Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1987. Sviðsljós Ólyginn Robert Redford er ekki par hrifinn yfir nýjustu uppljóstrunum á síðum fjölmiðl- anna. Karltetrið þarf sumsé á gleraugum að halda til þess að geta séð lengra en nef hans nær og því hafa myndir af honum með hjálpartækin á nefbroddin- um verið að skjóta upp kollinum á heimsins bestu slúðurdálka- síðum. Robert hræðist að þetta skaði ímynd hans sem sexað- asta karlmanns veraldar, kýs fremur að vera sýndur ber að ofan og í einhverjum smápjötl- um frá mitti og niður fyrir nára. En stjörnurnar fá litlu ráðið inni á ritstjórnunum þar sem örlög þeirra ráðast og því verður gler- augnaglámsímyndinni ekki forðað - Robert til mikillar skap- raunar. Jane Birkin harðneitar að halda áfram að stynja opinberlega og gildir þá einu hversu háar fjárupphæðir eru i boði. Þessi franska sjóbis- nesskona átti stunutakt á vinsældarlistum poppþáttanna mánuðum saman - Je t'áime hét listaverkið. í Frans heldur Jane nokkuð örugglega vin- sældum sem bæði söng- og leikkona en eftir að frygðarstun- um lauk hefur fremur lítið farið fyrir henni í öðrum löndum. Nú skal víst úr því bætt og er í gangi mikil Janeherferð þessa dagana með umboðsmanninn hennar í broddi fylkingar. Marilyn Monroe virðist ekki eiga það á hættu að gleymast þrátt fyrir að allnokkuð vatn hafi til sjávar runnið frá andláti hennar. Alls kyns keppn- ir eru haldnar til þess að finna þann kvenmannsþúk sem lík- astur er hinni fögru bombu og sigurvegarar síðan dubbaðir upp í viðeigandi gervi. Með- fylgjandi mynd er ekki af hinni upprunalegu Marilyn heldur franskri stúlkukind sem Vér- onique nefnist en sú þykir minna mjög á Marilyn í lifanda lífi. Stóri bróðir á Hverfisgötunni færði afmælisbarninu heillaóskir og gjafir - leikhússtjórarnir Stefán Halldórsson og Gísli Alfreðsson. Allnokkrir tóku til máls að gefnu tilefni. Hérna er Flosi Gunnlaugur Ólafsson á alvörustundu. Leikfélag Reykjavíkur hefur nú náð félagið í gamla húsnæðinu við Tjörn- því að fylla níunda tuginn og af því ina en farið er að styttast í þeirri tilefni fögnuðu starfsmenn og vel- dvöl því í byggingu er myndarlegt unnarar á ýmsa vegu. Ennþá er leikhús í nýja miðbænum. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, kom til að fagna með Leikfélags- fólki niðri við Tjarnarendann og ræðir hér við leikhússtjórann Stefán Baldursson og leikritahöfundinn Birgi Sigurðsson. Til Bessastaða mættu borgarstjórinn í Reykjavík - Davíð Oddsson - og gamalkunnugt leiklistarandlit - Karl Guðmundsson leikari. Ljósmyndarar DV - Ragnar S og liðnum tíma og viðra bjartar vonir GVA - fylgdust með afmælisamstr- félaginu til handa. Leikfélagi inu og sýna meðfylgjandi myndir Reykjavíkur er óskað alls góðs í menn og konur í hátíðarskapi fagna framtíðinni. Forsetinn bauð til veislu að Bessastöðum vegna áranna niutiu og meðal gesta voru hjónin að Gljúfrasteini, Auður og Halldór Laxness. Stungið saman nefjum á fornu höfðingjasetri - og að sögn sérfróðra má þekkja leikkonurnar Valgerði Dan og Sigríði Eyþórsdóttur. Jón G. Hauksson, DV, Akureyii: Ólafur Laufdal bylti Lautinni, veitingastaðnum í kjallara Hótels Akureyrar, um síðustu helgi. Stað- urinn er núna í stíl við teríu. Fjórir réttir eru nú í vali í hádeginu og fjórir á kvöldin. Vegna næturafgreiðslunnar geta hótelgestir farið niður í Lautina til klukkan þrjú á nóttinni og keypt mat. Nátthrafnarnir hafa svo tím- ann til klukkan fimm um helgar. Skipt verður um allar innrétting- ar í herbergjum Hótels Akureyrar á næstunni og þau máluð. Akur- eyringar segja þessa dagana að leiki enginn vafi á því að Ólafur Laufdal er kominn norður. Kokkurinn broslr við opnun nýrrar Lautar í kjallara Hótel Akureyrar. Lautin er nú i teríustil. DV-mynd JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.