Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Side 35
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987. 35 <4 Jane eyðir eins miklum tíma og hún getur með börnunum sínum tveimur. Hér er hún að þjálfa Seamus á hestbaki svo hann geti orðið góður pólóspilari eins og pabbi. Sviðsljós -r Bóndakonan Það er ekki ráð nema i tima sé tekið. Hér er pabbi að gefa Seamus leið- beiningar i póló. Jane Ferguson Það eru svo sannarlega ólík lífs- skilyrði hjá þeim systrum Söruh og Jane Ferguson. Langt úti í sveitum Ástralíu situr systir hertogaynjunnar af York og bíður eftir því að fá heimsókn frá systur sinni og mági, Söruh og Andrew. Við bíðum spennt eftir komu þeirra. Það eina sem við erum hrædd við er að þau verði þreytt í hitanum og flugurnar verði þeim til mikillar mæðu. Andrew hefur aldrei heimsótt Ástr- alíu áður og kannski hefur hann aldrei getað ímyndað sér að fyrsta heimsóknin hans til þessa lands yrði á gamlan bóndabæ langt úti í sveit. Bóndabær fjölskyldunnar liggur fimmtán kílómetra frá næsta stóra bæ og fyrir þann sem ekki þekkir til er mjög erfitt að rata. Þarna úti í eyðimörkinni reka Jane og eiginmaður hennar bú sitt af stök- ustu prýði. Þau eiga þúsund ær, hveitiakra og stóran grænmetisgarð. Einnig eiga þau hesta sem öll fjöl- skyldan elskar að fara í góðan útreiðartúr á. Það er ekki óalgeng sjón að sjá Jane úti á traktornum við vinnu sína á ökrunum enda ríkir algert jafnrétti á milli þeirra hjóna í rekstri búsins og heimilisins. Jane, sem er tuttugu og átta ára. og Alex, sem er þrjátiu og fimm ára, hafa verið gift í tíu ár. Þau hittust þegar hann kom til Englands til að læra búfræði. Einn af þeim sem hann heimsótti í þessari för sinni var maj- or Ronald Ferguson í bænum Dummer. Alex og elsta dóttir major- ins urðu ástfangin við fyrstu sýn. Aðeins átján ára að aldri stóð Jane uppi við altarið. Nýgifta parið lagði síðan leið sína til heimaslóða hans. Ástralíu, og eiga nú tvö börn. Sea- mus, fimm ára. og Ayesha. átta ára. Jane og fjölskylda hennar lifa langt frá því einhverju lúxuslífi. Þau vinna bæði hörðum höndum til að búið gangi. Húsið þarf á upplvftingu að halda en það verður að bíða betri tíma. Eina hjálpin sem Jane hefur er stúlka frá Svdnev sem hjálpar henni með börnin. Eiginmaður Jane er mikill áhuga- maður um póló og stundar þá íþrótt af miklu kappi. Hér og þar í húsinu má sjá medalíur. bikara og nivndir frá frækilegum sigrum hans í keppn- um í póló. Jane segist vera mjög hamingju- söm og langt frá því að öfunda systur sína af því lífi sem hún lifir nú. ..Líf mitt hér í Ástralíu hefur gert mig að bóndakonu. Að vísu lifi ég allt öðru lífi en Sarah en kóngalíf hennar heillar mig ekki. Ég vil lifa rólegu lífi hér á þessum stað og Sarali og Andrew eru alltaf velkomin hing- að til okkar til að komast í sveitasæl- una. ■<«,». Á rafmagnsofninum inni i eldhusi hefur Jane stilit upp mynd af litlu systur með yngsta meðlim fjölskyldunnar i fanginu. Jane segist vera mjög stolt af Söruh. HRESSINGARLEIKFIMI KARLA OG KVENNA Vetrarnámskeid hefjast fimmtudaginn 8. janúar nk. □ Kennslustaöir: leikfimisalur Laugarnes- skólans og íþróttahús Seltjamarness. fl Get bætt við konum í byrjendaflokk í Laugamesskólanum. ! 1 Fjölbreyttar æfingar - músík - dansspuni - þrekæfingar - slökun. Innritun og , upplýsingar í síma I AstbjörgS. Gunnarsdóttir íÞróttakeimari.1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.