Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1987. 31 SancLkom Vanlíðan Á dögunum var haldin helj- armikil ráðstefna um tölvur á vegum Lögmannafélags ís- lands. Margir voru á mæl- endaskrá og létu gamminn geisa um viðfangsefnið. Páll Jensson, forstöðumað- ur Reiknistofu Háskólans, var sá sjöundi á mælendaskránni. Þegar hann steig í pontu hóf hann mál sitt á því að það væri lítið eftir til að segja þeg- ar öll þessi fróðlegu erindi hefðu þegar verið haldin. „Mér líður eins og sjöunda eiginmanni Elísabetar Taylor á brúðkaupsnóttina," sagði Páll. „Ég er að reyna að hugsa upp eitthvað nýtt.“ Stefán Valgeirsson. Nafná lista Stefáns Margir velta nú fyrir sér hvað framboðslisti Stefáns Valgeirssonar í komandi kosningum muni heita. Stef- ánsmenn hafa sjálfir sagt að þeir muni reyna að fá lista- bókstafina BB. Eins og menn rekur minni til, tilkynnti Stefán um skipan listans á veitingastaðnum Vín í Eyjafirði. Gárungamirá Arni Johnsen. Föstskot til baka Það varð uppþot hjá for- ráðamönnum Útvegsbankans þegar útibússtjórinn í Eyjum, Vilhjálmur Bjamason, sagði í viðtali við Bæjartíðindi að Arni Johnsen væri óhæfur þingmaður. Vilhjálmur hefur nú beðist afsökunar á þessum ummælum. Hins vegar lætur Árni Johnsen gamminn geisa í viðtali í hinu Eyjablaðinu, Fréttum. Þar segir hann með- al annars: „Vilhjálmur Bjamason hef- ur gert mörg mistök sem bankastjóri Útvegsbanka ís- lands í Vestmannaeyjum... Það sem er verst er óþolandi framkona bankastjórans við fjöldann allan af Vestmanna- eyingum, sem eiga rétt á því að eiga viðskipti við Útvegs- banka Islands sem aðalbanka Vestmannaeyja. Það er ekki í mínum verkahring að kenna Vilhjálmi Bjamasyni manna- siði, en mér er kunnugt um að bankastjórar aðalbankans í Reykjavík og bankaráð hafa miklar áhy ggj ur af skapbrest- um Vilhjálms og glórulausri framkomu á stundum..." Manni sýnist nú að brátt fari að hilia undir afsökunar- Ragnhildur Helgadóttir. Þannig fór um sjóférð þá Nú er að hefjast mikil smokkaherferð hér á landi til að reyna að stemma stigu við eyðni. Er atgangurinn svo mikill að Ragnhiidur heil- brigðisráðherra skaut sér úr landi til að komast undan því að láta taka af sér myndir með smokka milli handanna, sem síðan yrðu birtar í blöðum. Það er sem kunnugt er Stuð- maðurinn Valgeir Guðjónsson sem er í forsvari fyrir mynda- tökunum. Þetta leiðir hugann að því hvemig til tókst á Indlandi þegar svona herferð var sett í gang þar. I því tilviki áttu tútturnar að notast til að tak- marka bameignir. Bónda einum þar í landi var afhent búnt. Síðan var honum kynnt með varfærinni sýni- kennslu hvernig ætti að nota gripina. Hann hélt síðan heim, syngjandi sæll og glaður. En ekki leið langur tími þar til kona bóndans varð ólétt, og það ekki af einu heldur tveim. Bóndi fór nú til fræð- Valgeir Guöjónsson. sagði hann dapur. „Ég gerði alveg nákvæmlega eins og þið sýnduð mér. Ég stakk bamb- usstönginni í kofagólfið og strengdi smokkinn á hana.“ Hringt um miðja nótt Um daginn henti undarlegt atvik íslenskan námsmann sem búsettur er í New York. Hann hafði gengið seint til hvílu. Þegar hann var að festa blundinn hringdi síminn allt í einu. Það eina sem sagt var á hinum enda línunnar var: „ Al- berto.“ Og svona gekk þetta nokkr- um sinnum um nóttina. Síminn hringdi hjá vini okkar og alltaf var sagt eitt orð: „Al- berto.“ Af þessu dregur námsmað- urinn þá élyktun að kosninga- baráttan hér heima á Fróni sé hafin fyrir alvöru. Norðurlandi eystra hafa nú fundið verðugt nafn á listann. Þeir kalla hann Vínlistann. beiðni númer tvö. Eða eru þingmenn friðhelgari en aðr- Ý? inganna og sagði farir sínar ekki sléttar. „Ég bara skil þetta ekki,“ Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir Kvikmyndir Bíóhöllin - Krókódfla-Dundee ★★★ Áströlsk hetja Krókódila-Dundee (Crocodile-Dundee). Leikstjóri: Peter Faiman. Handrit Paul Hogan, Ken Shadie og John Cornell. Kvikmyndun: Russel Boyd. Tónlist: Peter Best Aðalleikarar: Paul Hogan, Linda Kozlowski og Mark Blum. Það hefúr ekki farið fram hjá nein- urri, sem á annað borð íylgist eitt- hvað með kvikmyndum, að Ástralíumenn hafa verið í mikilli sókn. Hingað til hefur samt engin áströlsk kvikmynd slegið almenni- lega í gegn á almennum kvikmynda- markaði ef miðað er við vinsælustu bandarísku kvikmyndimar. Nokkr- ar gæðamyndir hafa vakið vemlega athygli án þess þó að ná verulegum vinsældum. Það er helst að myndim- ar um Mad Max hafi verið þeirra besta íjárfesting. En sú síðasta og jafnframt sú vinsælasta var kostuð af Bandaríkjamönnum að mestu leyti svo varla er hægt að tala um ástralska kvikmynd í hennar tilfelli. Þetta hefur nú breyst með tilkomu Krókódíla-Dundee. Sú mynd hefur slegið nær alls staðar aðsóknarmet og þrátt fyrir að ekki var byrjað að sýna hana fyrr en á haustmánuðum í Bandaríkjunum er hún næstvin- sælasta myndin þar á síðasta ári. Þessar vinsældir hafa komið öllum spámönnum á óvart og hafa margar skýringar komið fram en nær engin haldbær. Sannar það aðeins að eng- inn veit fyrirfram hvað það er sem skapar vinsældir kvikmyndar. Krókódíla-Dundee á þessar vin- sældir skilið. Þetta er virkilega skemmtileg mynd. Ævintýramynd sem fjallar um ástralska goðsögn í lifanda lífi. Mick Dundee, sem hefúr fengið viðumefnið Krókódíla- Smákrimmar í New York hafa ekki mikið að gera í Krókódíla-Dundee eins og sést á þessari mynd. Dundee, vegna þess að hann hafði ráðið niðurlögum krókódíls sem hafði bitið annan fótinn af honum og hafði Dundee skriðið hundrað mílna leið að næstu mannabyggð. Saga sem að sjálfsögðu er ýkt, eins og bandarísk blaðakona kemst að þegar hún mælir sér mót við hann. Dundee er samt einstakur og blaðakonan hrífst af honum og býð- ur honum til New York. Þar er hann til að byrja með eins og fiskur á þurru landi, énda hafði hann aldrei áður komið til neinnar borgar, hvorki stórrar né lítillar. Sjálfsbjarg- arviðleitnin er honum samt með- fæddur eiginleiki og hann er ekki lengi að aðlagaðst nýjum venjum og siðum og hættur stórborgarinnar verða honum engin vandamál. Hann leysir vandamálin á sinn hátt, ólíkt öllu sem við höfum séð áður.... Það er fyrst og fremst aðalleikar- anum Paul Hogan að þakka hversu vel hefur tekist til með myndina. Hann er einstaklega hrífandi og skemmtilegur leikari og sumir vilja meina að vinsældir myndarinnar í Bandaríkjunum séu ekki minnst vegna þess hversu amerískur hann er í útliti með kúrekahattinn og í leðurjakka. Krókódíla-Dundee er fyrsta kvikmynd Hogans. Hann er þekktur sjónvarpsleikari í heima- landi sínu og hafði lengi gengið með hugmyndina um Krókódíla-Dundee áður en hann lét hana verða að veru- leika. í raun er það aðeins kvikmynda- tökumaðurinn, Russel Boyd, sem hefur skapað sér nafn i kvikmynda- heiminum. Hann hefúr með sam- starfi sínu við Peter Weir skapað sér nafh sem einn besti kvikmyndatöku- maður sem völ er á. Paul Hogan hefur sagt að tilgang- urinn með Krókódíla-Dundee sé fyrst og fremst sá að koma fólki í gott skap. Og það tekst honum svo sannarlega. Það hlýtur öllum að líða vel eftir að hafa séð þessa skemmti- legu mynd um hetjuna Krókódíla- Dundee. Hilmar Karlsson. ATVINNA OSKAST Maður á besta aldri (óvirkur alkohólisti) óskar eftir traustu og vel launuðu starfi. Hefur stúdentspróf af viðskiptabraut og tungumálakunnáttu í ensku og sænsku. Tilboð sendist DV. merkt Áreiðanlegur 422. Viljum selja notaðan raf- drifinn vörulyftara, m/ hleðslutæki. Lyftigeta 1500 kg - í 3,5 m hæð. Til greina kemur að taka upp í litinn, lipran rafmagnslyft- ara (án sætis) m/lyftigetu ca 600 kg í 3 m hæð. Mýbýlavag 8 (Dalbrekku mogln) sími 46216. NÝIR VÉLSLEÐAR Artic Cat: EITigre'87 ca 04 hö.:. .......-.- kl‘. 410:500 upps. Panthera '87 ca 72 hö v.m. afstarti ...kr. 362.000 Cougar-árg. '87 co 56 hö......kr. 31&t080 upps. Cheetah F/C árg. '07 ca 56 hö.kr. 349.000 upps. Chettah L/C árg. '87 ca 94 hö.kr. 436.000 Verð til björgunarsveita: Chootah F/C árg. '87 ca 56 hö.kr. 104.000 upps. Cheetah L/C árg. '87 ca 94 hö.kr. 220.600 N0TAÐIR VÉLSLEÐAR Artic Cat El-Tigre '85 Artic Cat El Tigre '81 . Artic Cat Panthera.. Grizzly-de luxe Aktiv. Polaris Indy 400 '85 Polaris Trail '84.. Yamaha SRV '84..... Yamaha V-Max....... Kawasaki Drifter '81 Kawasaki lnvader'81 Kawasaki lntruder'81 Ski-doo Scandic '84. Ski-doo Everest '80.... Fullkomin varahluta- ...320 þús. ...200 þús. ...130 þús. ...250 þús. ...290 þús. ...265 þús. ...280 þús. ...310 þús. ...127 þús. ...160 þús. ...190 þús. ...210 þús. ...150 þús. °g viðgerðaþjónusta. Opið yirka daga kl. 9.00-19.00 Laugardaga kl. 10.00-16.00. VANTAR SLEÐA Á SKRÁ. HVERGI MEIRA ÚRVAL NÝRRA OG NOTAÐRA VÉLSLEÐA. Verið velkomin! ílð-& Vélsleðasalan BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR 84060 ^ 38600 ★★★★ Frábær ★★★ Góö ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.