Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Blaðsíða 21
MIÐVIKUD AGUR 21. JANÚAR 1987. 21 Símamynd/Reuter radona andi? inar? Það er því ekkert óeðlilegt þótt for- sprakkar Lundúnaliðsins vilji ólmir fá knattspymugoðið í sínar raðir. En þótt báðir aðilar vilji ganga í eina sæng saman, Tottenham og Maradona, er margt sem stendur í veginum. Na- poli-liðið vill alls ekki missa garpinn og eru stjórnarmenn félagsins raunar á höttunum eftir marksæknum framherja til að leika við hlið hans. Svo undarlega vill til að nafn Tottenhamleikmannsins Clive Allen hefur borið þar mest á góma. Málið er því þegar komið í hnút. Að auki er allsendis óvíst að Totten- ham geti alið Maradona. Hann er óvenju frekur á jötu. - Forráðamenn Napoli-liðsins kasta t.d. í hann milljón krónum mánaðarlega. -JÖG/SMJ. ir með Leiftri ■ Víðismanna, hefur nú ákveðið að leika a ári. Er þetta mikil blóðtaka fyrir Víðis- u-áttu fyrir sæti sínu í 1. deild á síðasta Dr ekki að efa að hann verður mikill liðs- • taka á síðasta sumri en nú eru tveir af .. Mark Duffield mun að öllum líkindum hafi verið frá því gengið enn. -SMJ íþróttir 15 ára bið eftir Trabant Blaðamaður DV skygnist um í landi sósíalismans Steön Krispnssaa DV, Rostock Það er ekki ofsögum sagt að lífið hér í Rostock sé mjög frábrugðið líf- inu heima á íslandi. Hér er gifúrleg mengun, nær eingöngu tvær tegund- ir bíla á götunum, gífiirlegt eftirlit með öllum sköpuðum hlutum og er- lendir gestir, sem hingað koma, geta sig vart hreyft án þess að fylgst sé með ferðum þeirra. Á mörgum öðr- um sviðum er lífið írábrugðið því sem við eigum að venjast heima á Fróni. Og það varð íslensku lands- liðsmönnunum og öðrum sem i fylgd með þeim voru fljótlega ljóst þegar komið var til hafnarborgarinnar Rostock síðastliðinn sunnudag. Það vakti strax mjög mikla at- hygli að tvær tegundir bifreiða virðast nær einráðar á markaðnum hér. Varla sjást aðrar tegundir á götunum en Trabant og Wartburg, en þessar tegundir eru sem kunnugt er framleiddar hér í Austur-Þýska- landi. Götumar minna helst á fjöl- skrúðugt blómabeð enda eru Trabant-bílamir framleiddir í öllum regnbogans litum. Þrátt fyrir að Tra- bant bifreiðar séu framleiddar hér er löng bið eftir nýjum Trabant hafi almenningur hér á annað borð áhuga á nýrri bifreið. Fróðir menn segja að það taki 15 ár að bíða eftir nýjum Trabant. Mánaðarlaun um 5000 krónur íslenskar Almenningur virðist lifa góðu lífi hér þrátt fyrir marga galla sem að- komumenn sjá á ýmsum hlutum. Fólk er mikið á ferli að deginum til en um kvöldmatarleytið tæmast göt- umar gjörsamlega og eftir klukkan átta á kvöldin er vart hræðu að sjá utandyra. Verðlag hér er mjög lágt enda mánaðarkaupið aðeins hér um 5000 krónur (1000 austur-þýsk mörk). Erlendir ferðamenn verða þó að greiða meira fyrir flesta hluti en heimamenn. Og þeir geta sig varla hreyfl án þess að spyrja lögregluna leyfis og fylla út alls kyns skýrslur. Leigubílar óþekkt fyrirbæri Lítið sem ekkert er um leigubíla hér í Rostock og ekki möguleiki að njóta þjónustu þeirra fáu sem til eru í þessari 240 þúsund manna borg nema um mjög langa vegalend sé að ræða. Frá hótelinu, þar sem ís- lenska liðið býr, er um hálfrar klukkustundar gangur til íþrótta- hallarinnar og þegar ég átti þangað erindi og gerðist svo djarfur að panta leigubíl var sagt að slíkt væri ekki hægt vegna þess hve um stutta vega- lengd væri að ræða. Eini möguleik- inn væri að panta leigubíl t.d. til Berlínar en þangað er um 300 km akstur frá Rostock, Margir með auma afturenda Eins og áður er sagt eru ótal marg- ir hlutir mjög frábrugðnir því sem við eigum að venjast heima á ís- landi. Til að mynda tekur það 5-6 klst. að panta símtal til íslands og mjög erfitt getur reynst fyrir Islend- inga og aðra útlendinga að hringja inn í þetta lokaða land. Ekki hafa þessar miklu breytingar frá hinu daglega lífi heima á Islandi komið sér illa fyrir þá íslendinga sem hér eru. Engin vandamál hafa ennþá lit- ið dagsins ljós sem ekki hefur verið hægt að leysa. Nema ef vera skyldi allsendis óíeysanlegt vandamál sem upp hefúr komið þegar menn hafa þurft að bregða sér á salemið til að gera stóra hluti. Pappírsrúllumar þær sem allir þekkja af ferðum sínum á salemi em ekki líkar þeim sem hanga á veggjum á salemum heima á íslandi. Salemispappír er ótrúlega harður og minnir ekki á neitt nema sandpappír. Hætt er við að margir verði orðnir aumir í afturendanum áður en vfir lýkur. -JKS. Verður Alfreð ekki með á Flugleiðamótinu? Stefin Kristjánssan, DV, Rostodc Óvíst er hvort Alfreð Gíslason, sem leikur með Essen í Þýskalandi, geti verið með íslenska landsliðinu á Flug- leiðamótinu sem verður hér á landi í byrjun febrúar. Alfreð á mjög erfitt með að fá sig lausan úr vinnu sem hann stundar í Þýskalandi en hann ætlar að reyna allt hvað hann getur til að komast til íslands og spila með íslenska liðinu, en það verður að koma á daginn hvort það tekst. -JKS •Alfreö Gíslason. Upphafið að þessu var firétt í DV Reynismenn fá liðsstyrk • Stefán Pétursson leikur I Sandgerði næsta sumar. „Það ma eigmlega rekja upphafið að þessu til fréttar í DV sem ég sá síðasta haust,“ sagði Sigurður Jó- hannsson, formaður knattspymu- deildar Reynis í Sandgerði, en þeim Sandgerðingum hefur nú bæst góður liðsauki. KR-ingamir Stefán Péturs- son og Davíð Skúlason hafa nú ákveðið að leika með Reyni í 3. deild næsta sumar. „Mér varð hugsað til þessarar fréttar og hafði samband við þá þegar þeir komu heim í jóla- frí frá Bandaríkjunum. Þeir komu síðan og skoðuðu aðstöðuna og á- kváðu að slá til,“ sagði Sigurður. Það er mikill hugur í Reynismönn- um núna og hafa þeir sett stefnuna á 2. deild. Er jafnvel hugsanlegt að fleiri leikmenn komi til þeirra. Jón Örvar, sem lék í marki Víðis síðasta sumar, er sagður hugsa sér til hreyf- ings og er þá hans gamla lið, Reynir, nefnt til. Einnig mun Ari Haukur Arason, sem var markakóngur 3. deildar 1985, ætla að taka skóna fram aftur. -SMJ Archibald með hvrtblæði? Stefin Kristjánssan, DV, Rostack: Aðalfréttir flestallra spænskra blaða í gær sögðu frá því að Steve Archibald, sem leikur með Barcel- ona, væri haldinn hvítblæði. Fréttin var ekki borin til baka og er það talið renna stoðum undir það að fréttin sé á rökum reist. Ef þetta reynist vera satt er þetta geysilegt áfall fyrir hina fjölmörgu aðdáendur þessa geðþekka íþróttamanns. Archibald hefúr lítið leikið á Spáni það sem af er þessu keppnis- tímabili en fyrir hjá félaginu eru tveir Englendingar eins og kunn- ugt er, þeir Gary Lineker og Mark Hughes. -JKS Verðum að vinna Svía - segir Siggi Gunn. Stefin Kristjánssan, DV, Rostodc „Við vitum nánast ekkert um hvar við stöndum í dag. Við höfum ekki náð saman svona sterku liði siðan í HM í Sviss. Mestu mögu- leikar okkar verða gegn Pólverj- um. Persónulega kitlar mig mest að vinna Svía, það var óþolandi að tapa gegn þeim í HM í Sviss. Leikurinn í kvöld gegn Austur- Þjóðverjum verður mjög erfiður. Við reynum að spila yfirvegað og ná sem bestum úrslitum. En það verður að segjast að ég er ekki bjartsýnn," sagði Sigurður Gunn- arsson. -JKS Héðinn meiddur Stefin Kristjánssan, DV, Rostodc Allir leikmenn íslenska liðsins ganga heilir til skógar til leiksins í dag að undanskildum yngsta leik- manni keppninnar, Héðni Gilssyni úr FH. Hann á við smávægileg meiðsli að stríða en vonast er þó til að hann verði orðinn góður af þeim síðar í dag. Óvíst er þó að hann verði með í hópnum á móti Austur-Þj óðverj um. Brynjar Kvaran fór til tann- læknis sökum tannpínu sem kvaldi hann illilega og var gert við jaxl til bráðabirgða. Þá munu Einar Þorvarðarson og Sigurður Gunnarsson snúa aftur til Spánar á laugardag og leika því ekki með íslenska liðinu gegn Rússum og Svíum. Þeir þurfa að leika með félagi sínu í deildarkeppninni á sunnudag. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.