Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Side 7
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
7
Utlönd
Fomum dýr-
gripum stolið
úr safni
Ómetanlegum fomgripum var
stolið úr safoi í Júgóslavíu og hef-
ur alþjóðalögreglan (Interpol)
verið beðin um aðstoð við að hafa
uppi á þýfinu sem voru fomar
myndastyttur og gömul mynt frá
býsantíska tímanum.
Dýrgripum þessum var stolið úr
Mediana-safoinu, sem er við ein-
hver frægustu fomminjakuml
Júgóslava í suðausturhluta lands-
ins. Voru þetta tvær marmara-
styttur af hinum foma heilsuguði
Grikkja, Asclepius, ein af heilsu-
gyðjunni Hygeia og eitt konulík-
neski. Eins 100 fomir gullpeningar.
Hugsanlegt þykir að þjófamir
geti selt þetta einkasöfourum vest-
antjalds fyrir tugi milljóna króna.
Fommunir þessir vom grafoir
upp árið 1972 í Mediana, sem var
sumarhöll rómverska keisarans,
Konstaníns mikla.
Kreisky
gagnrýnir
eigin
flokksbræður
Snom Valsaan, DV, Vin;
í gær tók ný stjóm við stjómar-
taumunum hér í Austurríki en
mikill órói er nú í Sósíalistaflokkn-
um, öðrum stjómarflokkanna,
vegna þessarar stjómarmyndunar.
bað er öðrum fremur „gamli
maðurinn“ í flokknum, Bruno
Kreisky, fyrrum kanslari, sem er
óánægður. Hann var áður fyrr af-
skaplega umdeildur fyrir utanrík-
isstefou sína og sérstaklega í
málefoum araba. Hefúr hann sak-
að flokkinn um áhugaleysi í
utanrikismálum. Kreisky gagn-
rýnir sérstaklega forystu flokksins
sem hann telur óhæfa að sjá í hvert
óefai er komið. Hann hefur hótað
að verða enn harðorðari og skil-
merkilegri í gagmýni sinni verði
ekki eitthvað gert.
Viðbrögð flokksmanna hafa öll
verið á einn veg. Að vísu hafa eldri
flokksmenn talið rétt að hlusta á
Kreisky en hinir yngri segja hann
einfaldlega ekki sætta sig við kyn-
slóðaskiptin í flokknum.
Sjálfur hefur núverandi kanslari
sósíalista, Franz Vranitzky, lftið
viljað segja um málið annað en það
að menn í hans stöðu verði að
sætta sig við persónulega gagn-
rýni. Tilkynnt hefur verið hver sér
um dómsmáhn í nýju stjóminni
og er það Egmont Foregger sem
er óflokksbundinn. Hann hefúr
starfað sem ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu hingað til.
Hin sextán ráðherraembættin
skiptast jafnt milh stjórnarflokk-
anna tveggja, íhaldsflokksins og
Sósíalistaflokksins.
Bruno Kreisky, fyrrum kanslari
Austurrikls, gagnrýnirflokksbræð-
ur sína fyrir áhugaleysi i utanrikis-
málum. Þeir segja aftur á móti aö
hann sætti sig ekki við kynslóða-
skiptin i flokknum.
Ungmenni í Quito, höfuðborg Ecuador, grýtir lögregluna í mótmælaað-
gerðum og róstum sem þar urðu í gær og fyrradag.
- Símamynd Reuter
Vilja að forsetinn
í Ecuador víki fiá
Þingið í Ecuador greiðir atkvæði
um áskorun til Leon Febres Cord-
ero, forseta landsins, um að hann
segi af sér en það er yfirlýst að hann
hafi brotið stjómarskrá landsins og
æst menn úr flughemum til þess að
nema hann á brott. Forsetanum var
rænt fyrr í vikunni en ræningjar
hans slepptu honum aftur, eftir að
hafa haldið honum í hálfan sólar-
hring.
Atkvæðagreiðslan í þinginu var
að viðhöfðu nafaakalli og tók tvo
daga, því að hverjum þingmanni
leyfðust tíu mínútur til þess að gera
grein fyrir atkvæði sínu. Annars er
búist við framhaldi á ræðunum
þriðja daginn á morgun.
Lögreglan hafði mikinn viðbúnað
fyrir utan þinghöllina á meðgn á
atkvæðagreiðslunni stóð því að
róstusamt hefúr verið í borginni.
Cordero forseti stóð á svölum for-
setahallarinnar í gærdag og veifaði
til stuðningsmanna, sem safaast
höfðu þar saman undir.
Margir þingmanna lýstu því yfir í
ræðum sínum að forsetinn hefði
brotið stjómarskrána og grundvall-
ar mannréttindi. Hann hefði rænt
landsmenn rétti til að kjósa og kúg-
að þingið.
Líklegt þykir að áskorunin um af-
sögnina verði samþykkt en í henni
er jafaframt gert ráð fyrir að vara-
forsetinn, Blasco Penaherrera, taki
við.
Djóöum gólfteppi og flísar
ina, skrifstofuná og stiga-
in á frábæru'afsláttarveröi
um fyrir nyjum tegundum.
7^7 CREIÐSLUKJÖR
Byggingavörur hf.
FNARFIRÐI, SiMI 53140,