Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1987. #- 1 Utlönd x>v íbúar Falklandseyja hafa áhyggj- ur af því hvað framtíðin muni bera í skauti sér fyrir þá og land þeirra og þó hefur milljónum sterlings- punda verið varið til þess að létta af þeim áhyggjum af hugsanlegum óvinaárásum. Það sem veldur hinum nítján hundruð og tveim Falklendingum mestu hugarangri er það hvort þeir geta gert sér vonir um að þrífast í það óendanlega í þeirri diplómatísku kyrrstöðu sem ríkir á milli Bretlands og Argentínu. í næsta mánuði tekur gildi út- færela fiskveiðilögsögunnar kring- um eyjamar og óttast nokkrir íbúanna að Argentínumenn grípi til einhverra aðgerða til þess að athuga viðbrögð Breta. Frá því að Bretar hröktu innrásar- lið Argentínumanna á brott frá eyjunum árið 1982 hefur fjögur hundruð og fimmtíu milljónum sterl- ingspunda verið varið í byggingu flugvallar og herbækistöðva. Aætlað er að kostnaður Breta við að ná eyjunum á sitt vald aftur hafi numið flórum og hálfum milljarði punda og er þá talið með allt tjón sem þeir ui'ðu fyrir. Árlegur kostn- aður við vamir eyjanna er um hundrað og fjömtíu milljónir sterl- ingspunda. Breski fáninn við hún Thatcher heldur fast við þá ákvörðun stjómar sinnar að láta ekki eyjamar af hendi og virða þar með óskir eyjaskeggja. Þykir það ekki fara á milli mála að þeir vilja vera breskir þegnar þar sem sjá má breska fánann blakta við hún við næstum því hvert heimili. Bretar hafa ákveðið að fækka í herliði sínu á eyjunum um helming, í tvö þúsund manns. Velta Falklend- ingar því fyrir sér hvort stjómvöld í Argentínu túlki það ekki á þann veg að Bretar séu farnir að linast. Falklendingar óttast einnig að ef Verkamannaflokkurinn kemst til valda í Bretlandi gæti farið svo að viðræður hæfust milli Breta og Arg- entínumanna um framtið eyjanna. Stefna flokksins hefur verið sú að vera reiðubúinn til viðræðna um framtíð eyjanna samtímis sem höfð yrði í huga ósk íbúanna um að vera áfram undir yfirráðum Breta. Stjórn Thatchers er hins vegar ekki til við- ræðna um slíkt. Þó svo að stjóm Raul Alfonsins, forseta Argentinu, hafi margsinnis lýst því yfir að hún vilji að málið verði leyst eftir diplómatískum leið- um em íbúar eyjanna samt hræddir um að innrásin frá 1982 endurtaki sig. Hart er lagt að Bretum að leysa málið, ekki bara af hálfu Sameinuðu þjóðanna heldur einnig af hálfu bandalagsþjóðanna. Sérstakur sendimaður frá Bandaríkjunum er væntanlegur til Lundúna í þessari viku til þess að reyna að fá Thatch- er til þess að breyta um afstöðu. Þegar útfærsla fiskveiðilögsög- unnar tekur gildi þann 1. febrúar næstkomandi þarf leyfi til þess að veiða umhverfis eyjamar. Búist er við að gefin verði út tvö hundmð og fimmtíu leyfi. Leggja Bretar áherslu á að þeir búist ekki við nein- um vandræðum. Falklendingar em hins vegar sannfærðir um hið gagnstæða og vitna þeir þá í athugasemd er utan- ríkisráðherra Argentinu, Dante Caputo, lét hafa eftir sér í október. Kvað hann útfærslu landhelginnar gefa tilefni til vopnaðra átaka. Óviss framtíð Breskir emhættismenn á Falk- landseyjum segja opinberlega að þáttur hersins í landhelgisgæslunni verði lítill og muni hún aðallega hvíla á herðum borgaranna. Þeir hafa þó viðurkennt í trúnaði að breskar freigátur og flugvélar muni áreiðanlega taka reglulega þátt í vemdun fiskveiðilögsögunnar. Óvissa ríkir einnig í efhahagsmál- um eyjaskeggja og lífsafkomu. Þörf þykir á nýjum atvinnugreinum þar sem sauðfjárræktin gefur ekki nógu mikið af sér. Fyrir innrásina 1982 var efnahagur eyjanna farinn að tengjast efhahag Argentínu í ríkara mæli en áður en við innrásina var snögglega bundimi endi á það samstarf. Nú, fimm árum seinna, þykir framtíð Falklandseyja með öllu óviss. Bretar verja milljónum sterlingspunda á ári hverju til varnar Falklandseyjum. Kostnaður Breta við að ná Falklandseyjum aftur á sitt vald er talinn nema fjórum og hálfum milljarði sterlingspunda og er þá allt tjón, er þeir urðu fyrir, reiknað með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.