Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Side 3
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
3
Búnaðurinn hjá Pósti og sima sem tengdur er móttökutæki erlendra frétta-
mynda á ritstjórn DV. Hjá situr Jónas Sigurösson, deildarstjóri hjá P&S.
DV-mynd GVA.
Fréttir
Farmannadeilan:
Afjgreiðslubann á
íslensk skip á
Norðuriöndunum
- tuttugu farskip hafa stöðvast í Reykjavíkurhofn
Aukin harka er nú komin i far-
mannadeiluna því um leið og slitnaði
upp úr samningaviðræðum deiluað-
ila í fyrrakvöld kom til framkvæmda
afgreiðslubann á íslensk kaupskip í
höfiium á Norðurlöndunum. Sjó-
mannafélag Reykjavíkur leitaði til
Alþjóðasambands flutningaverka-
manna með þetta mál og hefur einu
islensku skipi þegar verið neitað um
afgreiðslu ytra.
Að sögp Jónasar Garðarssonar,
sem sæti á í samninganefnd far-
manna, getur svo farið að afgreiðslu-
bann verði sett á í fleiri löndum. Ef
reynt verður að nota íslensk skip í
flutninga milli Evrópu og Ameríku
verður óskað eftir afgreiðslubanni.
íslensku skipin eru ekki kyrrsett í
höfnum ytra heldur fá þau enga af-
greiðslu.
í gær höfðu 20 skip stöðvast í
Reykjavfkurhöfn vegna verkfallsins.
Þar á meðal eru strandferðaskipin,
Hekla, Katla og Esja, sem hafa legið
bundin síðan verkfallið hófst. Hefur
það orðið til þess að landflutningar
eru nú meiri út á land en dæmi eru
til um áður á þessum árstíma. Til
að mynda lögðu þrír flutningabílar
af stað jafntímis úr Reykjavík til
Vestfjarða i gær en undir venjuleg-
um kringumstæðum fer einn bíll á
viku, eða í mesta lagi tveir, frá
Reykjavík til Vestfjarða yfir vetur-
inn. -S.dór
EHendar fréttamyndir DV:
Rússar mega ekki
komast yfir tækið
„Aðalskrifstofa Reuters í London
varð að undirrita yfirlýsingu um að
tækið yrði eingöngu notað hér á
landi og aldrei flutt austur yfir
járntjald," sagði Þorsteinn Thorar-
ensen, fulltrúi fréttastofu Reuters,
um útbúnað sem komið hefur verið
upp hjá Pósti og síma í tengslum við
móttökutæki DV á erlendum frétta-
myndum. Hér er um afar fullkominn
og dýran búnað að ræða sem fram-
leiddur er í Bandaríkjunum, einn sá
besti sinnar tegundar.
„Það eru miklar nýjungar í þessum
tækjum og skiljanlegt að Banda-
ríkjamenn vilji ekki að Rússar
komist yfir þau,“ sagði Þorsteinn
Thorarensen.
Upphaflega var ráðgert að þessi
nýja myndaþjónusta DV hæfist í
október en leiðtogafundurinn setti
strik í reikninginn. Að honum lokn-
um urðu menn sammála um að koma
hér upp fullkomnara tæki en áður
hafði verið ráð fyrir gert, vegna auk-
ins mikilvægis Islands á alþjóðavett-
vangi og tafðist verkið fyrir bragðið.
„Er einhver ástæða til að ætla að
Rússar hafi ekki yfir svona tæki að
ráða?
„Ég veit það ekki. Ég hef ekki
njósnað um það,“ sgði Þorsteinn
Thorarensen.
-EIR
Steingrímur vill ekki
deila um Sturlumál
„Ég ætla ekki að taka þátt í deil-
um um það,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
morgun er DV spurði hver væri af-
staða hans til brottvikningar
fræðslustjórans í Norðurlandsum-
dæmi eystra eftir að hafa hlustað á
ræðu Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra á Alþingi í
gær.
-KMU
LUKKUGETRAUN:
Einu sinni í mánuði drögum við úr nöfnum kaupenda og seljenda um 5 daga ferð til
Hamborgar með ferðaskrifstofunni Sögu.
- VERÐUR ÞÚ SÁ HEPPNI í JANÚAR?
Ford Scorpio CL árg. 1986, blás-
ans., sem nýr, ekinn 1.700 km. Verð
kr. 890.000,-
Range Rover árg. 1981, blásans.,
mjög fallegur, ekinn 60.000 km.
Verð kr. 870.000,-
Nissan Sunny árg. '•''85, rauðsans.,
sjálfskiptur, ekinn 29.000 km. Verö
kr. 350.000,-
Honda Accord EX árg. 1983, vin-
rauður, einn meö öllu, ekinn 52.000
km. Verð kr. 415.000,-
Mercedes Benz 280 SE árg. 1984,
Ijósgrænsans., mjög vel með farinn,
ekinn 72.000 km. Verð kr. 1.450.000,-
einnig Mercedes Benz 280 SE árg.
1981 og 1982.
Lada Sport árg. 1985, drappl., létt-
stýri, ekinn 27.000 km. Verð kr.
280.000,-
Allar gerðir bíla vantar á söluskrá - mikil sala.
Opið laugardaga kl. 10-18.
BÍLATORG
NOATUN 2 - SIMI 621033
Vantar þig bíltœki?
'tæKin eru á verði,
sem allir ráða við
Aðeins
4.900
stgr,
Bílhátalarar
Verð frá 1.710 stgr.
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) - Sími 622025