Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1987. Erlendir fréttaritarar Hollendingar ánægðir með vetrarhörkumar Ellefu borga skautahlaup er efst í huga Hollendinga þessa dagana og vonast þeir til þess að frostið haldist til þess að af hlaupinu verði. Sigrún Haiðaidóttir, DV, Amslerdam; Aðeins flugsamgöngur hafa verið með eðlilegum hætti í kuldakastinu undanfama daga hér í Hollandi. Jámbrautalestir stóðust ekki tímaá- ætlanir og talsverð vandræði hafa skapast í austanverðu landinu vegna kyrrstæðra bifreiða á hraðbrautum. Um miðja síðustu viku var kald- asti dagur í Hollandi. frá 1938. Frostið mældist átján gráður en vegna hvass vinds og raka jafhgilti kuldinn mínus þijátíu og fimm gráð- um. Til vandræða horfði í Kampen á Fríslandi er ísinn é ánni Ijssel, sem bærinn stendur við, hafði hækkað um einn metra og sextíu og þrjá sentímetra. Var hann aðeins sjö sentímetrum lægri en götur bæjar- ins. Yfirborð íshrönglsins lækkaði þó degi seinna svo að bærinn var úr allri hættu. í þessari kuldatíð hefur yfirborð allra vatnsfalla í landinu (ef hægt er að tala um vatnsfóll í staðinn fyr- ir ár) hækkað og á miðvikudag voru næstum allar ár lokaðar vegna íss. Hefur það ekki gerst síðan 1963. Hækkað verð á grænmeti Vegna kuldanna hefur grænmeti hækkað vemlega í verði og má sem dæmi nefha að kílóið af púrru hefúr nær fimmfaldast á einni viku. Mikil aðsókn hefur verið að þeim stöðum sem hlynna að umrenning- um og hefur á einum þessara staða, sem starfræktur er í Amsterdam, svefriplássum verið fjölgað úr þijátíu og fimm rúmum í rúmlega sjötíu rúm. Auk þess er hundrað manns gefin súpa í hádeginu á hveijum degi. Hingað til hefur kuldinn kostað eitt mannslíf. Ánægðir með kuldana Almenningur er yfirleitt ánægður með kuldana því nú er hægt að stunda þjóðaríþróttina á hverju síki og hverjum polli. Mæður kenna ung- um bömum sínum að standa á skautum svo að segja fyrir utan húsdymar. Og í skólum fá bömin tilsögn á skautum á nærliggjandi síki í öðrum hveijum íþróttatíma, auk þess sem það kemur í hlut íþrót- takennara að kenna bömum að komast upp úr vök detti þau ofan í. Þessi hluti kennslunnar fer þó ekki fram í reynd nema í Zaandam í Amsterdam þar sem íþróttakennari hefúr látið gera vök í sundlaug stað- arins. Þar kennir hann kappklædd- um bömum að koma sér upp úr vökinni af eigin rammleik og eins kennir hann þeim að hjálpa öðrum er dottið hafa ofan í. Hefur uppátæki kennarans vakið talsverða athygli. Maraþonskautahlaup Ellefu borga skautahlaup er ofar- lega í hugum Hollendinga er vart verður við frost og ríkir nú mikil spenna hvort í vetur tekst að halda þetta fræga maraþonskautahlaup milli ellefu borga á Fríslandi en vegalengdin er tvö hundmð kíló- metrar. Þegar skautahlaupið var haldið 1985 vom liðin tuttugu og tvö ár frá því að komið hafði nógu kaldur vet- ur til þess að hægt væri að halda hlaupið. Enn sem komið er er ísinn milli litlu borganna ekki alls staðar nógu sterkur því þar er mikill straumur í síkjunum og vegna minnkandi frosts síðustu daga er ekki útlit fyrir að af keppni verði að þessu sinni nema frostið aukist. Er þá ráðgert að halda keppninga í lok vikunnar. Síðastlið- inn vetur tóku um sautján þúsund manns þátt í keppninni. Selurinn veldur norskum sjómönnum miklu tjóni og verði hann ekki látinn víkja segjast sum- ir þeirra gefast upp. Noregur Skorað á stjómvöld að leyfa selveiðar Bjöig Eva Eriendsdóttir, DV, Osló: Selurinn er orðinn sannkölluð plága fyrir sjómenn í Noregi sem stunda fiskveiðar við strendur landsins. Þegar verst gegnir kemur meira af sel en fiski í netin. Þetta veldur sjó- mönnunum miklu tjóni vegna þess að selurinn gjöreyðileggur veiðarfærin. Auk þess er mikil fyrirhöfri að koma honum um borð og seinna í land þegar það er reynt. Þegar í land er komið fer selurinn í hund- ana í orðsins fyllstú merkingu. Hann er friðaður og því verðlaus og notaður sem dýra- fóður þegar honum er ekki fleygt. En hvort sem selurinn er friðaður eða ekki þá kemur hann í netin. Alveg sunnan frá eyjunni Sotra við Bergen og norður eftir allri ströndinni er selurinn fyrir sjómönnunum. Þeir segja að selnum hafi íjölgað mikið und- anfarin ár og sums staðar við norðurströndina segjast sjómenn verða að gefast upp á fisk- veiðum og fá sér vinnu í landi því annaðhvort verði selurinn að víkja eða þeir sjálfir. Mikið hefur verið skrifað um selamálið í norskum blöðum og hafa sjómenn skorað á stjómvöld að leyfa selveiðar að nýju. Sjó- mannafélagið telur sig hafa breiðan stuðning fagmanna og almennings bæði innanlands og utan til þess að selveiðar verði teknar upp aftur. ííi 11, ,j , í blöðunum er einnig til þess tekið að græn- friðungar hafi sýnt málinu skilning og sagt að þeir muni ekki beijast gegn hóflegum sel- veiðum á þessum slóðum. Þetta reyndist vera rangt og einn talsmanna grænfriðunga kvað þetta tómt rugl. Hann sagði að auðvitað væm þeir á móti selveiðum í Noregi ekki síður en annars staðar og að samtökin mundu ekki láta sitt eftir liggja til þess að reyna að stöðva þær ef með þyrfti. En meðal almennings í Noregi er útbreidd- ur skilningur á þessu vandamáli og mörgum þykir súrt í broti að þuría að láta undan er- lendum þrýstingi, bæði í sela- og hvalamálum. En ekki er nóg með ameríska andstöðu og mótspymu grænfriðunga gegn seladrápi held- ur þurfa Norðmenn einnig að semja við Sovétmenn áður en af selveiðum getur orðið. En Sovétmenn eiga eirrnig hagsmuna að gæta varðandi selveiðar og hafa unnið að rann- sóknum á selastofni við Norður-Atlantshaf. Norðmenn em því bundnir í báða skó og geta ekkert gert í málinu upp á sitt eindæmi. Það eina sem sjómenn geta sótt til sjávarút- vegsráðuneytisins em hughreystingarorð og kannski með tíð og tíma fjárstyrkur til þess að gera við veiðarfæri sem selurinn heftir eyðilagt. Schliiter stefnir á kosningar í haust Haukur L Hauksson, DV, Kaupmannahöfn: Poul Schlúter, forsætisráðherra Danmerkur, segist ekki ætía að notfæra sér friðsamlega lausn kjarasamninga til þess að stofiia til kosninga í vor. Stefiiir forsætisráðherrann á kosningar í nóvember eða desember næst- komandi. Segir hann að nauðsynlegt sé að £a vinnu- frið á þingi og ekki ástæða til þess að ræða kosningar fyrr en eftir sumarfrí þegar fjöldi lagafrumvarpa hefúr verið til meðhöndlunar í þinginu. Schlúter er nýkominn úr vikulangri opin- berri heimsókn til Indlands ásamt fjölmennu fylgdarliði. Var ætlunin að styrkja stöðu danskrar framleiðslu á Indlandsmarkaði og 8tjómmálaleg tengsl landanna. Hefiir forsæt- isráðherrann fengið mikið hrós fyrir sölu- mennsku sína eftir heimsóknina. Við komuna til Danmerkur lýsti Schlúter yfír ánægju sinni með friðsamlega lausn kjarasamningaviðræðnanna. „Mikilvægasta hlutverk ríkisstjómariimar í þessu sambandi er að halda sér saman og vona að komandi samningaviðræður endi á sama hátt og þess- ar. Danskir eituiiyfjasjúklingar Tuttugu smitaðir Þótt fjöldi dauðsfalla vegna eiturlyfjaneyslu hafi ekki aukist síðustu ár vekur áfengis- og fíkniefnaráðið í Danmörku athygli á að leggja þurfi meiri áherslu á meðferð eiturlyfjasjúkl- inga vegna hættunnar á eyðni. Tekið er fram að ekki hafi átt sér stað aukn- ar aðgerðir af hálfú meðferðarstofhana til að hindra útbreiðslu eyðni frá smituðum eitur- lyfjasjúklingum. Rannsóknir frá 1986 sýna að milli tíu og tuttugu prósent eiturlyfjasjúklinga í Kaup- mannahöfri em smitaðir af eyðni. Áfengis- og prósent af eyðni fíkniefiiaráðið óttast stöðuga aukningu þess- ara tilfella ef ekki koma til stórauknar fyrir- byggjandi aðgerðir. Telur ráðið að fræðsla og ókeypis sprautur séu ekki nægjanlegt í því sambandi. „Vitn- eskjan um eyðni mun auka örvilnan og vonleysi og leiða til aukinnar sjálfseyðingar meðal eiturlyfjasjúklinga. En eyðni getur einnig haft hvetjandi áhrif á eiturlyfjasjúkl- inga til að leita hjálpar. Þar með eykst álagið á meðferðarstofnanimar og það er alls óvið- eigandi ef þær geta ekki staðið undir því álagi,“ segir í skýrslu ráðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.