Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Page 7
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987.
7
dv____________________Stjómmál
Mæðralaun ef maki
sHur í fangelsi
Réttur til mæðralauna var rýmkað-
ur með lagabreytingu, sem Alþingi
samþykkti rétt íyrir jólairí, að tillögu
Ragnhildar Helgadóttur heilbrigðis-
ráðherra.
Mæðralaun hafa verið greidd ekkj-
um, ógiftum mæðrum og fráskildum
konum sem hafa böm sín undir 17 ára
aldri á framfæri sínu. Frá áramótum
hækkar aldurinn í 18 ár. Einstæðir
feður og einstæð fósturforeldri eiga
einnig rétt á mæðralaunum.
„Nú kann að standa svo á að fram-
færandi eigi að vísu maka á lífi en sé
þrátt fyrir það jafnilla eða verr stadd-'
ur fjárhagslega heldur en vera myndi
ef maki væri fallinn frá eða skilinn
við framfæranda," segir í athugasemd-
um sem fylgdu lagafrumvarpinu.
Nýju lögin veita heimild til að greiða
mæðralaun þegar maki hefur notið
elli- eða örorkulífeyris, en sá lífeyrir
verið felldur niður vegna vistunar á
stofnun þar sem sjúkratryggingar
greiða dvölina. Ennfremur þegar maki
sætir gæslu- eða refsivist sem varað
hefúr að minnsta kosti þrjá mánuði.
„Hér er ekki um verulaga útgjalda-
aukningu að ræða en þó gæti hún
sennilega orðið nálægt þremur millj-
ónum króna á ári,“ segir í greinargerð.
-KMU
r
Listamannalaun:
Neðri flokkur felldur niður
Neðri flokkur listamannalauna hef-
ur verið felldur niður. Var það gert á
lokadegi Alþingis fyrir jólafrí með
samþykkt á frumvarpi menntamála-
nefndar neðri deildar.
Frumvarpið var flutt í samræmi við
ábendingu úthlutunamefndar lista-
mannalauna. í bréfi formanns nefnd-
arinnar, Bolla Gústavssonar, til
forseta sameinaðs þings, sagði meðal
annars að nefhdarmenn hefðu orðið
sammála um að ekki væru forsendur
fyrir úthlutun listamannalauna miðað
við óbreytta fjárveitingu.
„Sú venja hefur haldist frá upphafi
að þeir listamenn, sem valdir hafa
verið í efri flokk, haldi þeim sessi. Þar
sem fjárveitingar hafa verið naumar
hefur nefhdin tekið þann kost að
fækka stöðugt i neðra flokki þannig
að lengra verður ekki gengið ef full-
nægja á lagaskyldu. Nefndarmenn
telja að ekki standi efhi til annars en
láta efri flokk óbreyttan meðan ný-
skipan listamannalauna hefur ekki
verið tekin upp, en neðri flokkur falli
niður,“ segir í bréfinu.
Nýju lögin kveða einnig á um að
listamannalaun rýri ekki rétt-til upp-
bótar á elli- og örorkulífeyri. -KMU
KOMIÐ OG GERIÐ GÓÐ
KAUP
Framsókn með tvo í Norðurlandaráði
Við inngöngu Kristínar Kvaran al-
þingismanns í þingflokk Sjálfstæðis-
flokksins græddi Framsóknarflokkur-
inn einn fulltrúa á kostnað
stjórnarandstöðunnar í Norðurlanda-
ráði eins og í öðrum sjömannanefnd-
um og ráðum Alþingis.
Framsóknarmennimir Páll Péturs-
son og Haraldur Ólafeson voru því
kjörnir í Norðurlandaráð á lokadegi
Alþingis fyrir jólafrí ásamt sjálfetæðis-
mönnunum Ólafi G. Einarssyni,
Friðjóni Þórðarsyni og Pétri Sigurðs-
syni. Frá Alþýðubandalagi var kjörin
Guðrún Helgadóttir og frá Alþýðu-
flokki Eiður Guðnason.
-KMU
LAUGAVEGI66 ^ SIMI25980
4
HOFSTI
MORGUNí BÁÐUM
VERSLUNUM OKKAR
visa
E
EUROCARD
VINNUFA TABÚÐIN
LAUGA VEGI76 - HVERFISGÖTU26