Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1987.
Viðskipti
Kaup bankanna á viðskiptavíxlum:
Iðnaðarbankinn
hófsamastur
í vaxtatökunni
Útreikningar á vaxtatöku bankanna við kaup á viðskiptavíxlum sýna að Iðn-
aðarbankinn er hóísamastur í þessum efnum þegar um er að ræða hærri
upphæðir. Hins vegar borgar sig alls ekki að selja honum smávíxla því þá snýst
dæmið við og vaxtatakan fer upp úr öllu valdi. Astæðan er sú að Iðnaðarbank-
inn tekur hærri fastakostnað en hinir af hveijum vixli en reiknar á móti minni
afifóll.
Verslunarráð íslands hefúr birt útreikninga á þessum viðskiptum við bank-
ana. Þeir nota allir kaupgengisútreikning nema Búnaðarbankinn sem miðar
við 21% ársvexti. Það frávik breytir þó engu í raun og veru. Ársávöxtun ban-
kanna í víxlakaupunum er verulega mismunandi eftir samsetningu kostnaðar,
affalla og lánstíma.
DV birtir hér niðurstöður þessara útreikninga Verslunarráðsins, þó aðeins
varðandi víxla til 45 daga. Ávöxtun er hærri á víxlum til skemmri tíma og lægri
á víxlum til lengri tíma.
Víxlar til 45 daga: Alþýðubanki 39,2% Landsbanki 34,6%
Búnaðarbanki 10.000 36,0% Samvinnub. 39,5%
50.000 32,5% Útvegsbanki 10.000 40,5%
100.000 32,0% 50.000 36,8%
Iðnaðarbanki 10.000 91,4% 100.000 36,3%
50.000 31,8% Verzlunarb. 38,3%
100.000 26,0% Spar.Reyk. 39,0%
VERÐBREYTINGAR Á FÓLKSBIFREIÐUM Á ÁRINU 1986. Smásöluverð án ryðvamar (þús. kr.)
Tegund Sala 1986, fjökH bifrei&a Verð fyrir tollalækkun, febrúar VERÐ EFTIR TOLLALÆKKUN mare-aprll nóvember-desember Verðbreytingar 1 %
BMW 316 31 746 518’ 587 13%
CHEVROLET MONZA 265 548 414 451 9%
DAIHATSU CHARADE 615 389 280 314 12%
RAT UNO 332 229 265 16%
FORD SIERRA 132 499 350 453" 29%
HONDA CIVIC 151 490 348 376 8%
LADA LUX 410 260 182 203 11%
MAZDA 323 591 442 317 338 7%
SAAB 900 161 798 576 625 8%
SKODA 590 218 152 164 8%
SUBARU 1800 um 700 700 521 581 12%
TOYOTA COROLLA 614 419 309 359 16%
VOLKSWAGEN GOLF 285 568 391 464 19%
VOLVO 244 214 758 550 619 13%
"Verðfiá 1. október 1986.
Á töflunni má sjá þróun bilverðs siðan í febrúar í fyrra
Niðurstaða Verðlagsstofnunar:
Álagning á bfla hefur
ekki almennt hækkað
Til samanburðar er að 7. september í haust var vaxtaígildi kaupgengis á 100
þúsund króna víxlum til 45 daga þetta: Búnaðarbanki 34,3%, Iðnaðarbanki
33,8%, Landsbanki 33,5%, Útvegsbanki 38,6%, Verzlunarbanki 34,3%.
______________________________-HERB
Benco hætt að flytja
inn neyðarsenditæki
Aðeins tvö fynrtæki hér á landi
hafa flutt inn neyðarsenda fyrir gúm-
björgunarbáta frá því að skylda var
að setja slík tæki í bátana 1981. Þetta
eru Rafís og Benco. Síðamefrida fyrir-
tækið hefur þó enga senda flutt inn
frá því í sumar. '
„Við erum hættir innflutningi á
þessum tækjum. Ástæðan er sú að
framleiðandinn erlendis hefur ekki
staðið við sínar skuldbindingar og við
teljum okkur ekki fært að halda þessu
áfram. Við munum þó sjá til þess að
til verði nýjar rafhlöður þegar kemur
til endumýjunar þeirra í tækjum sem
við höfum selt til þessa,“ sagði Róbert
Bender, framkvæmdastjóri Benco, í
samtali við DV.
Þar með er ljóst að einungis eitt fyr-
irtæki flytur inn viðurkennda neyðar-
senda fyrir allan íslenska skipastólinn.
Lögum samkvæmt fá íslensk skip ekki
haffærisskýrteini nema neyðarsendi-
tæki sé um borð í gúmbjörgunarbátn-
um.
-S.dór
Birtar hafa verið niðurstöður
verðkönnunar Verðlagsstofnunar
á bílverðshækkunum. Könnunin
var gerð í framhaldi af könnun F.í.
B., á sama efni, en þar kom fram
að óeðlileg hækkun hefði átt sér
stað síðan vörugjald var fellt niður
svo sem áður hefur verið getið um
ÍDV.
Niðurstöður
Samkvæmt niðurstöðum Verð-
lagsstofnunar hafa nokkrar teg-
undir hækkað verulega á tímabil-
inu og á það sér nokkrar skýringar.
Hækkun á innkaupsverði ásamt
óhagstæðri gengisþróun munu
vera helstu orsakir hækkaðs verðs
en ekki hækkun álagningar. í frétt-
atilkynningu Verðlagsstofnunar
segir svo:
„Ekkert kom fram sem gefur vís-
bendingu um að álagning hafi
almennt hækkað á árinu. Dæmi eru
um að álagning hafi hækkað þar
sem hún var lág áður svo og eru
dæmi um lækkun álagningar.
Mikil verðsamkeppni ríkir á bif-
reiðamarkaðnum. Eru dæmi um að
umboð hafi ekki getað hækkað
söluverð á bifreiðum vegna mikill-
ar samkeppni þrátt fyrir erlenda
verðhækkun.
Ekkert samráð er milli bifreið-
aumboða um verðlagningu heldur
mótast hún af rekstri hvers ein-
staks umboðs og markaðsástæð-
um.“
Hvernig könnunin var unnin
í skýringum með könnuninni er
sagt að öll innflutningsskjöl hafi
verið athuguð af starfsmönnum
Verðlagseftirlits og að rætt hafi
verið við talsmenn viðkomandi fyr-
irtækja til að fá nánari upplýsingar
um einstaka þætti verðmyndunar.
Dæmi úr könnuninni
Ford Sierra kostaði fyrir tolla-
lækkun 499 þúsund. í mars lækkar
verðið niður í 350 þús. og er komið
í 453 þúsund í október. Þetta þýðir
að um 29% hækkun hefur orðið á
tímabilinu mars-október. Verðlags-
stofnun skýrir hækkun þessa með
því að bifreiðarnar sem seldar
höfðu verið í upphafi hefðu verið
keyptar af umframbirgðum í Dan-
mörku, á tilboðsverði. Þær sem
seldar voru síðar voru 27% dýrari
í innkaupum auk þess sem gengi
dönsku krónunnar hafði hækkað
um 6,5% á tímabilinu. Þannig voru
því hækkun á gengi og verðhækk-
un í innkaupum því orðnar tæp
35%.
-PLP
I dag mælir Dagfaii
Skattlausa árið
Ekki fer á milli mála að kosningar
eru á næsta leiti. Sést það best á því
að nú er ríkisstjómin og stjómar-
flokkamir báðir famfr að lofa okkur,
kjósendunum, að við sleppum við að
greiða skatta í heilt ár! Þeir ætla
með öðrum orðum að taka upp stað-
greiðslu skatta sem hefur það í fór
með sér að skattframtöl aftur í tím-
ann verða óþörf og menn greiða
skattinn jafiióðum og teknanna er
aflað. Áætlanir em uppi um það að
staðgreiðslan hefjist fyrsta janúar
næsta ór og fyrir vikið standa góðar
vonir til þess að árið í ár verði skatt-
laust.
Þetta em auðvitað mikil fagnaðar-
tíðindi fyrir alla þá sem hafa
áhyggjur af því hvort upp komist
um skattsvik þeirra í hvert skipti
sem þeir telja fram. Nú' þurfa menn
ekki að telja fram fyrir þetta ár og
raunar getur hver sem betur getur
svikið og prettað, dregið sér fé og
fært á sig endalausar tekjur án þess
að hafa af því hinar minnstu áhyggj-
ur. Fyrir nú utan þann lúxus að
geta farið hina leiðina og unnið fyr-
ir launum með heiðarlegum hætti
án þess að hafa annað augað á gjald-
heimtunni af ótta við að hún hirði
bróðurpartinn. Allar líkur em sem
sagt á því að Íslendingar geti farið
í rúmið á kvöldin með hreinan skjöld
og án þess að hafa það á samvis-
kunni að svíkja undan skatti til að
lifa árið af.
Sennilega hefur engin ríkisstjóm
á íslandi verið í þeirri aðstöðu fyrr
að geta gefið það kosningaloforð að
þjóðin sleppi við skatt á sjálfu kosn-
ingaárinu. Þetta er ekki dónaleg
staða og ætti eitt út af fyrir sig að
nægja til þess að hver viti borinn
kjósandi greiddi þeim hiklaust at-
kvæði sitt. Eða hver vill ekki sleppa
við skatta? Annað hvort væri nú.
í stað þess að keyra á þessu glæsi-
lega kosningaloforði, sem hver
einasti kjósandi gleypti við, hefur
skotið upp þeirri sérkennilegu skoð-
un hjá einhverjum stjómarsinnum
að í stað þess að gera 1987 að skatt-
lausu ári skuli árið 1986 vera skatt-
laust! Það er auðvitað öllum ljóst
og jafnvel stjómmálamönnum líka
að það kemur ekki nokkrum heilvita
manni að neinu gagni að sleppa
mönnum við skatta af einhverju
löngu liðnu ári. Þeir gætu alveg eins
stungið upp á því að árið 1945 eða
1913 verði gert skattlaust. Enginn
maður hafði svigrúm til að færa sér
skattleysið í nyt í fyrra og flestir em
jafnvel búnir að gera ráðstafanir til
að svíkja undan skatti á skattfram-
tali þess árs, sem enn er ófrágengið.
Það væm hrein svik við skattsvikar-
ana og okkur hin, sem höfum beðið
eftir staðgreiðslunni með óþreyju,
ef allt í einu á að koma aftan að
okkur og gera árið í fyrra skattlaust
í staðinn fyrir árið í ár. Hvers eiga
þeir að gjalda sem hafa loksins talið
heiðarlega fram í þeirri góðu trú að
þetta ár verði skattlaust í staðinn?
Nei, stjómarflokkamir eiga auð-
vitað að hafa vit á því að bjóða upp
á skattlaust ár um leið og kosning-
amar fara fram. Svo á að taka upp
staðgreiðsluna á næsta ári og halda
henni út næsta kjörtímabil eða
þangað til kemur að kosningum aft-
ur. Þá á að taka aftur upp núverandi
kerfi sem þýðir að við fáum aftur
skattlaust ár þegar kosið verður eft-
ir fjögur ár og svo koll af kolli.
Núverandi ríkisstjóm getur þannig
haldið lífi fram yffr næstu aldamót
þótt hún geri ekkert annað en að
bjóða upp á skattleysi fjórða hvert
ár. Skipta um kerfi á hveiju kosn-
ingaári.
Almenningur verður að fá að vita
hið snarasta hvort skattlausa árið
verður í ár eða í fyrra. Hver einasti
vinnufær maður og skólakrakkamir
og húsmæðumar og iðjuleysingjam-
ir em komnir í stellingar til að skella
sér út á vinnumarkaðinn og vinna
sér inn skattlausar tekjur. Hér em
gósentímar framundan og stjómar-
flokkamir geta tekið stjómarand-
stöðuna með hælkrók með því einu
að gefa merki, hvenær íslendingar
mega fara af stað í vinnuna.
Menn verða að vera búnir að ljúka
sér af fyrir áramótin næstu svo þeir
geti lagt niður vinnu og sest í helgan
stein þegar staðgreiðslan hefst. Það
yrði ófyrirgefanleg dauðasök gagn-
vart kosningbærum mönnum ef þeir
misstu af skattlausa árinu fyrir það
eitt að flokkamir létu þá ekki vita
að þeir gætu bæði unnið og kosið á
þessu ári - og haft upp úr því.
Dagfari