Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1986, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1986.
29
Erfiðleikar hafa verið í hjónabandi
söngkonunnar Madonnu og leikar-
ans Sean Penn í nokkurn tíma. Sean
hefur alla tíð þótt heldur viðskotaill-
ur og ekki batnar skapið hjá pilti
þegar hann dreypir á víni. Hann
hefur löngum haft það fyrir sið að
berja á ljósmyndurum sem reyna að
mynda kappann eða þá bara þeim
sem er með uppsteyt að hans áliti.
Fyrir skömmu voru þau hjónin úti á
lífinu og Penn kom sér í vandræði
og nú gerir Madonna það sem hún
getur til að bjarga eiginmanninum
út úr nýjasta hneykslinu.
Maður nokkur hefur kært Penn
fyrir að hafa barið sig og þrátt fyrir
að Madonna hafi beðið hann um að
falla frá ákærunni segir lagahöfund-
urinn David Wolinski að það komi
ekki til greina. Hann er ekki í fyrir-
gefningar- eða sáttarhug og lætur
bænir hennar sem vind um eyru
þjóta.
„Madonna er í uppnámi vegna síð-
ustu „gloríu" hans. Hún hefur reynt
allt sem hún getur til að bjarga hon-
um en nú verður vart aftur snúið,“
segir kunningi þeirra hjóna. Sean
Penn þarf að standa gegn kröfu um
6 mánaða fangelsi og 40.000 króna
bótagreiðslu eftir að hafa barið Wol-
inski eins og harðfisk einungis vegna
þess að lagahöfundurinn leyfði sér
Lagahöfundurinn David Wolinski
ætlar ekki að láta Sean komast upp
með að ganga í skrokk á sér eins
og það sé bara allt í lagi.
að kyssa Madonnu á kinnina og
bjóða henni góða nótt á næturklúbbi
hið örlagaríka kvöld. Wolinski var
tilbúinn að láta málið niður falla án
kæru en vildi þá fá 4 milljónir doll-
ara í sinn skerf. Það voru Penn og
lögfræðingur hans ekki tilbúnir til
að samþykkja og þegar ekki var
hægt að semja um bótagreiðslu á-
kvað Wolinski að leita til dómstóla
og kæra Penn fyrir líkamsárás.
Þolirengum
að koma nálægt Madonnu
Penn er alveg hryllilega afbrýði-
samur og þolir engum að koma
nálægt Madonnu. Hann er meira að
segja vondur út í náungann sem lék
með henni í myndbandinu við lagið
„Papa dont preach". Vandræðin
byrjuðu um hálfeittleytið á nætur-
klúbbnum Helenu sem er stjömu-
næturklúbbur í Los Angeles.
Wolinski, sem hefur áður unnið með
Madonnu, sat við borð ásamt nokkr-
um hljómplötufyrirtækjastjómend-
um og Madonna og Penn gengu
íramhjá á leiðinni út.
Wolinski stóð upp og ætlaði sér að
bjóða Madonnu vinkonu sinni góða
nótt þegar Penn hreinlega umturn-
aðist og öskraði: „Af hverju reynd-
irðu að kyssa konuna mína?“ Hann
kýldi síðan Wolinski og hrinti hon-
um í gólfið, tók stól og lamdi lagahöf-
undinn með honum.
Wolinski slapp með minni háttar
meiðsli, marbletti og skrámur sam-
kvæmt lögregluskýrslu en stolt hans
og sjálfsvirðing hafði beðið hnekki
og hann var mjög reiður út í Penn
og ákveðinn í að kæra. Sú ákvörðun
breyttist ekkert þótt hann svæfi á
henni.
Madonnu stendur ekki á sama
Madonnu er hætt að standa á sama
um hegðan Penns og er orðin þreytt
á þessari sjúklegu afbrýðisemi hans.
Hún er einnig orðin hálfhrædd við
ofbeldisfulla hegðan eiginmannsins
og afleiðingar hennar. Madonna hef-
Liza var eftirlætið hans pabba síns, hins þekkta kvikmyndaframleiðanda,
Vincente Minnelli.
Liza erfir allt
Michael Jackson, sem er næstum
hættur að sýna sig opinberlega, er
náinn vinur Lizu Minnelli og fylgdi
föður hennar til grafar í sumar.
Mjög náið samband var á milli Lizu
Minnelli og pabba hennar, hins
kunna kvikmyndaframleiðanda og
leikstjóra, Vincente Minnelli, sem
dó í sumar 83 ára gamall.
Vincente eignaðist Lizu með Judy
Garland og var hún í miklu uppá-
haldi hjá pabba sínum síðustu árin
sem hann lifði. Liza gerði allt til
þess að þóknast öldnum föður sínum
og stjúpmóður. Og að frátöldum ár-
legum lifeyri til eftirlifandi konu
Vincente, erfði Liza allar eigur
pabba síns, þrátt fyrir dótturina
Christinu, sem kvikmyndaframleið-
andinn eignaðist í hjónabandi númer
þrjú.
Ótal þekktar stjörnur fylgdu Vinc-
ente til grafar, sem flestar höfðu
einhvern tíma unnið fyrir leikstjór-
ann. Þar á meðal voru James
Stewart, Gregory Peck, Kirk
Douglas, Michael Jackson og Kenny
Rogers.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . .
Katharine
Hepburn
hin aldna og mikilsvirta leikkona
tekur ekki við hvaða hlutverki
sem er og er afar vandlát i vali
sínu. Nýlega buðu framleiðend-
ursjónvarpsþáttarins „Dynasty"
henni að ieika í þáttunum og
átti Katharine að leika móður
Joan Collins. „Joan hverrar?"
var svarið frá gömlu konunni
sem er víst ekki par hrifin af
Joan. Síðan hélt hún áfram og
sagði að einasti Collins sem hún
kannaðist við væri Tom Collins
og þeir hefðu nefnt drykk eftir
honum. Sem sagt Katharine
Hepburn hafði engan áhuga á
tilboðinu.
Frankie
goes to Hollywood nefnist
grúppa ein sem hefur verið mjög
vinsæl síðustu ár. Þeir strákar
hafa nú fengið að kynnast því
að líf poppstjarna er ekki alltaf
dans á rósum og nú á næstunni
verða þeir dregnir fyrir rétt í
Kaliforníu. Það er ung stúlka
sem hefur kært þá félaga í
hljómsveitinni og gert þá ábyrga
fyrir þvi að hún meiddi sig á
tónleikum þeirra. Fyrst fékk hún
trommukjuða i sig frá sviðinu
og seinna datt hún og var fót-
umtroðin af öðrum æstum
aðdáendum. Nú vill stúlkan fá
bætur og einn trommukjuða frá
hljómsveitinni.
Elton John
söngvarinn, knattspyrnuliðseig-
andinn og hattasafnarinn vill
eins og fleiri líta sómasamlega
út, vera vel á sig kominn líkam-
lega. Þegar hann var að und-
irbúa hnattferð sína komst hann
að þeirri niðurstöðu að hann
væri of þungur og ákvað að fara
í stranga megrun. Til að megra
sig fór hann á þekkt og dýrt
heilsuhæli í Florida og nærist
þar á gulrótum og salatþlöðum
Elton er ákveðinn í að láta ein
5 kíló hverfa og verða brúnn
leiðinni. Segist hann ætla að
vera í sínu besta formi í hnatt
ferðinni og þar að auki brúnn
og sætur.
Sean Penn hefur áður iumbrað á
gefa Ijósmyndara á baukinn.
ur þar að auki áhyggjur af allri þeirri
neikvæðu umræðu sem Penn fær
vegna drykkju og slagsmála.
Að þessu sinni hringdi hún sjálf í
Wolinski og bað hann að falla frá
kæru en hann sagðist ekki láta fara
svona með sig. Þrátt fyrir vináttu
þeirra gæti hann ekki látið Sean
komast upp með þetta. Ef Sean hefði
hringt í hann og beðist afsökunar
mönnum. Hér horfir Madonna á Penn
og sagt frá því opinberlega hefði
málið horft öðruvísi við.
En Sean skammast sin ekki hætis
hót eða syrgir gjörðir sínar. Honum
er alveg sama þó einhverjir verði
fyrir höggum hans og afleiðingum
þeirra, segir þá hafa átt höggin skil-
ið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Penn lemur menn en nú fyrst hefur
verið lögð fram alvarleg ákæra.
Bandið hélt
Þessi hvutti var ekkert á þvi að láta ókunnuga álpast of nærri húsinu núm-
er 23 heldur urraði og sýndi i sér tennurnar. Hundar hafa nefnilega frá
fornu fari verið þjálfaðir upp til gæslustarfa og þessi var föðurarfleiðinni
trúr og gætti hússins með glæsibrag. Þegar menn geröust of nærgöngulur
spratt hann upp og sýndi að hann var hvergi banginn. Sem betur fer var
seppi tjóðraður þannig að hann náöi ekki að hlaupa niður tröppurnar.
Hvernig sem hann togaði og reyndi gekk hvorki né rak, bandiö hélt.