Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987. Auglýsing um próf fyrir skjalþýðendur og dómtúlka. Þeir sem öðlast vilja réttindi sem skjalþýðendur og dómtúlkar eiga þess kost að gangast undir próf er haldin verða í mars-apríl ef þátttaka verður nægjanleg. Umsóknirskal senda dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir 13. febrúar 1987 á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Við innritun í próf greiði próftaki gjald, kr. 1.775, sem er helmingur gjalds fyrir löggildingu til að verða dóm- túlkur og skjalþýðandi. Gjaldið er óafturkræft þótt próftaki komi ekki til prófs eða standist það ekki. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 23. janúar 1987. Þvottur, tjöruþvottur og þurrkun 390 kr, Eiimig bjóðum við að sjálfsögðu: • Gufuþvott á vélum • Djúphreinsim á sætum og tepp • Sprautun á felgum • Við bónum aðeins með hinu níðsterka Mjallarvaxbóni BON- & ÞVQTTASTÖÐIN Klöpp - Sími 20370 BÓN- & ÞVOTTASTÖÐIN v/Umferðarmiðstöðina - Sími 13380 HÖFÐABÓN Höfðatúni 4 - Sími 27772 RÍKISSPÍTALAR LAUSAR STÖÐUR Yfirlæknir óskast viö röntgendeild Landspítalans. A sérsviöi yfir- læknis þessa er forstaða, stjórnun og þróun sérhæfðra myndgerðar- rannsókna í hjarta- og æðakerfi. Ennfremur þátttaka í stjórnunar- störfum deildarinnar samkvæmt erindisbréfi. Umsækjandi skal hafa staðgóða sérfræðimenntun í almennri rönt- gen- og myndgreiningu, en auk þess sérhæfða menntun, reynslu og starfsþjálfun í röntgen- og öðrum myndgerðarrannsóknum á hjarta- og æðakerfi. Upplýsingar um stöðuna veitir forstöðulæknir deildarinnar, Ás- mundur Brekkan prófessor. Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna skulu sendar stjórnar- nefnd ríkisspítala fyrir 27. febrúar 1987. Aöstoðarlæknar óskast við kvennadeild Landspítalans. Um 4 stöð- ur er að ræða. Ein eins árs staða veitist frá 15. mars nk. Tvær ársstöður veitast frá 1. júní nk. og ein 6 mánaða staða veitist frá 1. júlí nk. Umsóknir á umsóknareyðublöðum fyrir lækna sendist skrifstofu rík- isspítala fyrir 25. febrúar nk. Upplýsingar veita yfirlæknar kvennadeildar í síma 29000. Hjúkrunarfræðingar óskast við Vistheimilið Vífilsstöðum, einkum á kvöldvaktir og um helgar. Sveigjanlegur vinnutími mögulegur Starfsfólk óskast við Vistheimilið Vífilsstöðum sem er meðferðar- deild fyrir vímuefnaneytendur. Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir hjúkrunarstjóri Vistheim- ilisins Vífilsstöðum í síma 656570. Hjúkrunarfræðingar óskast við blóðskilunardeild Landspítalans (gervinýra) nú þegar eða eftir samkomulagi. Unnið er á dagvökt- um. Boðið er upp á aðlögun og þjálfun á staðnum. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast á lyflækningadeild 3 (hjartadeild). Boðið er upp á aðlögup. Upplýsingar um stöður þessar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri lyflækningadeildar í síma 29000-485 eða 487. Fóstra óskast nú þegar til afleysinga í hlutastarf við dagheimili rík- isspítala á Vtfilsstöðum. Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma 42800. Starfsmaður óskast á skóladagheimili ríkisspítala, Litluhlið, í hálfa vinnu frá kl. 15-19 á virkum dögum. Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma 29000-667. Reykjavík, 26. janúar 1987. DV Iþróttir Svíinn Stefan Edberg kyssir hér bikarinn sem hann vann annað árið í röð. Símamynd/Reuter - og sigraði á opna ástralska meistaramótinu annað árið í röð Meistaramótinu í tennis lauk nú um helgina. í einliðaleik í karlaflokki sigraði Svíinn Stefan Edberg Ástral- íubúann Pat Cash í tvísýnum úrslita- leik, 6-3, 6-4, 3-6, 5-7 og 6-3. Þetta er annað árið í röð sem Edberg ber sigur úr býtum í þessari þekktu tenni- skeppni. Edberg vann emnig í tvíbðaleik ásamt landa sínum, Ánders Jarryd. Þeir sigruðu Ástraliumennina, Laurie Warder og Peter Doohan, 6-4, 6-4 og 7-6. Eftir þessa sigra sagði Edberg að Svíar hefðu nú komið fram hefndum á Ástaralíubúum eftir slæmt tap í Davis Cup á dögunum. Goðsögnin lögð að velli í einliðaleik kvenna sigraði tékk- neska tenniskonan, Hana Mand- likova, Martinu Navratilovu, sem leikur fyrir Bandaríkin, 7-5 og 7-6. „Að sigra Navratilovu er ems og að leggja goðsögn að velli,“ sagði Mand- likova eftir leikinn sem þótti geysilega spennandi. Sigur í tvíliðakeppni var þó sárabót fyrir Navratilovu. Hún lék þar ásamt Pam Shriver, Bandaríkjunum. Þær sigruðu Zinu Garrison og Lobi McNeil mjög auðveldlega, 6-1 og 64). Þær Garrison og McNeil hafa einnig bandarískt ríkisfang. í tvenndar- keppni sigrað Garrison hins vegar ásamt landa sínum, Sherwood Stew- art. Þau lögðu Andrew Castle og Anne Hobbs að velh, 3-6, 7-6 og 6-3. -JÖG. Edberg sigraði Cash eftir 4 tíma leik Islandsmótið innanhúss: Fram og KR meistarar Úrslit á íslandsmótinu í innanhúss- knattspymu fóru fram í Laugardals- höll í gærkvöldi. Fram varð Islandsmeistari í karlaflokki en KR í kvennaflokki. I karlaflokki léku til úrslita Fram og Selfoss og var leikurinn um tíma bæði tvísýnn og spennandi. Selfyssing- amir komu óneitanlega á óvart, þeir börðust vel og léku skemmtilega sam- an. Þá eiga þeir ágæta skotmenn og vakti Páll Guðmundsson sérstaka at> hygli fjölmargra áhorfenda fyrir góð tilþrif. Framarar em greinilega á gullaldar- tímabili. Þeir hafa nú unnið fjóra titla í knattspymu á stuttum tíma. Þeir urðu Reykjavíkurmeistarar í vor og jafnframt sigurvegarar í meistara- keppni KSÍ. Þá urðu þeir íslands- meistarar í haust og kom víst fæstum á óvart. Sigur Framara var þó naumur í gærkvöldi en leiknum lauk með 6 mörkum gegn 4. Mörkin skomðu þessir leikmenn: • Fram: Guðmundur Steinsson: 2, Kristinn Jónsson 2, Viðar Þorkelsson 1 og Amljótur 1. •Selfoss: Gylfi Sigurjónsson 1, Elías Guðmundsson 1, Páll Guðmundsson 1 og Halldór Róbertsson 1. Hörkuleikir í kvennaboltanum KR-stúlkumar lögðu stöllur sínar af Skaganum í mjög spennandi úr- slitaleik með 5 mörkum gegn 4 eftir framlengingu. Kvennaboltinn er afar fjömgur og jafnvel ánægjulegri fyrir augað en knattspyman í karla- flokki. Líkamsstyrkur er oft settur ofar léttleikanum í karlaflokki, jafn- vel á fjölum Hallarinnar þar sem rými er takmarkað. Stelpumar hafa einnig meira frelsi og leika ekki jafn kerfisbundið. Ama Steinsen lék mjög vel í úr- slitaleiknum og skoraði sigurmark KR-inganna. Laufey Sigurðardóttir lék hins vegar kvenna best í Skaga- liðinu. Þessar skomðu mörkin: • KR: Ama Steinsen 2, Helena Ólafsdóttir 1, Jóna Kristjánsdóttir 1 og Kristrún Heimisdóttir 1. • ÍA: Laufey Sigurðardóttir 2, Jón- ína Víglundsdóttir 1 og Vanda Sigurgeirsdóttir 1. • Úrslit í karlaflokki: Fram-KR 7-5 Selfoss-Fylkir 7 5 Fram-Selfoss • Úrslit í kvennaflokki: 3-1 fA-KA KR-íA -JÖG. • Fram hefur nú á síöastliðnu ári unniö til flestra þeirra verðlauna sem eitt knattspymulið getur unnið til hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.