Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 26. JANTJAR 1987. 23 Iþróttir • Sigurður Sveinsson er geysilega skotfastur og væri ánægjulegt ef íslenskir handknattleiksunnendur fengju að fylgj- ast með honum hér á landi næsta vetur. Siggi Sveins hættir í Vestur-Þýskalandi - ekki enn vttað í hvaða lið hann fer hér heima Steön Kris^ánssan, DV, Rostodc Það er allt útlit fyrir að það fylgi fleiri íslendingar í fótspor Atla Hilm- arssonar og flytji heim til Islands á næsta ári því að nú eru miklar líkur á því að Sigurður Sveinsson hætti hjá Lemgo og komi heim til íslands þegar keppnistímabilinu í V-Þýskalandi lýk- ur. „Það eru miklar líkur á því að ég hætti hjá Lemgo. Ég er orðinn þreytt- ur á lífinu í Þýskalandi en ég hef ekki gert upp hug minn ennþá í hvaða félag ég fer þegar ég kem heim,“ sagði Sig- urður en eins og kunnugt er iék hann með Þrótti þegar hann lék hér heima. Nú er hins vegar búið að leggja niður handknattleiksdeild Þróttar. Þá eru líkur á því að Páll Ólafsson verði eitt ár í viðbót hjá Dússeldorf. Eins og áður hefur verið sagt kemur Ath Hilmarsson heim en Alfreð verður örugglega í tvö ár í viðbót úti. Einnig verður Bjami Guðmundsson áfram erlendis. -SMJ Islendingar sem á heimavelli - í Wismar þegar þeir sigruðu Pólverja 29-28 Stefán Kris^ánssan, DV, Rostodc Það var fyrst og fremst frábær sókn- arleikur sem lagði grunninn að sigri Islendinga gegn Pólverjum í Wismar á föstudaginn. Og sóknarleikur ís- lenska liðsins féll svo sannarlega áhorfendum í geð. Það var eins og íslendingar væru að leika á heima- velli svo dyggilega var stutt við bakið á þeim. Þegar Pólverjar voru í sókn var púað á þá og er ekki hægt að segja annað en að íslendingar hafi átt höll- ina. Eftir leikinn ætluðu íslensku landsliðsmennimir aldrei að komast í rútuna vegna kappsfullra áritunar- safnara. Alfreð Gíslason átt mjög góðan leik en hann hefur komið mjög sterkur út úr keppninni það sem af er. Þá vom þeir Siggi Sveins., Siggi Gunn., Þorg- ils Óttar, Einar og Kristján einnig mjög góðir. Mörk íslands: Siggi Gunn. 6, Þorgils Ottar 6, Alfreð 5, Kristján 5/2, Siggi Sveins. 3, Bjami 2, Páll 2. Hjá Pólverjum var Wenta langmarkahæstur með 8 mörk. -SMJ Evrópubikarkeppnin: Andeiiecht mætir Bayem Miinchen • Stórskyttan, Jerzy Klempel, mátti sín litils gegn baráttuglöðum íslend- ingum. r Þjáífarinn l j rekinn j j - hjá Tres de Majo I | Stefán Kristjánssan, DV, Rostodc I | I dag verður þjálfari Tres de | Majo, Francis Jimenez, liðs þeirra I Einars Þorvarðarsonar og Sigurð- I ar Gunnarssonar, rekinn. Jimenez, I sem er aðeins 28 ára, tók við liðinu ■ í fyrra. Líklegt er að Alfredo Cast- I illo, sem var með liðið á undan ! I Francis, taki við liðinu aftur. | Mikillar óánægju hefúr gætt ■ I meðal leikmanna með Jimenez og I hefúr til dæmis Einar Þorvarðar- I son tilkynnt að hann muni hætta I með liðinu ef Jimenez verði áfram. I Hefúr það að öllum líkindum vald- * ið því að hann er látinn fara. | Um helgina var dregið í Evrópumót- unum í knattspymu. Segja má að gæfan sé hliðholl Dyn- amo Kiev frá Sovétríkjunum. I Evrópukeppni meistaraliða dróst liðið gegn Besiktas frá Tyrklandi. Dynamo Kiev er núverandi Evrópumeistari bikarhafa og eru líkur taldar á að fé- lagið leiki einnig til úrslita í ár en nú í meistarakeppninni. Bayem Múnchen dróst gegn And- erlecht frá Belgíu. „Anderlecht er lið sem verður að taka mjög alvarlega," sagði Dieter Höeness, framkvæmdastjóri Bayem, er hann heyrði af drættinum. Staðhæfing Höeness er mjög skyn- samleg því Amór Guðjohnsen leikur með Anderlecht ásamt einvalaliði landsliðsmanna. Dönsku meistaramir, Bröndby IF, eiga erfiða leiki framundan eins og Bayem Múnchen. Þeir drógust gegn Porto frá Portúgal og fer fyrri leikur- inn fram í Portúgal. Porto hefur staðið sig með prýði á síðustu árum en Dan- ir hafa ekki leikið áður í átta liða úrslitum. Það verður þó án efa gaman að fylgjast með afrekum þeirra. Einmg leika Rauða stjaman (Júgó- slavíu) og Real Madrid (Spáni) í átta liða úrshtum meistarakeppninnar. I Evrópukeppni bikarhafa leika þessi lið saman: Real Zaragossa (Spáni) - Vitosha Sofia (Búlgaríu) Malmö (Svíþjóð) - Ajax (Hollandi) Bordeaux (Frakklandi) - Torpedo Moskva (Sovétríkjunum) Lokomotiv Leipzig (A.-Þýskal.) - Sion (Sviss) Leikir í Evrópubikarkeppninni(U- EFA) em þessir: Dundee United (Skotlandi) - Barce- lona (Spáni) Borussia Mönchengladbach (V,- Þýskal.) - Victoria Guimaraes (Port- úgal) Torino (Ítalíu) - Swarovski Tyrol (Austurríki) Gautaborg (Svíþjóð) - Inter Milan (It- alíu) -JÖG. RAFVIRKJAR ÓSKAST Vantar rafvirkja í vinnu strax. Pálmi Rögnvaldsson rafverktaki, Kársnesbraut 106, sími 41375. in:q/Mð;ií jni nm XL VOLVOSALURINN SKEIFUNN115, S. 35200 Volvo 244 turbo árg. 1984, ekinn Volvo 244 turbo árg. 1983, ekinn 52.000 km, svartur met., beinsk., 83.000 km, rauöur met., beinsk., m/vökvast. o.d., mikiö af aukahlut- o.d., m/vökvast., mikiö af aukahlut- um. Verð kr. 700.000,- um, góð kjör. Verö kr. 600.000,- Voivo 244 GLE árg. 1984, ekinn Volvo 244 GLárg. 1982, ekinn 50.000 94.000 km, grár met., sjálfsk., o.d., km, blár met., beinsk., o.d., m/ m/vökvast., mikiö af aukahlutum. vökvast., sumar/vetrardekk, falleg- Verö kr. 625.000,- ur bill, góð kjör. Verð kr. 425.000,- wmyirmsm Volvo 244 GL árg. 1981, ekinn 64.000 Volvo 245 GL árg. 1986, ekinn 23.000 km, grár met., beinsk., o.d., m/ km, blágrænn met., sjálfsk., o.d., vökvast., góö kjör. Verð kr. 360.000,- m/vökvast., fallegur bíll. Verð kr. 725.000,- Saab 900 GL árg. 1982, ekinn 63.000 Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 56.000 km, grár met., beinsk., fallegur bill, km, gull met., beinsk., o.d., m/ góö kjör. Verð kr. 350.000,- vökvast., piussáklæði, sumar/vetr- ardekk. Verð kr. 395.000,- Volvo 244 GL dísil árg. 1979, ekinn 116.000 km, m/mæli, ii'nfluttur 1986, sjálfsk., m/vökvast., grænn, toppbíll, sumar/vetrardekk. Verð kr. 290.000,- Saab 900 GLE árg. 1980, ekinn 104.000 km, blár met., beinsk., góð kjör. Verð kr. 295.000,- Volvo 245 DL árg. 1984, ekinn 35.000 km, beige, beinsk., m/vökva- st., læst drif. Verð kr. 510.000,- Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 64.000 km, blár, sjálfsk., m/vökva- st., fallegur bíll, góð kjör. Verð kr. 410.000,- Voivo 244 GL árg. 1979, ekinn 133.000 km, blár, beinsk., sportfelg- ur, sumar/vetrardekk. Verð kr. 240.000,- Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 78.000 km, gull met., læst drif, auka- mælar, beinsk., o.d. m/vökvast., toppbill. Verð kr. 420.000,- Volvo 244 L árg. 1977, ekinn 158.000 km, gulur, beinsk. Verð kr. 170.000,- ★ Nýr 500 m2 bílasalur. ★ Nýjar hugmyndir. ★ Góð kjör. ★ Úrval notaðra bíla. ★ Heitt á könnunni. OPIÐ ALLA DAGA FRA KL. 9.00 TIL 18.00. LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 16.00. VOIVOSALURINN SKEIFUNNI 15, SÍMI 35200 - 35207.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.