Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1987, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 1987.
Spumingin
Lesendur
Ætlarðu að sjá óperuna Aidu?
Brynjólfur Magnússon húsvörður:
Já, alveg öriigglega, bara núna á
næstunni þegar ég gef mér og hef
tíma. Ég held að það sé vel þess virði
að fara á hana því við eigum svo
góða óperusöngvara.
Ingimundur Steindórsson: Já, það
kemur að því, það er bara að drífa
sig. Það eru alveg ágætir söngvarar
í Aidu svo ég ætla ekki að missa af
henni. Annars fer ég nú allt of lítið
á óperur.
Dagbjört Imsland afgreiðslustúlka:
Ef mér er boðið þá hika ég ekki við
að fara. Ég er bara vonast til að eig-
inmaður minn lesi þetta og bjóði
mér. Ég hef mjög gaman af óperum
ef þær eru léttar.
Pálmi Ólafsson ellilífeyrisþegi: Nei,
engan veginn. Ég hef enga trú á því
að íslenskir óperusöngvarar ráði við
þetta því þetta er allt of mikið verk
fyrir þá. Islenskir óperusöngvarar
eru alls engir menn í þetta.
Haraldur Guðbrandsson bakari: Nei,
ég hef ekki hugsað mér það, enda
mjög lítið gefinn fyrir óperusöng. Ég
hef ekki farið á eina einustu óperu
ennþá en það er aldrei að vita ef
smekkurinn breytist eitthvað.
Jens S. Guðbergsson, vinnur á sorp-
eyðingarstöð: Nei, ég ætla ekki að
fara enda hef ég ekki smekk fyrir
óperusöng, þó syng ég í kirkjukór.
Vegagerðin sér um sitt
Rögnvaldur Jónsson, yfirverkfræðing-
ur Vegagerðarinnar í Reykjanesum-
dæmi, skrifar:
I lesendadálki DV þann 14. janúar
sl. undir yfirskriftinni „Slæleg frammi-
staða Vegagerðarinnar" er Vegagerð-
in gagnrýnd fyrir lélega vetrarþjón-
ustu á Reykjanesbraut og sem dæmi
er tekið hörmulegt slys sem varð föstu-
daginn 9. janúar sl. þegar 5 bílar lentu
í árekstri við Kúagerði.
Áður en greint verður frá aðstæðum
þennan dag er rétt að lýsa hvemig
vetrarþjónustu er háttað á Reykjanes-
braut.
Alla daga klukkan 5 að morgni
mætir verkstjóri í áhaldahús Vega-
gerðarinnar í Grafarvogi. Hafi þótt
líkur á kvöldið áður að moka þyrfti
snjó eða eyða hálku af vegum þá
mæta einnig stjómendur þeirra tækja
sem notuð em við þá vinnu. Bíllinn,
sem sinnir Reykjanesbrautinni, fer úr
Grafarvogi kl. 5.30 og er að öllu jöfiiu
í Njarðvíkum um 7.15 ef ekki þarf að
ryðja snjó. Ef þörf er á snjómokstri
er einnig sendur bíll úr Njarðvíkum
og mætast bílamir venjulega við af-
leggjarann að Vogum. Hafi ekki þótt
líkur á snjó eða hálku mæta bílstjórar
á sama tíma og aðrir starfsmenn
áhaldahúss nema verkstjóri kalli þá
til starfa fyrr. Þjónustu á Reykjanes-
braut sunnan Hafharíjarðar er hætt
klukkan 20 en verkstjóri er á vakt í
Grafarvogi til kl. 23.00.
Þann dag, sem slysið varð við Kúa-
gerði, mætti verkstjóri samkvæmt
venju kl. 5. Hitastigið var + 4° C
og suðaustangola. Klukkan6.15. hafði
verkstjórinn samband við lögregluna
í Keflavík og var honum tjáð að það
væri engin hálka. Fram kom að lög-
reglubíllinn væri á Reykjanesbraut á
leið til Reykjavíkur og bað verkstjór-
inn þá um nánari upplýsingar þegar
þær mundu berast. Klukkan 6.45 hafði
lögreglan samband við Grafarvog og
þá var engin hálka á Reykjanesbraut.
Tilkynnt var um slysið í Kúagerði
kl. 8.12 en þá var komin hálka á alla
Reykjanesbrautina samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar í Keflavík.
Vegagerðin hefur gott samstarf við
lögregluna í Hafnarfirði og Keflavík
og hefur ekki komið fram að þessir
aðilar telji vetrarþjónustu á
Reykjanesbraut vera áþótavant enda
er þar svipað staðið að verki og í ná-
grannalöndunum sem hafa líkt
veðurfar og hér ríkir.
Siaeleg framnitstaða
^n^^^SóbSfrá
aííí-ss *<**■%«£
túá?að umferðaiþungmn
STórfaldaat á aíðaata 6n og aéra-
mlcleca háúr umferðin autóat W
iSSk til Reykjavíkur. Vegagerð.
inStur að eigaaðsjá um aðhalda
veginum keyralubisfom. Ená
JZtLum er aaltbffl frá Vegagerð-
SSrf aeint á férðinni þanrng
er. Einn^ er snjó-
- • ' l mioff ábótavant
HRINGIÐ í SÍMA
27022
MILLI KL. 13 og 15
EÐA SKRIFIÐ
Aida göldrum líkust
Halldóra Garðarsdóttir hringdi:
Ég vil byrja á því að óska ópe-
runni til hamingju með afmælið og
frábæra sýningu á óperunni Aidu
eftir Verdi. Ég hef sjaldan verið jafh-
gagntekin af hrifningu og er ég sá
sýningu þessa og átti bágt með að
trúa eigin augum og eyrum því bæði
leiksvið, söngur og tjáning fannst
mér óaðfinnanlegt og söngvaramir
skiluðu sínum hlutverkum eins og
best verður á kosið. Það er mjög
erfitt að lýsa þessu í fáum orðum,
þetta var stórfengleg sýning sem
enginn ætti að missa af.
„Ég hef sjaldan verið jafngagntekin af hrifningu og er ég sá óperuna Aidu
og átti bágt með að trúa eigin augum og eyrum....“
Sýniðfrá
Kínaferð Strax
K. og G. skrifa:
Við viljum koma orðsendingu á
framfæri til hljómsveitarinnar Strax.
Okkur finnst platan ykkar alveg frá-
bær og þið eigið sko alveg örugglega
eftir að ná 1. sæti á vinsældalistum
bæði hér og erlendis með öll ykkar
nýjustu lög. Við vonumst til að Kína-
ferðin verði sýnd sem fyrst og bíðum
við eftir henni með eftirvæntingu.
Listræn Ijósmyndasýning?
Mánudaginn 13. janúar var grein í
DV, eftir Aðalstein Ingólfsson, um
ljósmyndasýningu. Mig langaði að fá
að vita hvort skilja megi orð hans í
greininni svo að sýning ívars Biynj-
ólfssonar í Djúpinu rétt fyrir jólin
hafi ekki verið listræn ljósmyndasýn-
ing að hans mati?
Aðalsteinn Ingólfsson svarar:
Mér fannst hún ekki nógu metnað-
arfull, listrænt séð.
Lokuð búð
Ingunn Einarsdóttir hringdi:
Mikið er leiðinlegt að fara í bæinn
og koma að lokuðum búðardyrum.
Það er búið að auglýsa þessi ósköp
að það sé útsala í Kjallaranum og ég
ætlaði nú aldeilis að vera tímanlega í
því og ekki missa af neinu með því
að mæta á mínútunni 9 en þá eru velf-
lestar verslanir opnaðar. Mér til
mikillar undrunar var lokað og það
var ekki einu sinni verið að hafa fyrir
því að setja miða í gluggann er segði
til um opnunartímann. Hefði ekki ve-
rið viturlega, fyrst verið var að
auglýsa útsölu, að gefa opnunartím-
ann upp líka, viðskiptavininum til
hægðarauka?
Pennavinur óskast
Sigrún K. Norðdahl skrifar: að svara öllum bréfum. Áhugamál allt.
Mig langar til að eignast pennavini Ég er sjálf 12 ára og á heima að
á aldrinum 11-13 ára. Ég vil skrifast Mosabarði 2, 220 í Hafnarfirði.
á við stráka og stelpur og ætla mér