Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1987, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987.
Útlönd i> v
Kohl og Genscher
búnir í slaginn
Genshcer þurrkar sveittur skalla, samt með hýrri há. En glaður Kohl vill kalla, kjósendur sína á. - Þeir bera það með sér samherjarnir að þeir kvíða
ekki mikið morgundeginum enda eru flestar kosningaspár þeim í vil. Á morgun er sem sé loks gengið að kjörborðinu í V-Þýskalandi og kosið til sam-
bandsþingsins.
Atók eftir
fjöldagöngu
Heimsmet
Glenn Tremml, tuttugu og sex ára gamall læknastúdent, steig þessa flugu í
tvær klukkustundir og þrettán minútur. Vegalengdin var sextíu kílómetrar og
þar með var hann búinn að setja heimsmet. Flugan er fjörutíu kíló að þyngd
og byggð í Massachusetts en heimsmetið var sett i Kaliforníu.
-Símamynd Reuter
Ánægður
með Sovét’
ferðina
Björg Eva Eriendsdóttir, DV, Osló:
Nýi olíumálaráðherrann í Saudi-
Arabíu, Hisham Nazer, eftirmaður
Yamanis olíufursta, er kominn til Osló
ásamt konu sinni. Hafði hann mikinn
öryggisvörð í kringum sig.
Nazer var varla búinn að stíga fæti
á norska jörð og láta nokkur jákvæð
orð falla þegar olíuverð í New York
hækkaði um tíu til fimmtán cent.
Hisham Nazer kom beint frá
Moskvu í einkaþotu sinni þar sem
hann hafði verið í opinberri heimsókn.
Sagði hann að heimsókn sín til Sovét-
ríkjanna, þar sem ræddar voru
takmarkanir á olíuútflutningi, hefði
verið sérlega árangursrík. Sovétríkin
munu ætla að minnka olíuútflutning
sinn um sjö prósent til þess að styðja
OPEC löndin.
í Noregi ræðir Nazer við Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra, Knut
Frydenlund utanríkisráðherra og
Arne Öien, olíu- og orkumálaráðherra.
Hisham Nazer er mjög ánægður með
þá ákvörðun Noregs að draga úr sín-
um olíuútflutningi um sjö og hálft
prósent.
Afstaða Saudi-Arabíu er afar mikil-
væg íyrir olíuverð í heiminum og
mikið er því í húfi þegar Hisham Naz-
er kemur í heimsókn til Noregs.
Penmgamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóðsbækur óbund. Sparireikningar 8,5-10 Lb
3ja mán. uppsögn 5-12 Úb.Vb
6 mán. uppsögn 10-17.5 Vb
12 mán. uppsögn 12-18,25 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 16.5-18 Sp
Ávísanareikningar 3-9 Ab
Hlaupareikningar Innián verðtryggð 3-7 Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Lb.
Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2.5-4 Úb
Innlán með sérkjörum Innlán gengistryggð 5-19,25
Bandarikjadalur 5-€ Ab
Sterlingspund 9.5-10,5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab.lb
Danskar krónur ÚTLÁNSVEXTIR 8,5-9.5 (%) Ab.Lb lægs-
Útián óverðtryggð
Almennir víxlar(forv) 15-18 Sb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21
Almenn skuldabréf(2) 16.5-18.5 Ab.Sb
Viðskiptaskuldabréf(1) kg. Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) Utlán verðtryggð 16,5-20 Ab
Skuldabróf
Að2.5árum 5.75-6.75 Lb
Til lengri tima 6.25-5.75 Ab.Bb.
Útlántil framleiðslu
isl. krónur 15-18.5 Sp
SDR 5-8.25 Allir
nema
Ib.Vb
Bandarikjadalir 7,75-8,25 Lb.Úb
Sterlingspund 12.6-13 Lb.Úb. Vb Lb.Úb
Vestur-þýsk mörk 5-5.25
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-5,5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala jan. 1565 stig
Byggingavisitala 293 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaöi 7,5% 1 jan.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 228 kr.
Flugleiðir 200 kr.
Hampiðjan 133 kr.
Iðnaðarbankinn 130 kr.
Verslunarbankinn 110 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt
kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og
sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla
gegn 21% ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á
skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð
lán, nema í Alþýðubanka og Verslunar-
banka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtu-
dögum.
Til átaka kom milli lögreglu og
mótmælenda er mörg þúsund spænskir
framhaldsskólanemar fóru í fjölda-
göngu að menntamálaráðuneytinu í
Madrid.
Að sögn vitna særðust að minnsta
kosti þrír göngumanna og einn lög-
regluþjónn. Beitti lögreglan táragasi
og skaut jafnframt gúmmíkúlum að
nokkrum ungmennum sem höfðu
kastað grjóti að lögreglumönnum og
kveikt í bíl íyrir utan ráðuneytið.
Gæslumenn, er íylgt höfðu göngunni
til að koma í veg fyrir árásir hægri-
sinnaðra, töldu að framhaldsskóla-
nemar hefðu ekki tekið þátt í
átökunum.
Hafa nemendurnir verið í fjögurra
daga verkfalli til þess að leggj a áherslu
á kröfúr sínar um ífjálsan aðgang að
háskólum landsins, laun handa stúd-
entum írá efnalitlum fjölskyldum og
meira framlag ríkisins til menntamála.
Norðmenn
Björg Eva Eriendsdóttir, DV, Osló:
Eftir að skandinavísku samgöngu-
málaráðherramir ákváðu að leyfa
ffjálsa samkeppni flugfélaganna á
ferðum yfir Atlantshafið varð uppi
fótur og fit i Noregi.
Þegar það varð uppvíst að ódýrustu
ferðimar frá Kaupmannahöfn myndu
kosta um tíu þúsund íslenskar krónur
virtist sem hálf þjóðin þyrfti að bregða
sér til Ameríku og það helst strax.
Fyrirspumunum rigndi yfir ferðaskrif-
stofumar og biðraðimar náðu út á
Gurmlaugur A. Jónsson, DV, Lundi
Sala á ítölsku rauðvíni hefur verið
stöðvuð í sænskum áfengisverslunum
í kjölfar þess að tveir menn hafa látist
í Eskilstuna með nokkurra daga milli-
bili eftir að hafa drukkið ítalskt
rauðvín.
„Við álítum hverfandi litlar líkur á
að vín sem selt er í sænskum áfengis-
í ferðahug
götu og símalínumar vom rauðgló-
andi.
En ekki er ennþá hægt að tryggja
sér miða því verðið hefur ekki verið
endanlega ákveðið. Þó er ljóst að Tow-
er Air og ferðaskrifstofan Tjæreborg
verða með ódýrustu ferðirnar. En SAS
og fleiri félög fylgja fast eftir.
I gær var Norðmönnum í ferðahug
sagt að hægt yrði að panta miða í
næstu viku. En fyrstu ferðimar verða
ekki fyrr en í kringum sautjánda maí.
Fyrirkomulag þetta verður haft til
reynslu fram í október.
verslunum geti verið eitrað vegna þess
að kröfur okkar og rannsóknir á vín-
um, sem við seljum, em strangari en
nokkurs staðar í heiminum. En sem
aukavarúðarráðstöfun höfúm við
ákveðið að hætta sölu ítalskra vína á
meðan rannsókn málsins fer fram,“
sagði talsmaður sænsku áfengisversl-
ananna.
Lögreglumenn beittu kylfum er þelr reyndu að dreifa hópi mótmælenda í
Madrid. - Símamynd Reuter.
Létust eftir
rauðvínsdiykkju