Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Side 11
MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987. 11 Sigur frjáisyndra i kosningunum í Vestur-Þýskalandi í gær tryggir áframhaldandi setu Hans-Dietrich Genschers í embætti utanríkisráðherra. Hann brosti breitt er hann yfirgaf kjörstað ásamt Barböru eiginkonu sinni. - Símamynd Reuter Þingmenn tíunda aukatekjur sínar Páll Vilhjálmsson, DV, Osló: Norskir þingmenn munu að öllum líkindum samþykkja að gefa upp tekjur sínar og láta birta í sérstakri skrá. Allar tekjur, að undanskildum föstum launum frá ríkinu, verða færðar í skrána sem verður opinber. Eftir að Káre Willoch, fyrrverandi forsætisráðherra, varð uppvís að því að hafa þegið laun frá samtökum atvinnurekanda jafiihliða þingfarar- og ráðherrakaupi hafa verið uppi raddir um að þingmenn tíunduðu aukatekjur sínar. Haustið 1985 samþykktu formenn alfra þingflokka að forsætisnefiid þingsins skyldi móta tillögur um tekjuskrá. Þessar tillögur hggja nú fyrir og meginefni þeirra er að þing- menn gefi upp aukatekjur sínar af fusum og frjálsum vilja. Upplýsing- amar verða síðan gefnar út í sér- stökum bæklingi. Þessar tillögur eru að enskri fyrirmynd. Allir þingmenn utan einn hafa lýst sig fúsa til þess að telja fram aukatekjur sínar. Útiönd Bráðabirgðaúrslit þegar síðast fréttist af talningu í morgun (tölur í sviga sýna atkvæðamagnið í siðustu sambandsþingskosningum í mars 1983) voru: Kristilegu flokkarnir 44,3% Sósialdemókratar 37,0% Frjálsir demókratar 9,1 % Græningjar 8,1 % Aðrir 1,3% Þingsætin skiptast þá samkvæmt þessu þannig milli fiokkanna (þingmannatölur flokkanna eftir kosningarnar 1983 i sviga): Kristilegir 223 Sósíaldemókratar 186 Frjálslyndir 46 Græningjar 42 Kjörsókn var 84,4% en hafði verið 89,1% árið 1983. (48,8) (38,2) (7,0) (5,6) (0,4) (244) (193) (34) (27) Bannað að PáB Vahjáhnsgan, DV, Osló: Ef norskir foreldrar leggja hendur á böm sín eiga þeir það á hættu að verða dregnir fyrir dóm. Norska stórþingið samþykkti nýlega lög sem banna misþyrmingar á bömum. Þingmenn alfra flokka greiddu at- berja böm kvæði með lagafrumvarpinu. Það var þingmaður verkamanna- fiokksins, Tove Tihl, sem fyrir fimmtán árum lagði fram frumvarp sem bannaði ofbeldi á bömum. Það hittist svo á að Tove Tihl lést fáein- um dögum eftir að frumvarpið var samþykkt. Valdbeiting gegn eyðnisjúklingum Pál Vahjálmæan, DV, Osló: Norðmenn hafa nú í bígerð að breyta kynsjúkdómalöggjöfinni þannig að hún nái yfir eyðni. Lög- gjöfin mun heimila valdbeitingu gegn eyðnisjúklingum en aðeins í neyðartilfellum. Félagsmálaráðuneytið hefur und- anfama mánuði unnið að endur- skoðun á lögum um kynsjúkdóma. I desember fréttist það að ætlunin væri að breyta löggjöfinni á þann veg að leyfð yrði valdbeiting gegn eyðnisjúklingum. Heilsugæslustéttir og samtök homma risu öndverð gegn slíkum breytingum sem gætu tak- markað mjög persónufrelsi þeirra sem smitaðir em eða grunaðir um smit. Ráðuneytið segist taka tiU.it til gagnrýninnar og þvingunarákvæði, svo sem einangrun, verða aðeins leyfð sem örþrifaráð. Skýr ákvæði verða um réttarstöðu þeirra sem þvingunarákvæðunum verður beitt gegn. Svíar höfhuðu Sovétgyðingum Sænsk yfirvöld öftmðu fimmtán sovéskum gyðingum frá því að kom- ast til Vesturlanda með því að synja þeim um vegabréfsáritanir til þess að komast til Svíþjóðar. Tilgreind ástæða var sú að þeir væm of lítið tengdir Svíþjóð. Sænska útvarpið segir að gyðing- amir, sem allir hafi gifst sænskum ríkisborgurum, hafi allir verið búnir að fá leyfi sovéskra yfirvalda til þess að fara til Svíþjóðar. Sú leyfisveiting er sögð til endurskoðunar núna eftir að sænsk yfirvöld tregðast við að hleypa gyðingunum inn í landið eða leyfa þeim að setjast að í Sviþjóð. Yfirmaður sænska innflytjendaeft- irlitsins segir að öðmvísi hefði verið tekið á umsókn gyðinganna ef jæir hefðu gert' það ljóst að öðmvisi fengju jæir ekki að flytja frá Sovét- ríkjunum. Logar og lím löttu kjósendur Þátttaka í kosningunum í Vestur- Þýskalandi fór ekki alls staðar fram á hefðbundinn hátt. Á kjörstað nálægt Frankfurt köstuðu grímuklæddir menn íkveikjusprengju að kassanum sem atkvæðin vom látin í. Ekki er ljóst hve mörg atkvæði brunnu en kjósend- ur þurfa að ganga að kjörborði aftur irrnan þriggja vikna. 1 Tuebingen hafði lími verið hellt í lása að dyrum kjörstaðanna og reyndu lásasmiðir með sveittan skallann að opna dymar áður en atkvæðagreiðsla skyldi he§ast. Tókst það að einum stað undanskildum. Bæjari á kjörstað i hefðbundnum klæðum. - simamynd Rauter HALLÓ Er sjónvarpið þitt lélegt? Eigum nokkur 0TATUNG Sjónvarpstæki til afgreiðslu strax á einstöku verði. 22” stereo, kr. 43.605,- stgr., fætur fylgja með, fjarstýrt. 26” fjarstýrt með fótum, kr. 47.405,- stgr. Utborgun frá kr. 7.000,- Eftirstöðvar á 6-7 mán. Láttu þetta einstaka verð ekki fara fram hjá þér. EINAR FARESTVEIT & CO HF. Bergstaðastræti lOa. Simi 16995.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.