Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Side 6
6
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987.
Kjúklingaútflutningur:
Líklegt að Norðmenn
kaupi um 200 tonn
Fréttir
Skírteiní ríkissjóðs:
Inn-
lausnaræði
næstu
mánuði?
Á f>Tstu íjórum mánuðum ársins
verða 13 eldri flokkar spariskír-
teina ríkissjóðs til innlausnar fyrir
eigendur þeirra. Verðgildi þeirra
1. október síðastliðinn var rúmlega
1,4 milljarðar króna og megnið á
vöxtum langt undir þeim sera nú
bjóðast bestir á markaðnum. Það
má því búast við eins konar inn-
lausnaræði og miklu kapphlaupi
um það sparifé sem losnar þannig.
Það er aðeins einn flokkur af
þessum 13 sem er á samkeppnis-
færum vöxtum, 2. flokkur frá 1973,
um 200 milljónir króna. Nafnvextir
á honum eru nú 9,23%. Hinir
flokkamir eru með 2,83-5,08%
nafnvexti. Að undanfömu hefur
ríkissjóður boðið 6,5-9% nafnvexti
á sparisKírteini sín og ársávöxtun
bestu skuldabréfa á markaðnum
er nú 10-11,5%:
-HERB
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR <%) hæst
Innlán óverótryggó
Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Ab.Bb. Lb.Úb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8-10.5 Ab
6 mán. uppsögn 10-15 Ib
12 mán.uppsögn 11-16,25 Sp Vélstj.
18 mán. uppsögn 16-16.25 Bb
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað í 3-5 mán. 9-13 Ab
Sp. í 6 mán. og m. 8-13 Ab
Ávisanareikningar 3-9 Ab
Hlaupareikningar 8-7 Sb
Innlán verðtryggð
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2.5-4 Úb
Innlan með sérkjörum 8.5-17
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-6.5 Sb
Sterlingspund 9-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskar krónur 7.5-9,5 Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
litlán óverðtryggó
Almennir vixlar(forv.) 15.75-16. 25 Lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge 19.5- 21 15-17
Almennskuldabréf(2) Lb
Viðskiptaskuldabréf(l) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 16-18 Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 5-6.75 Lb
Til lengri tima 5-6.75 Bb.Lb
Utlán til framleióslu
ísl. krónur 15-16.5 Sp
SDR 8-8.25 Allir nema Ib
Bandarikjadalir 7.5-7.75 Allir nema Bb.lb
Sterlingspund 12.75-13 Allir nema Ib
Vestur-þýsk mörk 6.25-6.5 Allir nema Ib
Húsnæöislán 3.5
Lifeyrissjóöslán 5-6.5
Oráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1542 stig
Byggingavisitala 281 stig
Húsaleiguvisitala Hakkaði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 111 kr.
Eimskip 228 kr.
Flugleiðir 200 kr
Hampiðjan 133 kr.
Iðnaðarbankinn 130 kr.
Verslunarbankinn HOkr
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti
af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs-
vexti og Landsbankinn miðar við 21%
ársvexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til
uppgjórs vanskilalána er 2% bæði á
verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í
Alþýðubanka og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bh = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvi. nubankinn, Úb= Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DVá fimmtudög-
Allar líkur em á að Norðmenn
kaupi um 200 tonn af kjúklingakjöti
frá Islandi á næstunni. Að sögn Jónas-
ar Halldórssonar í Sveinbjamargerði
í Eyjafirði fást um 120 krónur fyrir
kílóið í Noregi en kjúklingaframleið-
Eigendur móttökudiska fyrir gervi-
hnattasjónvarp em famir að bíða
spenntir eftir því að dagurinn 30. jan-
úar 1987 renni upp. Þá mun ný
sjónvarpsstöð, Superchannel, hefja
útsendingar um ECS-gervihnöttinn.
„Það bendir allt til þess að þetta
verði besta enskumælandi sjónvarpsr-
ásin,“ sagði Ari Þór Jóhannesson, einn
af frumkvöðlum gervihnattasjónvarps
hérlendis.
„Bresku sjónvarpsstöðvamar BBC
og ITV standa saman að Superchann-
el. Sent verður út allan sólarhringinn
alveg ótruflað. Það verður ekkert mál
að fá leyfi frá þeim.
endur þurfa að fá 220 krónur. Með því
að flytja kjötið út fá þeir endurgreitt
úr kjamfóðurssjóði sem og uppsafnað-
an söluskatt og þannig ná þeir um 220
kiónumfyrir kílóið. Á liðnu ári var
oSramleiðsla hér á landi á kjúklingum
Þeir segja í auglýsingum að þetta
verði rjóminn af því besta sem þeir
senda út, þar á meðal fréttir, íþróttir,
skemmtiefiú og barnaefni," sagði Ari
Þór.
I nóvembermánuði 1985 varð hann
fyrsti einstaklingurinn hérlendis til að
tengjast ECS-gervihnettinum með
móttökudiski. Verslunin Hljómbær
hafði kynnt landsmönnum þennan
möguleika í júnimánuði það ár. Ætla
má að um fimmtíu móttökudiskar hafi
síðan verið settir upp víðs vegar um
landið. Með þeim er hægt að ná um
tíu erlendum sjónvarpsrásum.
-KMU
sem nemur um 400 tonnum.
Jónas Halldórsson taldi að það væri
engin lausn fyrir kjúklingaframleið-
endur að flytja kjöt út. Framleiðsluna
yrði að miða við þarfir á innanlands-
markaði og því væri ljóst að hana
„Við ætlum að vera á lægri nótun-
um að þessu sinni,“ sagði Egill
Eðvarðsson sem ásamt Bimi Bjöms-
syni mun sjá um undirbúning vegna
þátttöku íslendinga í söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva, Euro-
vision, i ár.
Frestur til að skila inn lögum rann
út um áramótin og streymdu verkin
inn á gamlársdag. Þau skipta tugum
og em geymd i pappakassa í höfuð-
stöðvum sjónvarpsins við Laugaveg.
Ljóst er að þátttakan í ár er snöggt-
yrði að minnka. Hann sagði að kjúkl-
ingaframleiðendur hefðu ekki náð
nema 170-180 krónum fyrir kílóið á
árinu sem er að líða, en það væri langt
undir framleiðsluverði, vandinn væri
offramleiðsla. -S.dór
um minni en í fyrra en þá skiptu
lögin hundruðum.
Áð þessu sinni verður sú nýbreytni
tekin upp að dómnefnd velur tíu lög
í undanúrslit og verður höfundum
þeirra afhentar 100 þúsund krónur
hveijum til að fullbúa verk sitt fyrir
flutning í úrslitakeppni sem fram fer
í sjónvarpssal 9. mars.
Sjálf Eurovisionkeppnin fer svo
fram í maí í Brussel í Belgíu, heima-
landi sigurvegarans frá í fyrra,
Söndm Kim. -EIR
Dagurinn kostar 25 þúsund í Hofsá í Vopnafirði:
En 45 þúsund í Laxá á Ásum
Þó að ennþá sé langur tími þangað
til veiðimenn renna fyrir laxana
næsta sumar er farið að ræða og
kaupa veiðileyfi sumarsins. Svo
virðist sem veiðileyfi hækki víða og
þó líklega mest í Hofsá í Vopnafirði
en þar kostar dýrasti dagurinn 25
þúsund en kostaði 11 þúsund síðasta
sumar. Veiðileyfi í Seíá í Vopnafirði
hækka um 100% og verður dýrasti
dagurinn 11 þúsund og 4 þúsund
ódýrasti. Telst þetta hófleg hækkun
miðað við stökkið í Hofsá.
Veiðileyfin í Laxá á Ásum hækka
um 15%, og verður dýrasti dagurinn
um 45 þúsund.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
sendi félagsmönnum sínum nýlega
verðskrá fyrir 1987 og kennir þar
margra grasa. Lítum nánar á hana.
Elliðaámar kosta 3.150 hálfur dag-
ur en kostuðu 2.700 í fyrra. Leirvogsá
hækkar úr 9.800, 14.800 var dýrast í
sumar. Veiðitíminn byrjar fyrr í ánni
og aðeins er veitt á tvær stangir. í
Brynjudalsá verðurdýrasti dagurinn
5.400, hækkar lítillega. Langá á
Mýrum verður á 9.900 dýrast til fé-
laga í Stangaveiðifélaginu. Gljúfurá
í Borgarfirði verður dýmst 8.800 en
var 7.400 í fyrra, smáhækkun. Norð-
urá í Borgarfirði verður dýmst
21.600, en kostaði mest 18.000 í fyrra.
Hægt er að finna veiðileyfi fyrir 4.800
í ánni.
Miðá í Dölum er dýmst 6.800 en
var 5.900 í fyrra og fyrstu veiðidag-
amir kostuðu aðeins 1.800, enda
ekki mikil veiðvon. Svartá verður
dýmst 9.900 en var 7.800 mest í fyrra,
töluverð hækkun það. Hægt er að
komast í silungsveiði í Svartá og
kostar þar aðeins 800 dagurinn.
Veiðivon
Gunnar Bender
Breiðdalsá hækkar ekki mikið og
verður dýrasti dagurinn 3.000 en var
2.800 í fyrra. Veiðivonin ætti að vera
mikil í sumar, allar spár spá þvf, eins
og reyndar víða. Stóra-Laxá í Hrepp-
um hækkar ekki neitt, heldur
lækkar aðeins og ber að fagna því
þó ekki sé það nú mikið. Ódýrast er
á silungssvæði 1.500 og dýrast 6.300
í laxinum. Sogið verður á misjöfnu
verði og fer það h'ka eftir svæðum,
ódýrast er við Alviðru 1.000, en dýr-
ast 7.600 á Ásgarðssvæðinu á góðum
tíma. Laugarbakkar kosta dýrast
2.100 og Snæfoksstaðir í Hvítá em
dýrastir 4.600.
Þegar rennt er yfir þessa verðskrá
hjá Stangaveiðifélaginu kemur mest
á óvart mikil hækkun í Leirvogsá,
allt of mikil hækkun. Annað cr í
lagi og mjög temmilegt viða, bara
sanngjamt.
Byrjað er að selja veiðileyfi í
Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum og
verður óveruleg hækkun þar, dýr-
asti dagurinn 8.600.
G. Bender
Rækjuframleiðendur ósáttir við greiðslu í verðjöfnunarsjóð:
Hrein tímaskekkja
- segir Jón G. Magnússon hjá Marbakka
Rækjuframleiðendur em mjög ó-
ánægðir með þær greiðslur sem þeim
er gert að greiða til verðjöfnunar-
sjóðs. Þeim hefur verið gert að greiða
80 til 100 krónur af hveiju kílói eftir
verðhækkunina seinnipart liðins árs.
„Ég tel það hreina tímaskekkju að
láta okkur greiða til sjóðsins, enda
allar forsendur breyttar frá því sem
var þegar lög um sjóðinn vom sett,“
sagði Jón G. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Marbakka, í samtali við
DV.
Varðandi greiðslur rækiuframleið-
enda í sjóðinn er gengið út frá viðmið-
unarverði sem er 2,5 sterlingspund eða
tæpar 150 krónur fyrir kílóið. Af því
sem fæst umfram þetta verð fyrir rækj-
una er þeim gert að greiða 55% til
verðjöfnunarsjóðs. Hér er átt við pill-
aða rækju. Af þeirri rækju sem er seld
ópilluð til Noregs er aftur á móti ekk-
ert greitt i verðjöfnunarsjóð. Norð-
menn þurfa ekkert slíkt gjald að greiða
og geta því boðið mun hærra verð fyr-
ir rækjuna en íslensku framleiðend-
umir.
Jón G. Magnússon sagði að á árun-
um 1983 og 1984 hefði átt sér stað
verðhrun á rækju á heimsmarkaði.
Lækkunin hefði verið um 55% og
verðið hefði haldist lágt alveg fram á
mitt síðasta ár en þá hefði það rokið
upp úr öllu valdi. Sagði hann rækju-
framleiðendur óánægða með að þurfa
að greiða svo mikið af verðhækkun-
inni til sjóðsins, loks þegar eitthvað
rofaði til eftir vondu árin.
Bjami Bragi Jónsson, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans, á sæti í
stjóm verðjöfhunarsjóðs. Hann sagði
að þær breytingar sem átt hefðu sér
stað í framleiðslunni síðan lögin vom
sett 1969 væm svo miklar að fullkom-
lega kæmi til greina að endurskoða
lögin um sjóðinn. Þegar lögin vom
sett hefði öll framleiðsla verið í föstum,
hefðbundnum skorðum. Nú væri þetta
allt breytt og fiskur seldur allt frá því
að vera ferskur og upp i það að vera
í neytendapakkningum. Nefiid er að
störfum við að endurskoða þessi mál,
en starfi hennar mun hvergi nærri
lokið og á meðan bullar óánægjan hjá
rækj uframleiðendum.
-S.dór
Ný sjónvarpsrás til
íslands um geivihnött
lcy-hópurinn ásamt Snorra Sturlusyni i miðborg Bergen i fyrra. DV-mynd
GVA
Sjónvarp:
Heill kassi
af Eurovision
um.