Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Side 20
20 MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987. íþróttir Framarar steinlágu - töpuðu 34-26 fyrlr KA í slökum leik Mörk Fram: Agnar 6, Hermann 3, 2. Per 2, Óskar 2, Andrés 1, Júlíus 1. Ólafúr 3, Jón Ámi 3, Ragnar 3, Birgir -SMJ Stjaman burstaði slaka Ármenninga Stefin Amaldsson, DV, Akureyii Leikur KA og Fram var ekki skemmtilegur á að horfa þó nóg væri af mörkunum. Eitt mark á mínútu en leiknum lauk, 34-26. Slakur vamar- leikur og margar villur í sókn ein- kenndu þennan leik öðru fremur. Fram byrjaði öllu betur og komst i 4-1. KA-menn komust síðan yfir, 7-6, og héldu forystunni út leikinn. Höfðu yfir, 16-13, í hálfleik. Eins og áður segir var þetta ekki burðugur leikur. Framliðið gerði mik- ið af mistökum. Þjálfari þeirra. Per Skárup, fann sig greinilega ekki í leiknum og kom það niður á leik liðs- ins. KA-liðið mætti til leiks án þjálfara síns og markmanns, Brvnjars Kvaran. sem lá veikur heima. Það virtist þjappa liðinu saman og Sigfús Karls- son, sem kom í markið f>TÍr Brynjar. átti stórleik. Hann varði 16 skot. þar af tvö víti. Þá voru þeir Gunnar Gísla- son og Pétur Bjamason einnig góðir. Hjá Fram sýndu þeir Agnar Sigurðs- son og Hermann Bjömsson bestan leik. Mörk KA: Pétur 9. Gunnar 8. Jón Kr. 5. Guðmundur 4. Friðjón 3. Jó- hannes 3. Eggert 2. „Við stefnum upp á við,“ sagði Páll Björgvinsson, þjálfari Stjörnunnar, er lið hans sigraði Ármann auðveldlega í gær með 34 mörkum gegn 15. Leikur- inn var þó afar óskemmtilegur á að horfa. mikill darraðardans, þó sérlega bæri á mistökum hjá Ármenningum. Þeir skópu sér fá færi og nýttu þau illa sem fengust. Vörn liðsins var sem lirip þegar hún sást. Stjörnumenn nýttu sér ágætlega ráðlevsi Ármenn- inga og skomðu mörg ágæt mörk úr hraðaupphlaupum. Ástandið er nú orðið allsvart hjá Ármenningum og er ráðlegra að þeir berjist á vellinum fremur en að skeyta skapi sínu á dómurum. Bestur Armenninga var markvörður þeirra. sem þó átti erfitt uppdráttar. jafnan einn andspænis fljótum og sókndjörfum Stjömumönnum. Hjá Stjömunni var Gylfi Birgisson í miklum ham auk þess sem Sigmar Þröstur varði markið með prýði. Þá var Skúli Gunnsteinsson eldfljótur í hraðaupphiaupum og Háfsteinn Bragason var klettur í vörn. Leikinn dæmdu þeir Óli Ólsen og Gunnlaugur Hjálmarsson. Gerðu þeir fá mistök og engin afdrifarík. Mörk Ámianns: Óskar 4/2, Einar 3, Egill 2, Bragi 2, Haukur 2, Svanur Kr. 1 og Þráinn 1. Guðmundur varði 8 skot, þar af 2 víti. Mörk Stjömunnar: Gylfi 11, Hannes 7/2, Skúli 6, Einar 3, Sigurjón 3, Haf- steinn-3 og Guðmundur Ó. 1. Sigmar Þröstur varði 9 skot en Jónas félagi hans 3, þar af 2 víti. -JÖG Dömur og herrar: Nú drífið þið vkkur í leikfimi! Tímarvið allra hæfi 5 vikna námskeið byrjar 12. janúar Leikfimi fyrir konur á öllum aldri. Hressandi. mýkjandi. styrkj- andi ásamt megrandi æfingum. Bjóðum einnig eldhressa eróbikktima Karlmenn Hinir vinsælu herratímar eru í hádeginu. Þarftu að missa 15 kíló? Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Frábær aðstaða Ljósalampar, nýinnréttuð gufuböð og sturtur. Kaffi og sjónvarp í heimilislegri setu- stofu. Júdódeild Ármanns, sem verður 30 ára á þessu ári, er brautryðjandi í frúarleikfimi. Mörg hundruð, ef ekki þús- undir kvenna, hafa tekið þátt í starfi okkar- viltu ekki slást i hópinn? Fyrsti prufutíminn ókeypis. mrsíufi og frekari upplýsingar alla virka daga frá kl. 13-22 í síma 83295. Júdódeild Ármanns Ármúla 32. DV 1 FH nalgast t< efHr sigur á B FH-ingar nú jafnir Blikum með „Þetta var stórgóður leikur og að sjálf- sögðu er ég mjög ánægður með sigurinn. Það var fyrst og fremst frábær barátta og sigurvilji sem skóp þennan sigur og við stefnum að sjálfsögðu á titilinn. Næsti leikur, gegn KA, verður gífiirlega mikil- vægur fyrir okkur og ég vona að strákam- ir sýni sömu baráttuna þá og þeir gerðu í kvöld,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari FH, eftir að lið hans hafði sigrað Breiða- blik í æsispennandi leik í Hafriarfirði í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 26-24 eftir að FH-ingar höfðu haft yfir, 14-8, í leikhlé. Fjölmargir áhorfendur, sem fylltu íþróttahúsið í Hafnarfirði, fengu svo sannarlega eitthvað fyrir aurana sína. Handboltinn mjög góður og baráttan og spennan allan tímann mikil. Leikurinn var jafn til að byrja með en FH-ingar náðu síðan undirtökunum um miðjan hálfleikinn og komust í 9-5 og 11-6. Vöm FH-inga var mjög sterk á þess- um kafla og áttu Blikar í erfiðleikum í sókninni en Guðmundur markvörður gerði sóknarmönnum FH-inga lífið leitt með snjallri markvörslu. Þó gat hann ekki komið í veg fyrir að FH-ingar kæ- must sex mörkum yfir, 14-8, og þannig var staðan í hálfleik. Eitthvað hefur Geir Hallsteinsson lesið yfir Blikunum í hálfleik þvi að þeir byrj- uðu síðari hálfleik af miklum krafti og minnkuðu muninn í 14-10. Forskot FH- inga hélst fjögur mörk þar til 10 mín. voru eftir að Blikar náðu að minnka muninn í aðeins tvö mörk, 22-20. En lengra komust Blikarnir ekki því FH- ingar skoruðu næstu þrjú mörk og staðan orðin 25-10. Blikar náðu aðeins að klóra í bakkann með fjórum mörkum gegn einu í lokin og lokatölumar urðu 26-24 fyrir FH. Haukar óheppnir gegn Valsmönnum - Valdimar jafnaöi á síðustu sekúndu, 21-21 Viðureign Valsmanna og Hauka í Laugardalshöll í gærkvöldi var hörku- spennandi og skemmtileg. Lið Hauka kom mjög á óvart fyrir léttan og skemmtilegan leik en í heild má segja að leikurinn hafi verið hraður og spennandi. Fallegar leik- fléttur sáust hjá Haukaliðinu og var þar Sigurjón Sigurðsson í broddi fylkingar, skoraði 8 mörk. Valsmenn voru engan veginn sannfærandi í leik sínum en að fyrra bragði hefði mátt ætla að Haukar yrðu þeim auðveld bráð. Lokatölur urðu 21-21 eftir að Haukar höfðu verið yfir mestallan leikinn. Voru þeir óheppnir að sigra ekki í leiknum. Valdimar Grímsson jafnaði fyrir Val þeg- ar nokkrar sekúndur voru eftir en þá höfðu Haukar misnotað tvö góð færi til að gera út um leikinn. í marki Hauka stóð gamla kempan Gunnar Einarsson og varði eins og ber- serkur allan tímann. Hann virðist óðum vera að finna sitt gamla landsliðsform. Hann varði 15 skot, þar af þrjú víti. Eins og áður sagði lék Sigurjón Sigurðsson einnig mjög vel - mikið skyttuefni þar á ferð. Ingimar var einnig góður en annars hefur Haukaliðið sótt sig mikið að und- anfömu. Það var greinilega engin tilvilj- un að það sigraði Blika í afmælismóti Valsmanna. Valsmenn virðast ekki ætla að standa undir þeim væntingum sem vom gerðar til þeirra fyrir tímabilið. Bestir vom homamennimir Jakob og Valdimar. Mörk Vals: Július 6, Valdimar 5, Jakob 5 (2 v.), Stefán 3, Geir 2. Mörk Hauka: Sigurjón 8 (3 v.), Ingimar 5, Jón Öm 3, Vilberg 2, Ólafur 2, Helgi 1. -JÖG/SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.