Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987. Utiönd Stjóm Kohls situr áfram Sigur hægri flokkanna minni en spáð hafði verið og kannanir höfðu gefið til kynna Ásgeir Eggeitssan, DV, Mindien; sagði Kohl kanslari að kristilegir hefðu gert mistök með að ætla kosn- ingamar unnar fyrirfram. Ýmsir stuðningsmenn hefðu því talið enga þörf fyrir atkvæði þeirra. Eins taldi Kohl ýmsan ágreining innan stjómarinnar hafa fælt ein- hverja kjósendur frá. Lokatölur þingkosninganna í Vest- ur-Þýskalandi vom á annan veg en skoðanakannanir höfðu bent til að undanfömu. En þótt hægri flokkamir undir forystu Kohls kanslara og Strauss, forsætisráðherra Bæjara- lands, hafi tapað 5,2% fylgi munu sömu flokkar og áður halda um stjóm- artaumana. Kohl vænti 55% Kohl kanslari sagði, skömmu eftir að fyrstu tölur birtust úr talningunni, að kjósendur hefðu haldið tryggð við stjómina en hryggilegt væri að kristi- legu flokkamir hefðu ekki fengið jafnmikið fylgi og vonast hefði verið til. - Þegar kosningabaráttan stóð sem hæst hafði Kohl búist við 55% fylgi. Taldi hann ástæðu minna fylgis vera dræma kosningaþátttöku. Einnig Rau afsalar sér nafnbót kanslaraefnis Kanslaraefni sósíaldemókrata, Jo- hannes Rau, sagði, að hann liti á úrslitin sem tap fyrir flokk sinn. Kvaðst hann á næstu dögum skila nafnbót sinni sem kanslaraefni flokks- ins þar sem flokkurinn hefði ekki náð tilætluðum árangri með hann í kansl- araframboði. - Sósíaldemókratar höföu stefnt á hreinan meirihluta at- kvæða eftir þrjú ár í stjómarandstöðu en fengu í staðinn minnsta atkvæða- magn sem þeir hafa fengið síðan 1961. Kanslaraefni sósíaldemókrata, Johannes Rau, túlkar úrslit kosninganna sem ósigur fyrir flokkinn þó þau hafi verið skárri en spáð hafði verið. Johannes og eiginkonan, Barbara, létu heldur ekki sin atkvæði vanta. Rau hefur sagt að hann ætli að afsala sér kanslaraefnisnafnbótinni einhvern næstu daga. - Símamynd Reuter NOTAÐIR BILAR 929 GLX, 4 d„ HT m/öllu, '84. e. 41 þús. Kr. 585 þús. 626 GLX. 2 d. coupé '85, s/v. e. 20 þús. Kr. 500 þús. 626 LX, 4 d. saloon '85, v/5. e. 57 þús. Kr. 430 þús. 626 2.0 L. 2 d . HT. '81. e. 110 þús. Kr. 240 þús. 929 LT0, 4 d„ '82. e. 40 þús. Kr. 330 þús. 323 LX, 5 d„ '86. e. 16 þús. Kr. 360 þús. 626 LX. 5 d„ '84. e. 37 þús. Kr. 420 þús. 323 sendib. '85. e. 27 þús. Kr. 280 þús. Golf. 3 d„ '82. e. 70 þús. Kr. 240 þús. Escort, 3 d„ ‘85, e. 20 þús. Kr. 330 þús. 626 GLX, 2 d. coupé '83. s/v. e. 37 þús. Kr. 380 þús. 626 GLX, 2 d. coupé '84, 5/v 2, e. 30 þús. Kr. 440 þús. Fjöldi annarra bíla á staðnum. s=sjálfsk. 5=5 gíra v = vökvast. e=ekinn Opið laugardaga frá 1—5. BILABORG HF Smiöshöföa 23sími 6812 99 Kohl tapaði í eigin kjórdæmi Helmut Kohl tapaði í sínu eigin kjördæmi í fjórða skipti í röð í sambandskosningum. En hann fær samt sem áður sæti á þingi þar sem hann var efstur á lista flokksins. Kjósendur fá tvö atkvæði, eitt fyr- ir eigin frambjóðanda á staðnum og eitt fyrir flokkinn. Kohl íilaut aðeins 43,8 prósent greiddra atkvæða í kjördæmi sínu Ludwigshafen en mótframbjóð- andi hans, sem var sósíaldemó- krati, hlaut 46 prósent. Tölvursáu úrslltin fyrir Tölvur sýndu að kjósendur í Vestur-Þýskalandi höföu valið samsteypustjóm Helmuts Kohl í annað sinn. Eftir að fyrstu tölur höföu borist spáðu tölvumar því að stjómin hlyti 52,7 prósent at> kvæða, sósíaldemókratar 37,6 prósent og græningjar 8,2 prósent. Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, á leið á kjörstað ásamt eiginkonu sinni, Hannelore. Þegar úrslit kosning- anna lágu Ijós fyrir lýsti Kohl yfir vonbrigðum sinum með minna fylgi en hann hafði búist við en sagði jafnframt að kjósendur héldu tryggð við stjórnarflokkinn. - Símamynd Reuter Rau sagði að sósíaldemókratar hlytu að líta á. þessi úrslit sem ögrun fyrir þær fjórar fylkiskosningar er fram eiga að fara síðar á þessu ári. Hvort sem flokkur Rau samþykkir að hann víki úr kanslaraframboði þá þykir víst vegna vinsælda hans og rómaðrar frammistöðu hans í kosn- ingabaráttunni að honum verði valið eitthvert annað trúnaðarstarf í fylk- ingarbrjósti, til dæmis formennsku. Og úrslitin vom þó skárri en kosn- ingaspár höfðu gert ráð fyrir. Frjálslyndir keikir Bangemann, formaður frjálslyndra, sagði að flokkur hans mundi halda óbreyttri stefnuskrá. Kvaðst hann líta á það sem sjálfsagðan hlut er ekki þyrfti einu sinni að ræða að Genscher héldi áfram utanríkisráðherraembætt- Græningjar ætla sér meiri hlut Talsmaður Græningja, Beckman, sagði, að með þessum árangri ættu Græningjar rétt á fulltrúa í öllum nefndum þingsins. Þeir hafa að und- anfömu verið útilokaðir frá ýmsum þingnefndum eins og til dæmis örygg- ismálanefhdinni. Hann sagði, að sósíaldemókratar heföu gert þau meg- inmistök að troða sér inn á stefnu frjálslyndra og kristilegra. Kvað hann hægri flokkana hafa í kosningabarátt- unni leikið með fölskum teningum. Úrslitin sýndu hins vegar, að mati Beckmans, að hægri sveiflan fyndi engan hljómgrunn hjá fólki. Stælur um ráðherraembættin Ljóst er að stjómarmyndunin er bundin nokkrum erfiðleikum þar sem frjálslyndum tókst að auka fylgi sitt. Spennandi verður að sjá hvemig ráð- herraembættum verður skipt að þessu sinni. Vart var fyrr ljóst í hvaða úrslit stefhdi en hnútukast hófst milli forvíg- ismanna hægri flokkanna þar se hvorir kenndu hinum um. Vegna illfærðar í mörgum hémðu sátu margir heima á kjördag. í ein kjördæminu verður að kjósa aftur þí sem grímuklæddir menn kveiktu í eii um kjörkassanum og eyðilögðu þí með um þúsund atkvæði. Franz-Josef Strauss, formaður Kristllega sambandsflokkslns I Bæjaralandl, þurrkar af sér svitann eftir kosningaslaginn. Ágrelnlngur hans vlö frjáls- lynda er kannskl eitt af þvi sem fælt hefur kjósendur frá. - Simamynd Rauter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.