Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Blaðsíða 36
36
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
Koo Stark
hefur nýverið birst á mynd sem
fær eflaust allt kóngafólkið til
að roðna rækilega í kinnum. Á
myndinni er stúlkan ber nema
hún hefur brúðarslör um höfuð-
ið stórt hálsmen og skrýtna mús
á öxlinni. Ljósmyndarinn sem
sá myndina segist vera viss um
að það hafi verið ætlun Koo að
hefna sín á Andrew. „Brúðurin
á áreiðanlega að vera Koo og
músin á öxlinni á henni Andrew
sem er að horfa yfir farinn veg.
Stúlkan var hrifin af Andrew og
ætlaði að giftast honum. Það
féll ekki í góðan jarðveg hjá
múttu gömlu sem fór ekki leynt
með það að Koo væri ekki prins-
inum samþoðin. Nú hefur hún
náð fram hefnd." Það eru marg-
ir sem hafa samsinnt Ijósmynd-
aranum um þessa mynd.
Margur verður af aurum api
„Gott er peninga telja úr annars pyngju.“ Aurasálin virtist hressa geð þeirra Davíðs Oddssonar borgarstjóra og Þorsteins Pálssonar fjármálaráðherra.
DV-mynd Brynjar Gauti
Aurasálin eftir Moliére var frum-
sýnd annan í jólum í þýðingu og
leikstjórn Sveins Einarssonar. Leik-
ritið er viðhafnarsýning þar sem
mikið er lagt upp úr búningum og
stíl leikritsins. Áhorfendur taka
virkan þátt í leiknum og mæltist það
vel fyrir hjá leikhúsgestum þetta
kvöld. Allir skemmtu sér vel og hlát-
urinn ómaði um salinn.
Aurasálina leikur Bessi Bjamason
en með önnur hlutverk fer valin-
kunnur hópur leikara og má þar
nefna Sigurð Sigurjónsson, Sigriði
Þorvaldsdóttur, Pálma Gestsson og
Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur.
Mel Gibson
kom við á hamborgarastað ein-
um i Los Angeles til að fá sér
snæðing. Hann pantaði sér þrjá
hamborgara og franskar til að
taka með sér. Á meðan hann
beið settist hann niður og pant-
aði sér þrjá bjóra sem hann
hellti í sig á mettíma. Vera má
að það hafi verið einum of mik-
ið af því góða fyrir tóman maga
vegna þess að þegar pöntunin
var tilbúin stóð Gibson upp frá
borðinu en datt kylliflatur strax
aftur. Hann misti hamborgarana
plús flösku af einhvers konar
„asperíni" og pillurnar rúlluðu
út um allt gólf. Þjónustustúlk-
urnar hlupu upp til handa og
fóta og hjálpuðu Mel að tína
saman eigur sínar og komu
honum heilu og höldnu út í
leigubíl. Leikarinn gaf hverri og
einni þeirra fullan lófa smápen-
inga.
Elizabeth Talyor
ákvað að skreppa í smáverslun-
arleiðangur nú á dögunum og
leigði sér því „Limo" til að aka
á milli búðanna. Hún fékk ein-
hvern pirring í fingurinn sem
hún bar dýrindis demantshring
á og því smellti hún honum af
sér. Beta lagði hann kæruleysis-
lega frá sér í sætið og fór síðan
í búðaflakk. Seinna þegar verið
var að þrífa „Limoinn" fann
hreingerningarfólkið þennan
dýrindis demantshring undir
sætinu. Það gat sér til að Beta
væri orðin grátbólgin . vegna
hringmissisins og leitaði hana
því strax uppi. Þegar loksins
náðist í hana kom furðusvipur á
andiit fólksins því Beta sagðist
ekki hafa týnt honum, hún hefði
bara gleymt honum og hún
kæmi seinna til að sækja hring-
inn.
Ljáðu
mér
eyra
Þeir laumuðu hvor að öðrum ára-
mótaheitinu en kærðu sig kollótta
þó að aðrir fengju að heyra það sem
þeim fór á milli. Það hafði nefnilega
kvisast fíla á milli „að þjóð veit þá
þrír vita“.
Það rikti gleði hjá þeim stöllum á útskriftardaginn. Stúdentshúfan var í höfn og jólahátíðin í seiiingarfjarlægð.
DV-mynd KAE
Með koss á kinn og bros á vör óska
þær hvor annarri til hamingju með
langþráðan áfanga.
Stúdentshúfan var í höfn og allar
áhyggjur á bak og burt. Lesturinn,
vökurnar og „þrúgusykursátið“
hafði borgað sig.
Nýtt ár framundan þar sem ný
verkefni bíða ungmennanna sem
luku stúdentsprófi nú fyrir jólin.