Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1987, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 5. JANOAR 1987. 21 íþróttir • 15 stig FH-liðið lék þennan leik mjög vel og gæti það hæglega orðið meistari og svo má reyndar einnig segja um Breiðablik. Óskar Ármannsson skoraði alls 10 mörk íýi'ir FH, 6 úr vítum. Þorgils og Guðjón áttu einnig góðan leik og reyndar allt FH-liðið. Hjá UBK átti Guðmundur frá- bæran leik í markinu og Jón Þórir stóð sig mjög vel og skoraði 9 mörk og þá var Björn sterkur í síðari hálfleik. Dómaram- ir, Gunnar Kjartansson óg Rögnvaldur Erlings, höfðu í nógu að snúast og vísuðu þeir FH-ingum níu sinnum af velli og Blikum sex sinnum. I heildina dæmdu þeir þennan erfiða leik sæmilega en nokk- ur mistök bitnuðu jafnt á liðunum. Mörk FH: Óskar Á. 10 (6 v), Þorgils 4, Pétur 4, Guðjón 4, Óskar H. 2, Héðinn 1 og Gunnar 1. Mörk UBK: Jón Þórir 9 (5 v), Bjöm 5 (4 v), Sigþór 3, Aðalsteinn 2, Þórð- ur 2, Svavar 2 og Kristján 1. -RR • Diego Maradona. Napoli tapaði Napoli tapaði sínrnn fyreta leik á þessu keppnistímabili um helgina gegn Fiorentina, 3-1. Þetta tap Napoli gerði Inter Milano fært að ná efsta sætinu en Inter sigraði Atalanta, 1-0, með marki frá Pietro Fanna. Miiradonna stóð þó fyrir sinu hjá Napoli og skor- aði eina markið þein’a. Juventus sigraði Verona, 2-1, með mörkum frá Manfredonia og Cabrini eftir að Elkj- ær hafði fært Verona forystuna. -SMJ „Stefhum á titilinn" - sagði Ámi Friðleifsson eftir sigurinn gegn KR „Við höfum mannskap og því eðli- legt að stefna að Íslandsmeistaratitli," sagði Ámi Friðleifsson, leikmaður Vikings, er hann og félagar hans höfðu lagt KR-inga að velli með 22 mörkum gegn 18 í gærkvöldi. Víkingamir tróna nú einir í efeta sæti deildarinnar með 17 stig. Það var þó enginn meistara- bragur á leik Víkinga í gær, vesturbæ- ingar börðust hetjulega og höfðu lengst af í fullu tré við íslandsmeistar- ana. Jafrit var á öllum tölum í fyrri hálfleik þótt KR-ingar ættu óneitan- lega stöðugt á brattann að sækja. I upphafi síðari hálfleiks lögðu Vík- ingar síðan gmnninn að þessum mikilvæga sigri. Þá hófst Áma þáttur Friðleifssonar en hann gerði KR- ingum marga skráveiíú og skoraði 5 mörk á skömmum tíma. Hann barðist auk þess sem ljón í vöminni eins og raunar leikmenn beggja liða. Víkingar náðu á þessum tíma (jög- urra marka forystu, breyttu stöðunni úr 10-9 í 16-12, og virtust hæglega geta aukið við. Þar stóð á hinn bóginn í veginum markvörður KR-inga sem varði í þrígang þrumuskot úr dauða- færum af línu. KR-ingar klómðu því sífellt í bakkann og virtist leikurinn og gæfan ætla að snúast með þeim þegar Víkingar máttu leika fimm gegn íúllskipuðu liði þeirra. Þá fékk Hilmar Sigurgíslason að líta rauða spjaldið eftir þriðju brottvísun og Ámi Indriða- son hvíldi í tvær mínútur vegna ólöglegrar skiptingar. Á þessum augnablikum varði hins vegar Kristj- án Sigmundsson markvörður meist- aralega á meðan Bjarki Sigurðsson, hinn efnilegi og skeinuhætti homa- maður Hæðargarðsliðsins, blómstraði í sókninni. Því fór sem fór og eftir lágu vesturbæingar í valnum. Bestur í mjög jöfnu liði þeirra var Konráð Ólafsson sem ósjaldan skoraði úr þröngum færum. Bestir í liði Víkinga vom þeir Ámi Friðleifsson, Bjarki og Hilmar sem lék vel í vöm. Karl Þrá- insson tók einnig prýðilegar rispur í fyrri hálfleik. Þessir skomðu mörkin í leiknum: KR: Konráð 7/2, Guðmundur P. 2, Guðmundur A. 2, Friðrik 2, Ólafur 2, Þorsteinn 1, Sverrir 1 og Jóhann 1/1. Víkingur: Karl Þráins 7/3, Ámi F. 6, Bjarki 4, Hilmar 3, og Guðmundur 2. Dómarar í leiknum vom Þorgeir Pálsson og Guðmundur Kolbeinsson. Dómgæsla þeirra var á stundum slök en hvomgt liðið hagnaðist á mistökum þeirra. -JÖG Vinningshlutfall sem slœr allt út! Hvergi í heiminum er vinningshlutfall jafnhátt og hjá Happdrætti Háskólans, 70% renna til vinningshafa! í ár eru yfir 9 hundruð milljónir króna í potti. I raun gæti annar hver Islendingur unnið því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 18 milljónir á eitt númer - allt skattfrjálst. Bjóddu heppninni heim, fáðu þér miða hjá umboðsmanninum - Núna! HAPPDRÆTTI ^Og) HASKÖLA ÍSLANDS ” Vœnlegast til vinnings

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.