Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987.
13
Neytendnr
Bílverð:
Er vörugjaldið komið aftur?
Marga heíur grunað að bifreiðir
hafi að undanfömu hækkað í verði og
i kjölfar mikilla kvartana var gerð
verðkönnun á vegum FÍB. Könnunin
náði til átta bifreiðategunda sem vom
valdar algerlega af handahófi, án til-
lits til þess hvort yíir þeim hafði verið
kvartað eða ekki. Niðurstaða hennar
varð sú að um óeðlilega hækkun hefði
verið að ræða í nær öllum tilfellunum,
í sumum svo mikil að bifreiðamar
vom komnar upp í nánast sama verð
og fyrir niðurfellingu vöragjalds síð-
astliðið vor.
Niðurstöðumar vora bornar saman
við hækkun á verði sömu bifreiða í
Danmörku á sama tímabili og reyndist
hækkunin hér mun meiri en skýra
má með gengisþróun, enda þótt
danska krónan hafi hækkað smávegis
á undanfomum mánuðum. Vora jafn-
vel dæmi þess að bíll hefði hækkað
um 30% frá því í mars, eins og reynd-
in varð með Ford Sierra. Þá reyndist
Fiat Uno kosta nánast það sama og í
mars, eða 290 þúsund, en hafði kostað
295 þúsund fyrir afhám vöragjalds.
Eina tegundin, sem virtist hafa hækk-
að svipað og bifreið sömu tegundar í
Danmörku, var Daihatsu Charade en
hún hækkaði úr 279.900 í 300 þúsund.
Þar sem könnun FÍB er nú nær
tveggja mánaða gömul ákvað neyt-
endasíðan að athuga verð sömu bif-
reiða núna. Var í einu og öllu stuðst
við könnun FÍB, sömu gerðir athugað-
ar og miðað við sömu skilmála. Er því
verð ýmist með eða án ryðvamar og
skráningar, auk þess sem fæst umboð-
in vora komin með verð miðað við
tollgengi í janúar.
Þótt skammur tími sé liðinn hafa
ýmsar verðbreytingar átt sér stað.
Hreyfingin er þó heldur upp á við, en
þó hafa einhverjar bifreiðir lækkað i
verði. Þannig hefur Mazda 1,6 LX fjög-
urra dyra lækkað úr 470 þúsundum í
442.500 og þær tvær tegundir, sem
mest höfðu hækkað, er könnunin var
gerð nú i nóvember síðastliðnum,
lækkuðu, Fiat Uno 45 um 10 þúsund,
eða úr 290 þúsundum í 280 þúsund,
og Ford Sierra 1,6 sem lækkaði úr 475
þúsundum í 456 þúsund. Þó ber að
geta þess að miðað var við 86 árgerð-
ina af Sierra en 87 árgerðin er ekki
væntanleg fyrr en í mars. Hækkanir
vora svo á bilinu 3-8 þúsund. Mest
hækkaði Saab Turbo 5 dyra, eða úr
1050 þúsund í 1058 þúsund, en minnst
hækkaði Volvo 240 DL fjögurra dyra,
eða úr 616 þúsund í 619 þúsund. Á
meðfylgjandi súluriti má sjá verð á
tímabilinu. Gefið er verð í febrúar,
mars, nóvember og svo nú um áramót
en í janúar kemur bílverð til með að
hækka að nýju í samræmi við nýtt
tollgengi.
-PLP
Hér má sjá þróun á verði brfreiða frá því fyrir niðurfellingu
vörugjalds til áramóta ’85-’86.
Innritun stendur yfir í Reykjavík, Ármúla 17a, sími 38830, og Hafnarfirði, Linnetsstíg 3, sími 52996, kl. 10-12 og 14-19.
Kennsla hefst 7. janúar.
WV'f wmKÓUNN
BARNADANSAR
GÖMLU DANSAR
STANDARDDANSAR
LATINDANSAR
ATHUGIÐ!
TAKMARKAÐUR FJÖLDI
NEMENDA í HVERN TÍMA.
(26 NEMENDUR)