Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Side 19
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1987.
19
•Rudi Völler.
Fer Voller
til Ítalíu?
Atii Hflmarsson, DV, V-Þýskalandr
Um fátt hefur verið meira talað
í V-Þýskalandi um helgina en það
hvort Rudi Völler, sóknarmaður-
inn snjalli hjá Werder Bremen, sé
á leiðinni til ítalíu. Á laugardaginn
birti blaði Welt am Sonntag frétt
þar að lútandi og var þar vitnað í
Völler sjálfan. í gœr birti hins veg-
ar Bild nýja frétt og þar neitar
Völler því algerlega að hann sé á
leiðinni til Ítalíu. Ekki eru menn
á eitt sáttir um hver sé sannleikur-
inn í þessu máli. Vitað er að
Werder vill gjaman selja Völler til
Italíu ef gott tilboð berst. Hefur
verið rætt um að þessi upphæð sé
205 milljónir króna.
Þá hafa nokkur ítölsk lið sýnt
áhuga á Völler og má þar til nefna
Sampdoria, Mílanóliðin bæði og
síðast en ekki síst Napoii. Völler
er nú 27 ára og hefúr átt við þrál-
át meiðsli að stríða á síðustu árum.
-SMJ
Gruendel
meiddur
Sóknarmaðurinn snjalli, Heinz
Gmendel hjá Hmnburger SV,
verður að öiium líkindum frá
knattspymuiðkun í þrjá mánuði.
Gmendel var skorinn upp nú um
hátíðirnar vegna meiðsia á hné.
Gruendel, sem er 29 ára, meiddist
í innanhússmóti fyrir skömmu.
-SMJ
Nykánen
úr leik
Hinn kunni finnski skíðastökkv-
ari, Matti Nykánen, virðist ciga í
vanda þessa dagana. Þó hann eigi
að baki stóra sigra i íþrótt sinni
hefúr gengi hans verið rysjótt upp
á síðkastið. Að sögn hefur hann
verið með eindæmum óstýrilátur
nú í vetur og var hann af þeim
sökum kallaður heim frá frekari
keppni um helgina.
Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn
sem Nykánen stendur í erjum við
yfirvöld íþróttamála í Finnlandi.
Fyrir ári var hann rekinn úr
keppni í Bandaríkjunum vegna it-
rekaðra agabrota. Rætur þessara
dólgsláta Nykánen ku liggja í þeim
foma sið að þykja sopinn góður.
-JÖG
Lemgo lagði
meistarana
-Siggi Sveins og Atfreð bestu menn liðanna
Atli Hflmaisson, DV, V-Þýskalandi;
Óvæntustu úrslit helgarinnar urðu í
leik Lemgo og Essen en Sigurður
Sveinsson og félagar gerðu sér lítið
fyrir og lögðu meistarana. Þetta var
fyrsti ósigur Essen á þessu ári. Þeir
Sigurður og Alfreð Gíslason vom
bestu menn vallarins og vom þeir
markahæstu menn sinna liða, hvor um
sig skoraði 7 mörk. Það kom greini-
lega niður á leik meistaranna að tvo
bestu menn liðsins, þá Fraatz og Ku-
bitzki, vantaði en það var verið að
hvíla þá fyrir Evrópuleikinn gegn
Dukla Prag um næstu helgi.
3.000 áhorfendur troðfylltu húsið og
var gífúrleg stemmning meðal þeirra.
Lokastaðan var 22-18 eftir að Essen
hafði verið yfir, 10-9, í hálfleik. Sigur
Lemgo var of stór en þeir skomðu tvö
síðustu mörkin úr hraðaupphlaupum.
Þá vann Kiel Dússeldorf í æsispenn-
andi leik, 20-19. Páll spilaði allan
leikinn en var aðeins notaður í sókn-
inni í fyrri hálfleik. Þá skoraði hann
eitt mark en hann stóð sig mjög vel í
vöminni.
Önnur úrslit urðu þau að Hameln
sigraði Göppingen, 19-16, og Schútter-
wald tapaði fyrir Schwabing, 16-22.
Essen efst
Essen heldur forystu sinni þrátt fyr-
ir tapið um helgina en nokkrir leikir
verða í vikunni í Þýskalandi. Þá leika
meðal annars Gummersbach og einnig
Wanne Eickel. Staðan er nú annars
þessi eftir 16 umferðir en tvö efstu lið-
in hafa þó leikið leik minna.
1. Essen.......................27
2. Grosswaldstadt..............23
3. Kiel........................20
4. Dússeldorf..................18
5. Schwabing...................18
6. Milbertshofen...............17
7. Gummersbach.................16
-SMJ
íþróttir
• Alfreð Gislason var besti maður Essen.
„Mjög svekkjandi"
sagði Einar Bollason eftir naumt tap gegn Svíum
•Valur Ingimundarson.
„Við erum alveg hundsvekktir yfir
því að tapa þessum leik. Þetta er einn
besti leikur sem íslenskt körfuknatt-
leikslandslið hefur spilað og við höfúm
aldrei verið eins nálægt því að sigra
Svía,“ sagði Einar Bollason landsliðs-
þjálfari í samtali við DV í gærkvöldi
en þá vom íslendingar nýbúnfr að
tapa fyrir Svíum með aðeins einu stigi.
Lokatölur urðu 72-71 fyrir Svíum eftir
að íslendingar höfðu verið yfir, 38-35,
í hálfleik.
í seinni hálfleik náðu Svíar fljótlega
níu stiga forystu en íslendingar söx-
uðu á það og þegar ein og hálf mínúta
var eftir voru íslendingar þrem stigum
vfir, 69-66. Þá skora Svíar þriggja
stiga körfu en Pálmar svarar strax.
Svíar ná hins vegar að skora aðra
þriggja stiga körfú þegar 35 sek. em
eftir og komast .vfir, 72-71. Rétt fyrir
leikslok er brotið illa á Guðna Guðna-
syni í upplögðu færi. ..Hálft sænska
liðið stökk á hann og allir sáu að þetta
var brot en gríski dómarinn sá ekk-
ert,“ sagði Einar Bollason um þetta
atvik.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum
um hversu frábært afrek þetta er hjá
landsliðinu og sýnir betur en margt
annað hve sterkt körfuknattleiks-
landslið við eigum. Svíar em geysilega
sterkir og unnu meðal annars ísraels-
menn með 11 stiga mun á föstudaginn
en í fyrri leiknum i gær sigmðu ísra-
elsmenn Grikki með 101 stigi gegn
89.
Valur maður leiksins
Valur Ingimundarson var stigahæst-
ur íslendinga með 19 stig og var hann
kosinn maður leiksins eftir á af fram-
kvæmdanefnd mótsins. Þá stóð ívar
Webster sig vel og sagði Einar Bollason
að það væri ómetanlegt að vera kominn
með svo stóran mann í liðið. Einnig
stóð ungur nýliði úr GrindaM'k. Guð-
mundur Bragason. sig mjög vel.
Stig íslands skomðu Valur 19. Jó-
hannes 16. Guðni 14. Pálmar 9. ívar
7. Guðmundur 4 og Jón Kr. og Helgi
2 hvor.
-SMJ
Youri Sedov
til Víkings
Sovéski knattspymuþjálfarinn
Youri Sedov er nú væntanlegur til
landsins og mun hann taka við
þjálfun 2. deildar liðs Víkings. Sá
hængur er þó á að enn skortir
formlega heimild og staðfestingu
frá sovéskum íþróttayfirvöldum.
Sedov hefur nú um skeið gegnt
trúnaðarstörfum innan vébanda
sovéska knattspymusambandsins
eða allt frá því hann starfaði hér-
lendis árin 1981 og 1982. Þá gerði
hann Víkinga að íslandsmeistur-
um bæði árin.
Ljóst er að Sedov mun styrkja
lið Víkinga í baráttunni um fyrstu
deildar sæti og jafnframt stöðva
þann óheillavænlega flótta sem
verið hefur úr herbúðum félagsins.
Sedov er að margra dómi hæ-
fasti knattspvmuþjálfari sem hér
hefur starfað. Það er þvi eðlilega
Víkingum kappsmál að fá hann i
sínar raðir og hefja þannig knatt-
spymuliðið á ný til vegs og virð-
ingar.
-JÖG
Staðan
Úrslit í 10. umferð íslandsmótsins í
handknattleik urðu eftirfarandi:
Ármann Stjaman............15-34
KA Fram...................34-26
FH-UBK....................26-24
Valur-Haukar..............21-21
KR - Víkingur.............18-22
Staðan að loknum 10 umferðum:
Víkingur
FH...
UBK.
Valur
KA.....
Fram..
Stjarnan
KR.....
Haukar..
Ármann.
...10
...10
...10
...10
...10
...10
...10
...10
...10
...10
8 1 1
7 1 1
7 1 2
5 2 3
5 1 4
5 0 5
4 1 5
3 0 7
2 1 7
0 0 10
233-209
254-220
228-218
251-220
233-236
238-229
254-240
197-225
209-245
194-251
17
15
15
12
11
10
9
6
5
0
Fer Wilhelm á Selfoss?
Húsvíkingar hafa nú misst einn sinn
besta mann frá því í sumar en sóknar-
maðurinn snjalli. Wilhelm Fredriksen.
er nú fluttur suður. Ekki er enn ljóst
hvar Wilhelm mun leika en hann var
mjög drjúgur við að skora fyrir Völs-
unga i sumar. Hugsanlegt er þó talið
að hann fari á Selfoss en þeir Selfyss-
ingar hafa misst þá Tómas Pálsson og
Jón Gunnar Bergs. Það er því vitað
að Magnús Jónatansson þjálfari
þeirra leitar logandi ljósi að sóknar-
leikmanni til að fvlla skarð þeirra.
-SMJ
•Wilhelm Fredriksen.
[ Óvænt hjá Nilson ~l
Sænska stúlkan Camilla Nilson
1 komstáspjöldsögunnarþegarhún
varð fyrst sænskra stúlkna til að
sigra í alpagreinum á skíðum. Hin
19 ára gamla Nilson var með rás-
númer 24 i svigkeppninni í
FIRMAKEPPNI
GRÓTTU
Dagana 10., 11., 17. og 18. janúar verður hald-
in í íþróttahúsi Seltjarnarness firmakeppni
Gróttu í knattspyrnu. Þrenn verðlaun verða
veitt. Þátttökutilkynningar í síma 611133 milli
kl. 9 og 12. ATH! 3 leikmenn inná í einu.
Maribor í Júgóslavíu en sigraði |
eigi að síður. Vreni Schneider frá ■
Sviss varð önnur en Erika Heiss, I
sem er efet í stigakeppninni, varð .
í 5. sæti.
-SMJ i