fiorentina. „Við erum
hamingjusöm og líður best hjá
hvort öðru. Það besta sem við
vitum er að sitja heima á kvöld-
in, ganga um i almennings-
garðinum á sunnudögum og af
hverju þá að bíða lengur?"
Alyssa Milano
heitir ung og glæsileg stúlka
sem vert er að muna eftir, ekki
bara af því að hún er myndarleg
heldur vegna þess að hún á eft-
ir að gera það gott. 13 ára er
stúlkan orðin ein af allra mest
eftirspurðu stjörnum í Banda-
ríkjunum. Alyssa kom fyrst fram
tveggja ára og hefur eftir það
leikið í ótal sjónvarpsþáttum og
kvikmyndum og nú hefur hún
slegið verulega í gegn með leik
sínum í hinum geysivinsæla
sjónvarpsþætti: „Who's the
boss". Framtíð stúlkunnar virð-
ist ráðin og enginn spyr hana
lengur að því hvað hún vilji
verða þegar hún verði stór.
Svarið er einfalt og allir geta séð
það sjálfir, hún verður stjarna.
iidonna vfll bjarga eiginmaiiÉiiim
Heldur betur gustar um Madonnu og Sean Penn og í kringum þau er aldrei lognmolla. Madonna vill gera úrslitatilraun til að siða mann sinn tii en Penn
sýnir enga viðleitni í að betrumbæta sig.
Pierce Brosnan guggnaði á hlutverki James Bond, hlutverkinu sem hefði
fært honum ómælda frægð og ófáar milljónir. En konan hans, Casandra
Harris, sem sjálf hefur verið Bond-stúlka, treystir ennþá á hann.
Nýi James Bond, hinn eftirsótti Timothy Dalton, býr nú einn í útjaðri London.
Eftir að Pierce Brosnan guggnaði á
James Bond hlutverkinu var Timot-
hy Dalton, sjarmörinn mikli sem lék
m.a. Heathcliff í stórmyndinni „Fýk-
ur yfir hæðir“, fenginn til að leika
manninn með réttinn til að myrða,
James Bond.
Timothy Dalton er 38 ára gamall
og þekktur fyrir að fara með hlut-
verk „eftirsótta karlmannsins" í
þeim kvikmyndum sem hann hefur
leikið í. Hann þykir ákaflega huggu-
legur og karlmannlegur og skilja fáir
í því hvemig honum hefur tekist að
halda sér ógiftum.
Hann hefur þó ekki verið alveg á
lausu því hann hefur verið í löngu
en stormasömu ástarsambandi við
leikkonuna Vanessu Redgrave eins
og sagt hefur verið frá í DV. Timothy
lék fyrst á móti Vanessu árið 1971 í
kvikmyndinni „Mary, Queen of
Scots“. Þá var hann aðeins 23 ára
en hún nýbúin að eignast sitt þriðja
barn, soninn Carlo með Franco Nero.
Þrátt fyrir aldursmuninn drógust
þau Timothy og Vanessa hvort að
öðru. Þegar leiðir þeirra lágu saman
í næstu mynd fóru þau að búa sam-
an. Og þau bjuggu saman í mörg ár
en ákváðu síðan að best væri að búa
hvort í sínu lagi. Þau eru þó ennþá
mjög góðir vinir.
Nú býr Timothy einn skammt frá
London. Það líður ekki á löngu þar
til hann verður milljónamæringur á
hlutverki James Bond. Og ennþá eft-
irsóttari á giftingamarkaðinum.
Nú síðustu árin hefur Timothy að-
allega leikið á sviði leikhúsa en þó
farið með hlutverk í nokkrum þekkt-
um framhaldsmyndaflokkum fyrir
sjónvarp. Og í sumar lék hann í kvik-
mynd með Brooke Shields, hlutverk
sem hann lagði mikla áherslu á.
Helstu áhugamál Timothy eru
veiðar, siglingar og fótbolti. Honum
finnst líka mjög gaman að fá sér í
glas með vinum sínum. Þótt Timothy
þyki hafa mjög rómantískt útlit segja
vinir hans hann mjög jarðbundinn
persónuleika og lítt rómantískan.