Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Side 5
MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987.'
5
pv__________________Fréttír
Læknar gagnrýna stjómarfrumvarp að læknalögum:
Aðför að eldri
læknum og
rýrð kastað á
læknadeild
„Aðför, að eldri læknum“ er fyrir-
sögn greinar sem Baldur Johnsen
yfirlæknir hefur ritað í Læknablaðið.
I yfirfyrirsögn segir að greinin sé „at-
hugasemdir að tilhlutan nokkurra
lækna um nýtt frumvarp til lækna-
laga“.
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra mælti fyrir
stjómarfrumvarpinu þann 8. desember
síðastliðinn. Er frumvarpið nú til
skoðunar í þingneíhd.
f grein sinni segir Baldur að tvær
greinar frumvarpsins hafi vakið hvað
mesta athygli og raunar undrun lækna
og háskólamanna.
Ákvæði 2. greinar kasti rýrð á
læknadeild Háskóla íslands „um leið
og hlutur deildarinnar er gerður miklu
minni en áður í veitingu læknaleyfa.
Undrun vekur 27. greinin vegna hins
nýja „stefriumótandi" ákvæðis, að
lækningaleyfi lækna falli niður og þar
með leyfi til að heita læknir, án þess
þeir hafi nokkuð brotið af sér, þegar
þeir ná 75 ára aldri," segir í grein-
inni, en lokaorð hennar em:
„Engum dettur í hug að svipta arki-
tekta eða verkfræðinga starfsleyfi eftir
viss aldursmörk, þótt þeir hanni og
sjái um byggingu stórhýsa og brúa og
annarra mannvirkja, sem þúsundir
eiga líf sitt og afkomu undir.“
-KMU
Fundur vinstri sósíalista á Hótel Borg.
DV-mynd GVA
Vinstri sósíalístar:
Kanna hug annarra
vinstri
Á ráðstefhu vinstri sósíalista á Hót-
el Borg á laugardag var ekki tekin
endanleg ákvörðun um framboð til
Alþingis. Stjóm félagsins vár falið að
kanna hug annarra vinstri manna til
framboðs, vinstra megin við Alþýðu-
bandalagið.
Að sögn Áskels Mássonar stjómar-
manns er ekki talið vænlegt að fara í
framboð nema tryggt sé að einn maður
komist inn. Verið er að hugsa um
framboð í Reykjavík og á Reykjanesi.
Um 50 manns mættu á fundinn.
-SJ
Farmenn:
Ekkert við flutningana
að athuga
Eins og skýrt hefur verið frá í DV
notfæra ýmsir útflytjendur sér fær-
eysku flutningaskipin, sem halda uppi
reglubundnum siglingum til Aust-
flarða og Eyjafjarðahafna, til að koma
vamingi utan.
Jónas Garðarsson hjá Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur sagði að farmenn
hefðu ekkert við þetta að athuga. Hér
væri ekki um verkfallsbrot að ræða.
Færeysku skipin hefðu haldið uppi
siglingum til lslands í 4 ár og enginn
amast við því og þess vegna væri ekki
heldur Lægt að gera það nú enda þótt
farmannaverkfall staeði yfir.
-S.dór
Tveir
goö i
ímlkost
r
Ikostir
igSAMSUNG
VX-SIOTC
MyndbandstækiÖ, sem uppfyllir óskir þínar um vandaö tæki, á ótrúlegu veröi.
Aöeins
29.900
stgr.
CB-389 ZS
Glæsilegt 17 tommu
litasjónvarp m/fjarstýringu,
16 rásum, sérstökum
vídeóinngangi og
tengi f/heyrnartói.
Aöeins
27.900
stgr.
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) - Sími 622025.