Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1987.
33
35 ára karlar í leikfimi:
Markmiðið að
losna við varadekkið
Á áramótum strengja margir
svokölluð áramótaheit, algengt er
að fólk ákveði að hætta að reykja
iog jaihíramt að taka upp nýja lífs-
stefau. Einn angi þeirrar nýju stefau
er oft á tíðum að nú skuli líkams-
ræktin tekin með áhlaupi og eftir-
köst jólaboðanna hreinsuð ó brott.
Það stendur heima að í byijun jan-
úar er yfirleitt góð aðsókn á hin
ýmsu líkams- og leikfiminámskeið
og litum við inn á eitt slíkt í íþrótta-
Róbert Jónsson dregur ekki af sér í sippinu eins og sjá má.
Jökull Sigurðsson i sippliöinu aö þessu sinni en hann eins og fleiri á nám
skeiðinu hjá Míle sagðist vera ákveðinn í þvi að losna við varadekkið.
húsi Digraness í Kópavogi. Nám-
skeiðið er aðeins fyrir karlmenn og
verða þeir að vera orðnir 35 ára
gamlir.
Rójega af stað
„Ég legg áherslu á það að ekki sé
farið of hratt af stað. Hingað koma
menn sem hafa lítið hreyft sig og það
tekur vitanlega sinn tima að byggja
upp úthald hjá þeim,“ sagði Míle sem
sér um námskeiðið í Digranesi.
Hann lagði ríka áherslu á það í
hverri æfingu að þeir ættu bara að
nota sinn eigin hraða og finna sjálf-
ir þegar þeir væru búnir að fá nóg.
Hann tók púlsinn hjá þeim reglulega
og virtist vera ánægður með útkom-
una. Til að byrja með sýndist okkur
að þetta væri fallhægt og að menn-
imir reyndu ekkert á sig, en þegar
leið á tímann kom í ljós að hraðinn
sem Míle lét þá vinna á var nægileg-
ur því svitinn lét ekki á sér standa.
Liðkun og styrking
Að lokinni æfingu tókum við lík-
amsræktarmennina tali og kom í ljós
að enginn þeirra haiði strengt þess
heit að fara i líkamsræktina. Hins
vegar voru þeir allir sammála um
að varadekkið víðfiræga yrði að
hverfa, hvemig svo sem það mundi
ganga. Varadekkið var aðalmálið
hjá flestum en aðrir sögðust líka ein-
faldlega vilja styrkja sig og liðka.
Róbert Jónsson knattspymudóm-
ari er einn þeirra sem er á námskeið-
inu hjá Míle og sagðist hann þurfa
að halda sér í æfingu vegna dómara-
starfsins auk þess sem honum þætti
það sjálfsagt að hreyfa sig eitthvað.
„Ég hef skokkað upp á mitt eindæmi
en almennt held ég að undirstöðuat-
riðin í líkamsræktinni, teygju- og
upphitunaræfingar, séu vanrækt.
Það er ekkert mál að fara út að
hlaupa en það gleymist oft að hita
upp óður,“ sagði Róbert. Að hans
sögn hafa dómarar æft svolítið sam-
an en hann hefur lítið verið með í
þeim hópi.
Þórhallur Aðalsteinsson var að
mæta í sinn fyrsta tíma hjá Míle
ásamt félaga sínum Victori Ingólfs-
syni. Þórhallur sagðist alls ekki vera
með kraftadellu, hann sagðist hafa
prófað lóðin en ekki líkað við slíka
rækt. „Ég kem til að auka þolið og
fara í megrun um leið,“ sagði harrn.
Victor sagðist aðallega hafa komið
vegna hvatningar frá Þórhalli, en
þar sem hann væri nýhættur að
reykja þá væri kjörið að liðka sig í
leikfimi.
Við vonum bara að strákamir hafi
losnað við varadekkin sín og verði
orðnir liprir og í toppformi þegar
vorar.
-SJ
„Skokka svo rólega, en aldrei að stoppa alveg," sagði Míle og hvatti menn til dáða. Á myndinni eru þeir Þór-
hallur Aðalsteinsson, Victor Ingólfsson, Þórður Flosason, Jökull Sigurðsson, Gunnar Friðriksson, Róbert Jónsson
og Rútur Eggertsson. Míle snýr baki i okkur.
Þeir Róbert (Lv.) og Gunnar sippa á fullu en Þórður skokkar létt um salinn.